Jón á Bægisá - 01.10.2009, Page 89

Jón á Bægisá - 01.10.2009, Page 89
Draumur á Jónsmessunótt Þeseifs og Hippólítu. Hinn hópurinn eru handverksmenn frá Aþenu sem eru að æfa leikrit sem þeir vonast eftir að fá að sýna við brúðkaup Þeseifs og Hippólítu. Oberon og Títanía þrátta um ungan indverskan pilt sem móðirin hefur gefið Títaníu. Óberon vill fá piltinn í sína þjónustu en Tít- anía hafnar því. Til að ná fram hefndum sendir Óberon þjón sinn, Bokka álf, til að sækja töfrablóm sem ná má safa úr og láta hann drjúpa á augn- lok sofandi persóna sem þá verða ástfangnar af þeim fyrsta sem ber fyrir augu þeirra er þær vakna. Bokki nær í blómið og Óberon lætur safa þess drjúpa á augnlok Títaníu er hún sefur. Óberon rekst á ungu Aþeningana í skóginum og skynjar þá grimmd sem Demetríus beitir Helenu er hún fylgir honum eftir. Óberon skipar þá Bokka álfi að dreypa töfravökvanum á augnlok Demetríusar. Bokki hittir fyrir Lísander og Hermíu í skóginum og heldur að Lísander sé Aþeningurinn sem Óberon átti við. Bokki dreyp- ir vökvanum því í augu Lísanders er hann sofnar. Þegar hann vaknar sér hann Helenu fyrst og verður ástfanginn af henni og yfirgefur Hermíu. Þegar mistökin uppgötvast reynir Bokki að gera gott úr þeim með því að dreypa vökvanum á augnlok Demetríusar. Bæði Demetríus og Lísander verða þá ástfangnir af Helenu sem telur víst að þeir séu að hæðast að sér. Hermía verður afbrýðisöm og vill berjast við fyrri vinkonu sína, Helenu. Demetríus og Lísander eru um það bil að heyja einvígi um ástir Helenu, en Bokki álfur ruglar þá með því að herma eftir röddum þeirra og þannig leiða þá hvorn í sína átt þar til þeir villast í skóginum. Þegar Títanía vaknar er Spóli vefari sá sem hún fyrst kemur auga á. Bokki hafði, er hann rakst á handverkmennina í skóginum við leik- æfinguna, gert það af hrekk að setja asnahaus á Spóla vefara. Títanía verður umsvifalaust ástfangin af vefaranum þrátt fyrir asnahausinn og dekrar við hann. Óberon fær eftirsótta indverska piltinn í sína þjónustu og lætur þá mótefni á augnlok konu sinnar er hún sofnar næst, og vaknar hún svo í eðlilegu ástandi og furðar sig á fyrri hegðun sinni. Bokki samþykkir með tregðu að setja mótefni í augu Lísanders. Að því gerðu leiðréttast mistökin sem valdið hafa miklu uppnámi. Þeseifur og Hippólíta finna hina sofandi elskendur í skóginum og fara með þau aftur til Aþenu þar sem slegið er upp þreföldu brúðkaupi hertog- ans og drottningar skjald-meyjanna, Hermíu og Lísanders og Demetríusar og Helenu, þegar allir eru orðnir ástfangnir af „réttum aðila“. Eftir brúð- kaupið horfa brúðhjónin á Spóla vefara og félaga hans í handverkssveitinni setja upp verkið um Pýramus og Þispu elskendur frá Babýlon, sem Kvistur timbrari hefur fært í leikbúning. Leiksýningin er einstaklega klaufaleg og orðfæri leikenda bjagað þannig að harmleikur verður skoplegur og hlægi- legur. Ahorfendur gera óspart grín að uppfærslunni meðan á leik stendur, ekki síst Hippólíta. Þegar leik lýkur ganga brúðhjónin til sængur. Þá birtast ÚJ — AF OG FRA, EG KANN EKKI NOKKURT ERLENT TUNGUMAL 87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.