Lifandi vísindi - 11.01.2016, Síða 21

Lifandi vísindi - 11.01.2016, Síða 21
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 59 leiddi fækkun taugunga í aftasta hluta ennisblað- anna jafnframt til þess að fínhreyfingar barnanna urðu mun betri. Taugasér- fræðingar telja að fækkun- in eigi sér stað sökum þess að heilanum sé aðeins hag- ur í því að varðveita og veðja á sterkustu taugafrumurnar og -tengingarnar. Áhrif á greindarvísitölu Þessi stöðuga uppbygging, svo og niðurrif heilans, getur bitnað á vits- munagetu unglingsáranna. Taugasér- fræðingurinn Cathy Price við Lund- únaháskóla mældi greindarvísitöluna á fjögurra ára tímabili hjá hópi ung- linga á aldrinum 14 til 18 ára. Greindarvísitala sumra unglinganna lækkaði sem nam alls 20 stigum en hækkaði hins vegar um allt að 23 stig hjá öðrum. Sveiflurnar í greindarvísi- tölunni áttu rætur að rekja til umróts- ins: Tungumálageta eins unglingsins gat til dæmis aukist til muna, á með- an sú greindarvísitala sem tengist lausn vandamála og rýmistilfinningu kunni að lækka. Hlutföllin gátu svo snúist við meðal annarra unglinga í rannsókninni. Með því að skanna heila unglinganna tókst Cathy Price að sýna fram á að breytingarnar á þessum tveimur tegundum greindar voru nátengdar því hvernig tilteknar heilastöðvar höfðu annað hvort stækkað eða rénað. Niðurstöður þess- ar skýra þversögnina sem er fólgin í því að unglingur kunni að búa yfir einstökum hæfileikum á sviði stærð- fræði eða tungumála en taki svo skyndilega mjög miklum framförum á allt öðrum sviðum. Stjórnast af hvötum og spennu Ein þeirra heilastöðva sem ekki hafa náð fullum þroska er ennisblað heil- ans sem dregur úr hvötum okkar og löngunum. Fyrir vikið eru unglingsárin þau varasömustu í ævi fólks, því óþrosk- aður heilinn stuðlar að því að unga fólkið taki meiri áhættu, verði þrjóskara og óvarkárara en ella. Hættan á að deyja af slysförum er sem dæmi sexfalt meiri meðal 15 til 19 ára unglinga heldur en meðal 10-14 ára barna. Margir unglingar hafa stundað það að skrópa af því að þá langaði frekar að hanga með vinunum. Skýringin á skrópinu er meðal annars sú að heilar þeirra þrá að örva verðlaunastöðvar heilans, umfram það sem gerist í heilum fullorðinna. Heimalær- dómur hefur enga sérstaka umbun í för með sér en það á hins vegar við um tölvuleiki og spilakassa. Eveline Crone, sem leggur stund á vísindastörf við Amsterdam háskóla, fékk hópa unglinga og fullorðinna til að spila upp á peninga, þar sem unnt var að freista gæfunnar með tveimur ólíkum aðferðum. Önnur aðferðin fól það í sér að þátttakendurnir gátu fengið há peninga- verðlaun, tapað miklu og að lokum glatað öllum peningunum. Með því að velja hina aðferðina gátu þátttakendurnir unnið lægri upphæðir í einu en græddu fé þegar upp var staðið. Unglingarnir veðjuðu oftar á stóru upphæðirnar og glötuðu meira fé en þeir fullorðnu. Umbunarþörf ungmennanna á sennilega rætur að rekja til þess að verð- launastöðvar þeirra eru ofvirkar og fyrir vikið auðveldara að virkja þær, þannig að unglingurinn kemst í „vímu“. Þörf fyrir verðlaun fær unglinga til að hegða sér líkt og spilafíklar 1 2 3 4 5 6 Spilatilraunir sýna að ungt fólk leggur meira undir og tapar meira en þeir fullorðnu. Taka mikla áhættu H ei ld ar áv in ni ng ur e ft ir tíu le ik i Unglingar taka meiri áhættu í peningaspil- um. Fullorðnir 15-16 ára 12-13 ára KRISTIA N SEPTIM IU S KRO G H Útskýrið fyrir u ngmenn­ inu hvað getur farið illa. Kl. 15.00 Vandi: Lausn: Geta ekki séð fy rir afleiðingar. Nú er illt í efni! Unglinga þyrstir í að örva verðlaunastöðvarnar sem eru ofvirkar. Skróp stafar af þörf heilans fyrir stöðuga umbun.

x

Lifandi vísindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lifandi vísindi
https://timarit.is/publication/1174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.