Skírnir - 01.01.1966, Page 77
Skírnir
Þingvallafundur 1885 og benediskan
75
1 alþýðumenntunarmálinu var eftir nokkurar umræður
samþykkt með öllum þorra atkvæða svo hljóðandi ályktun:
„Fundurinn skorar á Alþingi að taka alþýðumenntunar-
málið til meðferðar í sumar og koma fastri lögbundinni
skipun á uppfræðing alþýðu um land allt, svo fullkominni,
sem efni og aðrar kringumstæður frekast leyfa.“
Fjórða mál á dagskrá var aukning á valdi hreppsnefnda í
fátækramálum. Um það urðu alllangar umræður, og kom
fram uppástunga um að skora á Alþingi að taka upp aftur
frumvarp áþekkt því, sem neðri deild samþykkti 1883 um
vald hreppsnefnda í fátækramálum. Uppástungan var felld
með 12 atkvæðum gegn 10.
Tilgangur frumvarps neðri deildar 1883, sem fylgismenn
þessarar uppástungu vildu skora á Alþingi að taka upp aftur,
var að minnka rétt þurfamanna.
Fimmta mál á dagskrá var kosning presta. Samþykkt var
umræðulaust með öllum þorra atkvæða sú ályktun að skora
á Alþingi að halda áfram málinu um kosning presta í líku
horfi og á síðasta Alþingi.
Lög um kosning presta höfðu verið samþykkt á Alþingi
1881 og 1883, en í bæði skiptin var þeim lögum synjað stað-
festingar, í fyrra skiptið eftir tillögu landshöfðingja.
Sjötta mál á dagskrá var stofnun landsskóla. Eftir umræð-
ur, sem Suðri segir að verið hafi alllangar, var nær því í einu
hljóði samþykkt svo hljóðandi ályktun:
„Fundurinn skorar á Alþingi að halda sem fastast fram sömu
stefnu og á síðasta þingi í málinu um stofnun landsskóla."
Það var gamalt áhugamál Islendinga, að hér yrði komið
á fót innlendri kennslu í lögfræði. Meðan Alþingi var aðeins
ráðgefandi, sendi það konungi hvað eftir annað hænarskrár um
stofnun lagaskóla, en þó að stjórnin tæki því máli stundum
ekki fjarri, varð árangur enginn. Alþingi 1879 samþykkti lög
um stofnun lagaskóla, en þeim var synjað staðfestingar. Alþingi
1883 samþykkti lög um landsskóla, og var stofnun lagaskóla
meginatriði þess máls, en landsskóli átti að vera prestaskóli,
læknaskóli og fyrirhugaður lagaskóli sameinaðir í eina stofnun.
Svo sem vænta mátti var þessum lögum synjað staðfestingar.