Jökull


Jökull - 01.12.1994, Síða 79

Jökull - 01.12.1994, Síða 79
Vorferð JORFI 1994 Magnús Tumi Guðmundsson Raunvísindastofnun Háskólans Dunhaga 3, 107 Reykjavík FERÐIN Helsta verkefni vorferðarinnar, sem farin var dag- ana 16.-22. júní, var flutningur nýs geymslu- og snyrti- húss upp á Grímsfjall en salernismál hafa verið þar erfið undanfarin ár. Rannsóknaverkefni voru mæling vatnshæðar og vetrarákomu í Grímsvötnum, íssjár- mælingar, uppsetning veðurstöðvar á Brúarjökli, mæl- ingar á ísskriði á Tungnaárjökli og þyngdarmælingar á Bárðarbungu. Þátttakendur í ferðinni voru 37 en farar- stjórar voru Jón E. Isdal og Magnús Tumi Guðmunds- son. Matráðskona var Sólveig Kristjánsdóttir. Fjórir snjóbílar tóku þátt í ferðinni: Snjóbíll Landsvirkjunar, Jaki, snjóbfll Jöklarannsóknafélagsins, nýr snjótroðari HSSR og snjóbíll FBSR. Einnig voru í ferðinni 6 jeppar og 3 vélsleðar. Lagt var af stað með húsið á dráttarbíl aðfaramótt 16. júní en meginhluti hópsins fór frá Reykjavík síðar um morguninn. Talsverður snjór var á leiðinni innan við Þröskuld en það kom ekki að sök því hefill Lands- virkjunar ruddi leiðina daginn áður. Greiðlega gekk að koma skálanum inn á rönd en þegar byrjað var að draga húsið brotnuðu undir því skíðin. Viðgerð og styrking á skíðunum stóð yfir fram undir morgun þess 17. en þá var lagt af stað. Snjóbfll Landsvirkjunar og snjótroðari HSSR drógu húsið með aðstoð snjóbfls FBSR, norður eftir jökulröndinni að Kerlingum og þaðan beint í austur áleiðis á Grímsfjall. Venjuleg leið upp Tungna- árjökul var ekki talin fær vegna sprungna. Ferðin gekk nú áfallalaust og kom húsið á fjallið síðdegis á þjóð- hátíðardaginn. Um helmingur hópsins fylgdi húsinu en hinir höfðu farið á Grímsfjall kvöldið áður. Strax var hafist handa við að koma húsinu á grunn- inn austan við nýja skálann. Var það mikið verk og unnu smiðir og suðumenn baki brotnu fram á mánu- dag við að ganga frá húsinu. Er það hin mesta völ- undarsmíð með salerni, gufubaði og sturtu. Gufa úr holunum austan við nýja skálann er notuð í gufu- baðinu og til að bræða vatn í sturtuna. Flestir þeirra sem sáu um uppsetningu og smíði snyrtihússins héldu til byggða á sunnudag eða mánudag. Var það um helmingur hópsins. Hluti leiðangursmanna vann allan tímann við ýmsar mælingar. Þriðjudaginn 21. júní fór svo allur hópurinn á Bárðarbungu. Þar var mæld vetrarákoman og farið fram á norðvesturbrúnina þar sem bungan er hæst. Skyggni var takmarkað en veður ágætt. Veður yfirleitt gott í ferðinni. A Grímsfjalli hreyfði varla vind allan tímann þó svo þar hafi verið þoka framanaf. Sú þoka náði þó lítt útfyrir Grímsfjallið og nutu mælingamenn veðurblíðu niðri í Grímsvötnum og annarstaðar á jöklinum. Síðustu dagana vermdi sólin svo skálana þrjá á Svíahnúk Eystri. Höfðu menn við orð að þröngt væri orðið með byggingarlóðir á fjallinu og næst yrði lfldega að byggja ofaná húsin sem fyrir eru. Þá var einnig nefnt að taka þyrfti upp húsnúmer svo fólk fari ekki húsavillt þegar komið er á fjallið. RANNSÓKNIR 1. í Grímsvötnum var vatnsborð mælt með GPS GIS tækjum en með þeim fæst staðsetning og hæð með um eins metra nákvæmni. Er þetta í fyrsta sinn sem GPS tæki eru notuð til að mæla vatnshæð Gríms- vatna. Eins og undanfarin ár sást ekkert vatn vestast í Vötnunum, þar sem Vatnshamar, Naggur og Mósar stóðu áður upp úr jöklinum. Hins vegar var vatns- pollur á gosstöðvunum frá 1983 undir Svíahnúk Vestri. Vatnsborð í pollinum var 30.5 m lægra en miðja íshellunnar og bendir það til þess að varla geti munað meiru en einum metra því og réttu vatnsborði. Vatnsborðið telst því hafa verið 1425±2 m y.s. Hefur JÖKULL, No. 44 77
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.