Jökull


Jökull - 01.12.1987, Page 103

Jökull - 01.12.1987, Page 103
lítils háttar í snjóinn undan skíðunum. Eftir fast að tveggja tíma göngu komum við að Hvannadalshnúk. Var hann mikið sprunginn að norðanverðu og töldum við greiðfærara að fara upp að sunnanverðu og reyndist svo vera. Við settum á okkur brodda og hnýttum okkur saman í línu. Innan klukkutíma stóðum við á hnúknum. Birtist okkur þá mikil útsýn yfir Vatnajökul og nágrenni hans að vestan og norðan, en allar lágsveitir skýjum huldar. Allar mishæðir á jöklinum sáust mjög greini- lega, allt frá Geirvörtum í vestri að Goðaborg í austri. Lengst í vestri sáum við hvel Hofsjökul og Arnarfell hið mikla, í norðri Dyngjufjöll, Herðubreið og Snæfell. Þegar horft var sér nær, stóðu upp úr þokunni Þumall, Miðfellstindur, Kristínartindar, Hrútfjallstindar og Kirjan næst. Þegar við höfðum dvalið á tindinum um hríð héldum við niður sömu leið, stigum á skíðin og renndum okkur sem leið lá utan í Snæbreið að vestan, yfir Tjaldskað og utan í Jökulbaki að austan, þar til við komum að tjaldinu. Við höfðum reynt að halda jöfnum halla alla leiðina, þótt það lengdi leiðina lítils háttar, en ávinningurinn var minna erðiði og trúlega styttri tími. Var nú langt liðið á daginn, eða klukkan að verða fimm. Attum við að láta fyrir berast hér í nótt eða taka saman föggur okkar og koma okkur niður af jökli? Skýjafar hafði breyst nokkuð, þunnar slæður höfðu myndast í háloftum. Hingað til hafði allt gengið eins og best gat, svo ákveðið var að hætta ekki á neitt hvað veður snerti og halda niður. Rennsli var mjög gott, púðursnjór upp fyrir ökla. Til að byrja með fylgdum við slóðinni frá deginum áður, en þegar við komum niður fyrir Mikinn, sveigðum við út af henni til SA. Sums staðar lögðum við lykkju á leið okkar til þess að missa ekki hæð. Einnig kræktum við fyrir hvilftir, sem við töldum vera sprungur og þá sérstaklega, þegar neðar dró, fyrir sprunguhausa. Eftir að kom niður á Breiðamerkurjökul var leiðin greiðfær, rennislétt, og haldið beint af augum. Síðustu 5-600 metrana gengum við skíðalausir vegna snjóleysis. Þegar við höfðum jökulinn að baki voru liðnir um þrír klukkutímar frá því að við yfirgáfum tjaldstaðinn vestan Þuríðartinds. Mælt á korti er það um 26 km. Eftir að hafa fengið okkur te og flatkökur sóttum við bílana, sem við skildum eftir á melhól um 200 m frá jökulröndinni, hlóðum í þá farangrinum og ókum að Breiðárskála. Helgi og Steini brugðu skjótt við og fóru að sækja vatn til matargerðar. Eftir drykklanga stund komu þeir aftur með fulla brúsa af snjóblöndu. Ekki varð úr neinni matargerð þetta kvöldið en gengið til náða kl 23.00. ÞRIÐJUDAGUR 25. APRÍL Eftir að snæddur hafði verið kjarngóður morgunverð- ur, sem samnstóð af bragðmikilli saltvatnssúpu, tei, ef te skyldi kalla, hangikjöti og flatkökum, var haldið af stað heim á leið. Eki var rólega eftir þjóðvegi nr. 1 til vesturs með tilheyrandi sjoppustoppum og komið til Reykjavík- ur á níunda tímanum eftir 10 tíma ferð. Ekki fer á milli mála, að þessi ferð var einvher sú besta sem við félagarhöfum farið, hvað snertir veður og vellíð- an, þótt sumir væru lítillega sólbrenndir, en ekki til skaða að ég held. Mynd 4 í ferðalok við Breiðárskála. Frá vinstri: Helgi,Þorsteinn, Leifur, Stefán, Halldór. (Ljósm. Leifur Jónsson) 101
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.