Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 27

Iðjuþjálfinn - 01.11.2007, Blaðsíða 27
IÐJUÞJÁLFINN 2 / 2007 • 27 ist þannig ekki eingöngu að stað­ setningu þjónustunnar heldur einnig að innihaldi hennar og eftirfylgd yfir í daglegt umhverfi barnsins. Eða eins og ein móðirin sagði: „Tveir tímar í sjúkra þjálfun eru handónýtur tími ef barnið situr restina af vikunni í hand­ ónýtum stól.“ Fram komu nokkur dæmi um að staðsetning í nærumhverfinu væri þó ekki nægjanleg til að tryggja teymis­ vinnu og yfirfærslu þjálfunaratriða yfir í daglegt líf. Sjúkraþjálfari 10 ára drengs hafði haft aðstöðu í skólanum um nokkurt skeið. Þjálfunin fór hins vegar fram í lokuðu rými og þjálfarinn hafði takmarkað samráð við starfslið skólans um aðgengismál, vinnustöðu barnsins, eða leiðir til að auka þátttöku og virkni þess í skólanum. Þótt hagræði væri að því að þjónustan færi fram innan veggja skólans þá tryggði það eitt og sér ekki samvinnu, yfirfærslu þekkingar eða þau vinnubrögð sem for eldrar óskuðu almennt eftir. Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkis- ins Foreldrar sex barna lögðu þunga áherslu á mikilvægi GRR og fannst þjónustan þar ómetanleg. Þeir óskuðu jafnframt eftir meiri eftirfylgd og þjónustu frá GRR og nefndu í því sam­ bandi að erfiðleikarnir ykjust iðulega eftir að í grunnskólann kæmi. „Þeir breytast, verða öðru vísi. Maður þarf að berjast meira fyrir hlutunum og alltaf vera að tuða,“ sagði móðir 9 ára drengs með CP. Börnin sex höfðu ýmist flóknar þarfir, svo sem vegna umfangsmikillar skerðingar eða hrörn­ unarsjúkdóma, eða þau bjuggu úti á landi þar sem fagþekking var af skorn­ um skammti. Lýsing móður 12 ára drengs með CP er dæmigerð fyrir frásögn þessara viðmælenda: Ég sé sterka móðurstöð eins og við höfum í Reykjavík sem sinnir að hluta til öllu land­ inu og síðan þá minni stöðvar út um landið sem gætu tekið og rekið málið kannski meira. Móðir 10 ára drengs með umfangs­ mikla hreyfiskerðingu sagði: Hún (Greiningarstöðin) hefur gjör samlega bjargað mér. Ég sæi þetta ekki til enda ef hún væri ekki til staðar. Það get alveg ég sagt þér. Hún er búin að ganga í mörg mál fyrir okkur og hefur gert okkur mjög gott ... Ef eitthvað bjátar á þá er það Greiningar­ stöðin. Hún gengur í málin, athugar þetta og pælir í þessu, bendir mér á. Fram kom ánægja með eftirlits hlut­ verk mótttakna fyrir börn með klofinn hrygg og tauga­ og vöðva sjúkdóma en einnig nokkur gagnrýni á tilhögun þeirra, svo sem að barnið væri þar til sýnis fyrir framan fjölda fólks. Foreldr­ um barna með CP var hins vegar tíðrætt um að eftirfylgd skorti eftir 6 ára aldurinn. Þá töldu við mælendur brýnt að þjálfarar GRR og þjálfarar í nærumhverfinu kæmu sér saman um áherslur og aðferðir, annars væri hætt við að foreldrar lentu á milli steins og sleggju sem boðberar upplýs inga. Einkenni góðrar þjónustu Í umræðu um góða þjónustu bar hæst að þarfir fjölskyldunnar væru hafðar í fyrirrúmi, hjálp til sjálfshjálpar, fagmennsku þjálfara og samhæfingu þjónustukerfa. Undir þessi þemu falla atriði eins og leiðsögn um kerfið og að unnið sé skipulega í núinu með fram­ tíðina í huga. Fjölskyldan í fyrirrúmi Fram komu sterkar óskir um að þjónusta iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara tæki aukið mið af óskum og þörfum fjölskyldunnar. Þarfirnar voru þó breyti legar og langtímagögnin leiddu í ljós að það sem var að gerast í lífi barns og fjölskyldu hverju sinni hafði mikil áhrif á upplifun þeirra og óskir um tilhögun þjónustu. Sumir vildu taka þátt í öllu sem barnið varðaði en aðrir að þjálfarar héldu utan um tiltekin mál og fylgdu þeim eftir. Flestir vildu taka virkan þátt í ákvarðanatöku en ekki bera meginábyrgð á þjónustunni, hvorki vera teymisstjórar í eigin málum né boðberar milli kerfa. Þeim fannst brýnt að fá greinargóðar upplýsingar, vega þær og meta, en taka sjálf upp­ lýstar, sjálfstæðar ákvarðanir. Skortur á skýrum boðleiðum og skilgreiningu á hlutverkum og ábyrgð torveldaði hins vegar oft málin eins og fram kom hjá móður barns á 12. aldursári: „Maður veit ekki alltaf hvenær maður er að taka fram fyrir hendurnar á fagfólki og hvenær maður á að hafa frumkvæði og hvort maður á að hafa frumkvæði. Mér finnst það svolítið erfitt.“ Nokkur munur var á svörum foreldra eldri og yngri barna í þessu sambandi. Foreldrar yngri barnanna voru að jafnaði ógagnrýnni á þjónustu þjálfara. Foreldrar hinna eldri komu oft með hugmyndir og dæmi um það hvernig þjálfarar og fagfólk gætu unnið saman. Móðir drengs í 7. bekk tók svo til orða: Ég sé fyrir mér að í byrjun hvers árs að það sé sest niður með fjölskyldunni, með barninu og fjölskyldunni, og það sé farið yfir hvar eru þarfirnar. Að það séu klár markmið sem verið er að vinna að. Og til þess að þetta sé hægt þurfum við þjálfara sem eru vel inni í því sem er að gerast í dags daglega lífinu hjá fólki. Að þeir geri sér grein fyrir því hvar þörfin er. Og í þessum markmiðum sé þá líka stilling á stólunum í skólanum, að geng ið í skól­ anum, aðgengið á heimil inu, sturtu aðstaða, klósettaðstaðan, rúmið, matar aðstaðan, hvern ig er eld húsið skipu lagt? Og svo fram­ vegis. Þetta snerti r alls staðar ... Þetta þýðir það að þjálfarinn þarf að vera mjög mikið inni á heimilinu eða í skólan um. Í viðtölunum endurspeglaðist oft að þeir foreldrar sem voru hvað ánægðastir með þjónustuna virtust hafa lag á setja fram sitt mál á þann veg að á þá væri hlustað. Aðrir stóðu verr að vígi og voru að sama skapi ekki eins ánægðir. Móðir telpu sem stundaði nám á miðstigi lýsti reynslu sinni af þjónust­ unni fyrstu árin og því hvernig hún tók loks málin í sínar hendur og ákvað að treysta á eigin dómgreind: Mér fannst allar þessar kvaðir á manni, að maður ætti alltaf að vera að gera þetta og hitt fyrir barnið ... Svo bara hætti ég þessu, þú veist. Ég fann sjálf best hvað var best fyrir hana og hérna. Ég var alltaf ósátt við einhverja göngugrind sem hún var með áður en hún byrjaði að labba, fannst hún alltaf eins og hengilmæna í henni og alveg fáránlegt að sjá barnið í þessu. Svo fór ég í einhverja dótabúð og fann þar dúkkukerru. Og hún stóð teinrétt með kerruna og labbaði og hún var svona þriggja, fjögurra ára þegar þetta var. Og eftir þetta varð þessi dúkkukerra göngugrindin hennar ... Maður verður bara að finna þetta svolítið á sér sjálfur. Foreldrar óskuðu almennt eftir meiri upplýsingum og frumkvæði frá iðju­ þjálfum og sjúkraþjálfurum en að fjöl­ skyldurnar hefðu frelsi til að velja, hafna og ráða för. Hjálp til sjálfshjálpar Foreldrar elstu barnanna lögðu áherslu á mikilvægi þess að þjálfarar efldu barnið og fjölskyldu þess til dáða, og að styrkleikar hverrar fjölskyldu

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.