Peningamál - 01.11.2009, Blaðsíða 47
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
9
•
4
47
VIII Verðlagsþróun og verðbólguhorfur
Eftir hraða hjöðnun verðbólgu á vormánuðum hefur hægt á þeirri
þróun síðustu mánuði. Í október mældist tólf mánaða verðbólga
9,7%. Minnkandi verðbólgu á síðustu mánuðum má að miklu leyti
rekja til þriggja þátta: Áhrif mikillar gengislækkunar á vormánuðum
2008 hafa verið að fjara út úr tólf mánaða mælingunni, innlendur
verðbólguþrýstingur er lítill og fasteignaverð hefur lækkað. Hjöðnun
verðbólgunnar hefur þó gengið hægar fyrir sig en vonir stóðu til fram-
an af ári og má rekja það til veikingar krónunnar yfir sumarmánuðina.
Verðbólguvæntingar virðast einnig hafa aukist á ný í kjölfar geng-
islækkunarinnar, auk þess sem breytingar á veltusköttum munu hafa
nokkur áhrif á mælda verðbólgu.
Útlit er fyrir að verðbólga gangi nokkuð hratt niður á komandi
misserum og verði lítil á seinni hluta spátímans. Mikill framleiðsluslaki í
þjóðarbúskapnum dregur úr innlendum kostnaðarþrýstingi sem heldur
aftur af hækkun verðlags. Reiknað er með að undirliggjandi verðbólga
verði við verðbólgumarkmið Seðlabankans á seinni hluta næsta árs.
Eins og áður er forsendan um að gengi krónunnar haldist nokkuð
stöðugt út næsta ár en taki síðan að styrkjast þegar líður á spátímann
helsti óvissuþáttur spárinnar. Auk þess er umtalsverð óvissa fólgin í
áhrifum tekjuöflunaraðgerða ríkissjóðs á mælda verðbólgu. Að síðustu
ríkir nokkur óvissa um þróun framleiðni á næstunni og þar með um
undirliggjandi verðbólguþrýsting frá launakostnaði.
Hjöðnun verðbólgu heldur áfram
Í kjölfar gengisfalls krónunnar jókst tólf mánaða verðbólga mikið og
náði hámarki í janúar sl. þegar hún mældist 18,6%. Í október hækk-
aði vísitalan um 1,14% frá fyrra mánuði og mældist tólf mánaða
verðbólga 9,7%. Leiðrétt fyrir áhrifum hækkana óbeinna skatta mæld-
ist verðbólgan hins vegar 8,8%. Skýrist minnkun verðbólgunnar að
nokkru leyti af grunnáhrifum, en auk þess hafa áhrif húsnæðisverðs á
verðbólgu verið umtalsverð. Það sést á því að í október mældist tólf
mánaða hækkun vísitölu neysluverðs án húsnæðis 13,5%. Dregið
hefur minna úr hjöðnun verðbólgunnar á þann mælikvarða en sé horft
til vísitölunnar í heild, en ætla má að þróun gengis krónunnar ráði þar
mestu.
Undirliggjandi verðbólga, miðað við kjarnavísitölu 3, hjaðnaði
hægar en mæld verðbólga framan af árinu, en árshækkun hennar
nam 11,2% í október. Árstíðaleiðrétt þriggja mánaða verðbólga á
ársgrunni hefur hækkað mikið á síðustu mánuðum. Þessi mælikvarði
hefur verið mjög sveiflukenndur en getur gefið vísbendingu um
hvernig verðbólguþrýstingur þróast. Í október mældist ársverðbólga
á þennan mælikvarða 9,3% og hækkaði nokkuð frá fyrra mánuði.
Til samanburðar fór verðbólga á þennan mælikvarða niður fyrir eitt
prósent í vor og því ljóst að verðbólguþrýstingur jókst umtalsvert á
seinni hluta ársins.
Áhrif gengislækkunar og efnahagssamdráttar vegast á
Þegar horft er til undirliða vísitölu neysluverðs má sjá að þróun ein-
stakra liða er nokkuð ólík innbyrðis. Ætla mætti að verðþróun heima-
Mynd VIII-1
Verðbólga janúar 2001 - október 20091
0
2
4
6
8
10
12
14
16
18
20
200920082007200620052004200320022001
12 mánaða breyting (%)
1. Kjarnavísitölur mæla undirliggjandi verðbólgu, kjarnavísitala 1 er
vísitala neysluverðs án búvöru, grænmetis, ávaxta og bensíns. Í
kjarnavísitölu 2 er að auki verðlag opinberrar þjónustu undanskilið.
Kjarnavísitala 3 undanskilur til viðbótar áhrif af breytingum
raunvaxta.
Heimild: Hagstofa Íslands.
Vísitala neysluverðs
Kjarnavísitala 1
Kjarnavísitala 2
Kjarnavísitala 3
Verðbólgumarkmið
Mynd VIII-2
Þriggja mánaða árstíðarleiðrétt verðbólga
janúar 2001 - október 2009
-5
0
5
10
15
20
25
30
200920082007200620052004200320022001
%
Þriggja mánaða verðbólga
Þriggja mánaða verðbólga á ársgrunni
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
12 mánaða breyting (%)
Mynd VIII-3
Verðlagsþróun
Húsnæði og þjónusta
Heimild: Hagstofa Íslands.
Vísitala neysluverðs
Húsnæði
Almenn þjónusta
Opinber þjónusta
-10
-5
0
5
10
15
20
‘09‘08‘07‘06‘05‘04‘03‘02‘01‘00‘99