Skagfirðingabók - 01.01.1983, Page 107
JON JOHANNSSON VINNUMAÐUR
eftir PÓRHILDI SVEINSDÓTTUR
Hann HÉTjón Jóhannsson og var vinnumaður hjá Sigurði bónda
Guðmundssyni í Hvammi í Svartárdal, þegar eg man fyrst eftir
honum. — Jón var skagfirzkra ætta. Foreldrar hans voru Jóhann
Þorláksson og Halldóra Jónsdóttir, sem bjuggu í Flókadal, á
Helgustöðum 1860 — 61, Sigríðarstöðum 1861—65 og Teigum
1865—84. Þau voru fátæk mjög og urðu að láta drenginn frá sér
um 10 ára aldur. Jón fór þá í Valadal til Guðrúnar móðursystur
sinnar og Eyjólfs Hanssonar, manns hennar. Hann fluttist
síðan með þeim að Stafni í Svartárdal árið 1892 og ílentist
vestra.
Jón kvæntist Ingibjörgu Gísladóttur, Hjálmarssonar frá Æsu-
stöðum, og konu hans, Guðrúnar Gísladóttur frá Eyvindar-
stöðum. Var Guðrún ein hinna mörgu Eyvindarstaðasystkina,
en meðal þeirra var Kristján Gíslason kaupmaður á Sauðár-
króki. Þau Jón og Ingibjörg eignuðust einn son, Gísla Benedikt.
Það varð stutt í sambúð þeirra Jóns og Ingibjargar. Hvíti
dauðinn skildi þau að og hreif móðurina frá syninum unga. Það
var bót í máli, að þeir feðgar áttu gott framtíðarheimili í
Hvammi. Gísli litli var rólyndur drengur, ákaflega feiminn og
hlédrægur. Heyrði eg síðar að hann hefði átt gott með að læra,
verið næmur og minnið frábært.
Jón í Hvammi las mikið og kunni frá mörgu að segja úr
bókunum, en ekki hafði hann gert víðreist um dagana. Sigurð-
ur, húsbóndi hans, var stórvel gefinn maður og mikið prúð-
menni. Kona hans, Elín, var einnig vel greind og líklega hag-
105