Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Blaðsíða 40

Iðjuþjálfinn - 01.11.1993, Blaðsíða 40
38 heimili var formlega tekið í notkun á afmælisdegi bæjarins þann 11. maí sl. Með tilkomu þessa nýja og glæsilega húsnæðis hefur verið brotið blað í sögu félags- og tómstundastarfs eldri borgara í Kópavogi hvað húsnæði varðar. Kópavogur hefur reyndar alltaf verið sveitarfélag sem hefur látið sig varða alla aldurshópa sem sveitar- félagið byggja og þar hefur verið blómlegt starf þessa aldurshóps á þriðja tug ára. í Gjábakka eru eldri borgarar að takast á við hin ýmsu verkefni sem þjálfa hug og hönd. Þar gefst þeim kostur á að læra hin ýmsu handbrögð svo sem glerskurð, silkimálun, taumál- un, perlusaum, vefnað, keramik o.fl. I vetur er einnig fyrirhugað að vera með námskeið í myndlist, ritvinnslu á tölvu, tungumálum, tréskurði og fleiri ef óskir berast. Þá er einnig kennd leikfimi, til að styrkja stoðkerfi líkam- ans, fimm sinnum í viku í Gjábakka og tekin eru dansspor af og til ekki sjaldnar en einu sinni í mánuði. Ekki má gleyma spilamennskunni. Bridge er spilað tvisvar í viku einnig er spiluð félagsvist og teflt. Þá starfar blandaður kór eldri borgara og leik- hópur verður að öllum líkindum einn- ig starfandi í Gjábakka í vetur. Engum blandast hugur um að allar þessar athafnir eru markviss þjálfun í að viðhalda og auka við þann reynslu- þroska sem einstaklingarnir hafa. Þannig má seinka áhrifum "elli kerl- ingar" sem við fáum þó víst ekki um- flúið. Aldraðir hafa orðið Eins og fram kom hér áður erum við sem vinnum í þágu eldri borgara í Kópavogi fús að leggja okkar af mörk- um til að hægt sé að verða við óskum þeirra um hvernig þeir vilja verja sínum tómstundum. Við leggjum ríka áherslu á að Gjábakki er félagsheimli eldri borgara sjálfra - þessara einstakl- inga sem margir hverjir eru frum- byggjar þessa góða bæjarfélags sem við búum í. Við sem höfum kosið að sinna þess- um málaflokki erum sannfærð um, að engir viti betur en einmitt eldri borg- arar sjálfir, hvernig þeir vilja verja tómstundum sínum. Þess vegna er í Gjábakka óska- og hugmyndabanki til að allir geti komið óskum sínum og hugmyndum á framfæri. Gestir Gjá- bakka hafa líka verið áhugasamir um að taka þátt í að móta vetrarstarfið og er gott til þess að vita. Við vonumst til að í þessu húsi séu það raddir eigendanna sem enduróma um salina. Að endingu Gjábakki félagsheimili eldri borgara í Kópavogi er opið alla virka daga frá kl. 9W-1700. í Gjábakka er heitt á könnunni á opnunartíma og heima- bakað meðlæti, sem selt er á vægu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.