Peningamál - 01.03.2006, Blaðsíða 71
STARFSREGLUR UM UNDIRBÚNING, RÖKSTUÐNING
OG KYNNINGU ÁKVARÐANA Í PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
6
•
1
71
Peningastefnufundi samkvæmt a-lið sitja auk bankastjórnar að-
stoð arbankastjóri, aðalhagfræðingur og staðgengill hans, framkvæmda-
stjórar alþjóðasviðs, fjármálasviðs, peningamálasviðs og tölfræðisviðs
og aðrir sérfræðingar eftir því sem bankastjórn ákveður hverju sinni.
Peningastefnufundi samkvæmt b-lið sitja auk bankastjórnar
að stoð arbankastjóri, aðalhagfræðingur og staðgengill hans og fram-
kvæmdastjórar fjármálasviðs og peningamálasviðs.
Formaður bankastjórnar stýrir peningastefnufundum. Í fund-
argerð skal greint frá meginefni fundar, hvaða gögn voru lögð fram og
niðurstöðu þegar við á.
4. Á ákvörðunarfundi bankastjórnar gerir formaður tillögu um vexti.
Að tekinni ákvörðun kallar bankastjórn þá sem sitja peningastefnu-
fundi samkvæmt b-lið og aðra eftir atvikum hverju sinni til samráðs
um endanlegan frágang texta til kynningar á ákvörðuninni í inn-
gangi Peningamála eða frétt frá bankanum, sbr. tölulið 6.
5. Bankastjórn heldur aðra fundi um peningastefnuna og framvindu
efnahags- og peningamála eftir því sem hún telur tilefni til og
kall ar aðra til samráðs eftir atvikum hverju sinni. Ákvarðanir sem
varða stefnuna í peningamálum en ekki stýrivexti sérstaklega tekur
bankastjórn að undangengnu samráði við þá sem tilefni er til hverju
sinni.
6. Á útgáfudögum Peningamála eru ákvarðanir bankastjórnar um
vexti rökstuddar í Peningamálum. Á öðrum vaxtaákvörðun ar dög-
um birtir bankinn frétt um ákvörðum bankastjórnar ásamt rök-
stuðningi að baki henni. Ákvarðanir bankastjórnar um vexti skulu
kynntar á fundi með fréttamönnum og á það við um útgáfudaga
Pen ingamála jafnt sem aðra vaxtaákvörðunardaga.
Gildistaka
Reglur þessar voru staðfestar á fundi bankaráðs Seðlabanka Íslands
23. febrúar 2006 og taka þegar gildi. Þær koma í stað reglna sem stað-
festar voru á fundi bankaráðs 10. janúar 2002 og formlega settar af
bankastjórn 14. janúar 2002.
PM061_Starfsreglur.indd 71 30.3.2006 10:04:33