Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.04.2011, Blaðsíða 9
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 2. tbl. 87. árg. 2011 5
Þegar þetta er lesið eru formannskosningar afstaðnar. Einhver kann að spyrja
sig af hverju ekki er fjallað um þær hér í blaðinu. Tímasetningar fyrir formannskjör
samrýmast hins vegar illa útgáfuáætlun tímaritsins og því ekki tækifæri til að kynna
frambjóðendur í tímaritinu. Hugsanlega kemur þetta ekki að sök þar sem slík
kynning hefur lítið lesendagildi eftir kosningar. Vefurinn er hér betri miðill.
Það er eftirtektarvert að þetta var í fyrsta sinn frá stofnun félagsins 1994 sem
frambjóðendur í formannskjöri voru fleiri en einn. Það reyndi því á lög félagsins og
reglur um formannskjör. Málið verður eflaust rætt á aðalfundinum og sagt verður
frá þeirri umræðu í Tímariti hjúkrunarfræðinga í haust.
Vegna tímasetninga hentar einnig illa að kynna á ítarlegan hátt umfjöllunarefni
aðalfundar í Tímariti hjúkrunarfræðinga. Til dæmis rennur skilafrestur fyrir tillögur
til lagabreytinga út eftir að þetta tölublað er farið í prentun. Sagt er hins vegar
frá helstu málum aðalfundar í grein í blaðinu og kynnt ný stefna félagsins í
heilbrigðismálum. Sú stefna hefur verið lengi í smíðum og breyst talsvert síðan
hún var fyrst kynnt í Tímariti hjúkrunarfræðinga fyrir ári. Nú stendur til að leggja
hana fyrir aðalfund og gott að sem flestir félagsmenn hafi kynnt sér efni hennar
fyrir fram.
Enn er fátt að segja um gang mála í kjaraviðræðunum. Launakjör félagsmanna
hafa lítið breyst síðastliðin ár eins og sjá má í niðurstöðum kjarakönnunar. Lítið
svigrúm er fyrir kjarabætur að sögn vinnuveitenda. Það er gömul saga og ný en
staðan er óvenjuerfið eftir bankahrunið. Ljóst er að þetta verður átakamál og
fjallað verður um kjarasamningana í tímaritinu þegar niðurstaðan liggur fyrir.
Þrátt fyrir þessa erfiðleika halda félagsmenn áfram að vinna vinnu sína, læra meira
og skrifa greinar um starfið og fræðin. Það sést glöggt í þessu tölublaði. Hér er
fjallað um mörg svið hjúkrunar og eflaust ýmislegt áhugavert fyrir alla lesendur.
Tímarit hjúkrunarfræðinga
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 540 6405
Bréfsími 540 6401
Netfang christer@hjukrun.is
Vefsíða www.hjukrun.is
Útgefandi: Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Sími skrifstofu 540 6400
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Christer Magnusson
Ritstjórnarfulltrúi
Sunna K. Símonardóttir
Tekið er á móti efni til birtingar á netfanginu
christer@hjukrun.is.
Leiðbeiningar um ritun fræðslu og fræðigreina er
að finna á vefsíðu tímaritsins.
Ritnefnd:
Auðna Ágústsdóttir
Brynja Ingadóttir
Dóróthea Bergs
Herdís Sveinsdóttir
Ingibjörg Jóna Friðbertsdóttir
Sigríður Skúladóttir
Ráðgjafi vegna handrits í ritrýni:
Árún K. Sigurðardóttir
Fréttaefni:
Aðalbjörg Finnbogadóttir og
Christer Magnusson
Ljósmyndir:
Christer Magnusson, Gyða Eyólfsdóttir,
Þór Gíslason, o.fl.
Próförk og yfirlestur:
Ragnar Hauksson
Auglýsingar:
Þórdís Gunnarsdóttir, sími 866 3855
Hönnun: Þór Ingólfsson, grafískur hönnuður FÍT
Prentvinnsla: Litróf
Upplag 4000 eintök
Pökkun og dreifing: Pósthúsið
TÍMI ÁKVARÐANA
Nú í vor er margt að gerast sem kallar á
ákvarðanatöku félagsmanna. Nýlega kusu
félagsmenn formann í allsherjarkosningu
og í maí er svo aðalfundur þar sem allir
félagsmenn hafa atkvæðisrétt. Í vændum
eru nýir kjarasamningar og verður kosið
um þá þegar þeir liggja fyrir.
Christer Magnusson.
Ritstjóraspjall