Peningamál - 01.11.2000, Blaðsíða 59
58 PENINGAMÁL 2000/4
Ný sjónarmið
Nokkrir þættir grundvallarreglnanna eru athyglis-
verðir, m.a. vegna þess að þar gætir nýrrar hugsunar
hjá seðlabönkum sem undirstrikar að nokkru þær
breytingar sem orðið hafa á hlutverki þeirra og al-
mennum viðhorfum til greiðslukerfa. Kjarnareglurn-
ar eru því sem næst hlutlausar m.t.t. ólíkra tegunda
greiðslukerfa en þróunin síðustu ár hefur fremur
verið í átt til rauntímagreiðslukerfa sem seðlabankar
einstakra landa eiga og reka og hafa skoðanir þeirra
litast nokkuð af þessu. Lögð er áhersla á hagkvæmni
greiðslukerfa og þar með er gefið undir fótinn með
ólíkar lausnir eftir því hversu þróaður fjármálamark-
aður er í hverju landi. Kjarnareglunum er ætlað að
vera beitt á vanþróuðum fjármálamörkuðum jafnt
sem þróuðum og því eru þær í raun algjört lágmark
sem allir ættu að geta verið sáttir við. Megináherslan
í kjarnareglunum er að vönduð vinnubrögð og traust
umhverfi greiðslumiðlunar séu líkleg til að draga úr
hættunni á kerfisbresti.
„Kerfislega mikilvæg“ greiðslukerfi
Eitt af þeim verkefnum sem bíða seðlabanka og ann-
arra sem nærri greiðslukerfum koma er að skera úr
um hvaða greiðslukerfi eru „kerfislega mikilvæg“
(Systemically Important Payment System). Í mörg-
um löndum eru starfrækt nokkur greiðslukerfi og
sum eru mikilvægari en önnur, sérstaklega þegar litið
er til kerfisáhættu. Almennt séð er „kerfislegt mikil-
vægi“ metið út frá því hvort líkur séu á að greiðslu-
TÓMAS ÖRN KRISTINSSON1
Greiðslukerfi – ný viðmið
1. Höfundur er framkvæmdastjóri peningamálasviðs Seðlabanka Íslands.
2. Sjá: Tómas Örn Kristinsson, Greiðslumiðlun – þróun og staða, Pen-
ingamál 2000/1.
Allt frá því að Lamfalussy-skýrslan kom út 1990 hafa svokölluð Lamfalussy-skilyrði2 verið almennt
viðurkenndur staðall fyrir greiðslujöfnunarkerfi. Lamfalussy-skilyrðin voru upphaflega lágmarksskil-
yrði fyrir fjölhliða-, millilanda- og fjölmyntagreiðslujöfnunarkerfi en þau hafa hins vegar verið notuð
sem viðmiðun við hönnun og rekstur flestra greiðslujöfnunarkerfa óháð því hvort þau eru fjölhliða-,
millilanda- eða fjölmyntakerfi. Hins vegar hafa ekki verið til samsvarandi viðmið fyrir annars konar
greiðslukerfi, t.d. rauntímagreiðslukerfi eða blönduð greiðslukerfi. Það hefur einnig vafist fyrir mörgum
hvernig skilgreina eigi hlutverk og afskipti, t.d. seðlabanka eða annarra eftirlitsaðila af greiðslukerfum.
Það var því tímabært framtak hjá Alþjóðagreiðslubankanum (Bank for International Settlements) að
setja fram ný viðmið sem ekki aðeins náðu til greiðslujöfnunarkerfa, heldur greiðslukerfa almennt.
Afurðin er nú að líta dagsins ljós og hafa „Kjarnareglurnar 10“ (10 Core Principles) verið til umsagn-
ar hjá ýmsum aðilum um nokkurt skeið. Allar líkur eru á að þessari vinnu ljúki um næstu áramót og þá
þurfa rekstraraðilar greiðslukerfa og seðlabankar víða um heim að hefja mat á því hvort þeirra kerfi
uppfylli þessar reglur og bæta úr því sem á vantar. Þessar reglur ná þó aðeins til „kerfislega mikil-
vægra“ greiðslukerfa. Þótt töluverð skörun sé á kjarnareglunum og Lamfalussy-skilyrðunum er þó
verulegur munur á í nokkrum atriðum. Ætlast er til að kerfislega mikilvæg greiðslukerfi uppfylli þau
skilyrði sem sett eru í reglunum innan „eðlilegs tíma“.