Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 62

Þjóðmál - 01.06.2012, Blaðsíða 62
 Þjóðmál SUmAR 2012 61 innlán sem þeir afla . Greinarmunur yrði gerður á innstæðureikningum sem væru lausir (rafkrónur) og innlánsreikningum sem yrðu bundnir til einhvers tíma . Krónur, sem geymdar væru á óbundnum innstæðureikningum, myndu ekki bera vexti . Bönkum væri skylt að flytja þær krónur viðstöðulaust á geymslureikning í Seðla banka . Bankar gætu því ekki lánað út þær rafkrónur sem væru á óbundnum reikn ing um . Peningar, sem lagðir væru inn á bundna innlánsreikninga, myndu hins vegar bera vexti . Bankar myndu væntanlega bjóða hækk andi vexti eftir lengd binditíma . Innlánsreikningar gætu verið bundnir til umsamins dags eða uppsegjanlegir með til­ tekn um fyrirvara . Innlán á bundnum reikn­ ingum gætu bankar lánað út . Peningastefnunefnd, skipuð óháðum sér­ fræðingum, myndi reglulega leggja mat á hvort nauðsynlegt væri að auka peninga­ magn í umferð til að mæta þjóðhags leg um mark miðum . Peningastefnunefnd starf aði sam kvæmt lögum en myndi ekki lúta fram­ kvæmda valdinu . Þegar peningastefnunefnd tæki ákvörðun um að auka þyrfti peningamagn, væri nýjum rafkrónum einfaldlega bætt inn á innstæðureikning ríkissjóðs . Viðbótin væri ekki lán til ríkisins, heldur nýir peningar sem ríkið gæti notað til að mæta ríkisútgjöldum, til greiðslu ríkisskulda eða lækkunar á sköttum í samræmi við fjárlög . Stjórnvöld á hverjum tíma gætu haft sínar áherslur í þeim efnum . Aðlögun frá núverandi ástandi gæti farið fram með ýmsum hætti . Hér er Ævintýrið um glerkúlurnar Fyrir langa löngu og langt í burtu var þjóð sem þekkti ekki gjaldmiðla . Landsmenn neyddust því til að stunda vöruskipti og það var auðvitað mjög lýjandi . Fólkið greiddi kóngi sínum skatt með því sem það gat framleitt: brauði, smíðagripum, ull, geitum og svo framvegis . Svo bar við að mjög klókur maður kom til konungs og kvaðst hafa verulega góð tíðindi . Brátt gæti kóngurinn og þegnar hans keypt hvað sem þeir vildu fyrir handhægar glerkúlur . Skilyrðin væru aðeins tvö . Í fyrsta lagi að kóngur setti í lög að allir skyldu greiða skatta sína með glerkúlum . Í öðru lagi að klóki maðurinn fengi það verkefni að lána landsmönnum glerkúlurnar . Kóngurinn klappaði saman lófunum yfir sig hrifinn og lögin voru sett . Allt var gert eins og klóki maðurinn hafði lagt fyrir og viti menn, allir gátu verslað fyrir glerkúlur og vöruskipti voru úr sögunni . Sannarlega góður endir, en einkum þó fyrir klóka manninn . Hann innheimti vexti af öllum glerkúlum í landinu og það liðu ekki mörg ár áður en hann var orðinn ríkari en sjálfur kóngurinn . – Úti er ævintýri . –
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.