Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 7

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 7
7 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags fundist hér við land. Rannsóknir hafa sýnt að gróliðir geta myndað gró ef hiti er hærri en 10°C þegar dagur er stuttur, þ.e. sól skín skemur en 12 tíma daglega.34 Það hendir stöku sinnum hér við land að hita- stig sjávar helst hærra en 10°C eftir haustjafndægur en sá hiti varir e.t.v. ekki nógu lengi til að plönturnar nái að fullþroska gró, þau spíri og upp vaxi kynliðir. Víða í Norður-Atlantshafi þar sem rauðflóki hefur komið sér fyrir er hann algengur en hér við land er hann sjaldgæfur, a.m.k. ennþá, og getur því ekki talist ágengur. Hafkyrja, Codium fragile (Suringar) Hariot Grænþörungurinn hafkyrja (Codium fragile) (6. mynd) fannst fyrst við Ís- land árið 1974 í Hvalfirði35 og síðar einnig á Vatnsleysuströnd og við Hafnir á utanverðu Reykjanesi.33 Í Hvalfirði og við Hafnir vex hafkyrja á hrúðurkörlum á grunnu vatni, neðan fjörunnar, en á Vatnsleysu- strönd vex hún í fjörupollum, allra efst í fjörunni. Hafkyrja vex á vorin upp af þráðum eða þalbrotum sem hafa lifað af veturinn. Hún vex yfir sumarið og verða stærstu plöntur um 15 cm háar. Hafkyrja hverfur svo aftur sjónum að hausti en eftir verða þræðir á botninum sem nýjar Athuganir hér á landi hafa hins vegar sýnt að þar sem sagþang hefur náð fótfestu verður það ríkj- andi í neðri hluta fjörunnar og þang- tegundir sem fyrir eru víkja.30,31 Í því ljósi er sagþangið talin ágeng tegund. Rauðflóki, Bonnemaisonia hamifera Hariot Kyrrahafstegundin rauðflóki (Bonnemaisonia hamifera) fannst fyrst við strendur Evrópu í lok 19. aldar. Frá Evrópu barst tegundin til aust- urstrandar Norður-Ameríku þar sem hún fannst fyrst árið 1927. Við Ísland fannst rauðflóki (5. mynd) fyrst á árunum milli 1964 og 1975. Tegundin fannst þá í Dýrafirði þar sem hún óx á skúfþangi (Fucus distichus).32 Síðar, árið 2004, fannst þörungurinn einnig í Hvalfirði þar sem hann óx neðan fjöru á kóral- þörungnum Lithothamnion sp.33 Í lífsferli rauðflóka eru tveir ætt- liðir, gróliður og kynliður, og eru þeir ólíkir útlits. Gróliðurinn er gerður úr fíngerðum, greinóttum þráðum sem ýmist eru skriðulir eða mynda litla skúfa, en kynliður- inn er stærri og myndar þykkari greinar. Einungis gróliðurinn hefur plöntur spretta upp af næsta vor. Ekki hafa fundist æxlunarfæri á haf- kyrju hér við land. Rannsóknir hafa sýnt að hafkyrja getur myndað æxl- unarfæri ef hitastig sjávar er hærra en 12°C.36 Hér við land verður sjávarhiti oft hærri í lok sumars inni á fjörðum suðvestan- og vest- anlands.37 Því gæti hafkyrja hugs- anlega æxlast hér við land í heitum árum eða a.m.k. þroskað æxlunar- færi. Talið er að hafkyrja hafi borist úr Kyrrahafi í Norður-Atlantshaf á 19. öld. Hafkyrja er mjög breytileg í lögun og benda rannsóknir til að líklega sé um að ræða tvær undir- tegundir, fragile og atlanticum. Talið er að einungis undirtegundin fragile sé aðflutt úr Kyrrahafi og atlanticum hafi þróast við Atlantshafsstrendur Evrópu.38 Víða á útbreiðslusvæði sínu í Norður-Atlantshafi er hafkyrja ágeng. Hún hefur sums staðar náð miklum þéttleika og rutt burt innlendum tegundum. Einnig hefur hún valdið tjóni við sjávarnytjar, svo sem þar sem hún hefur tekið sér bólfestu á skelfiski.39,40 Hér við land er hafkyrja hins vegar hvergi algeng. Rúm 40 ár eru liðin síðan hún fannst hér og hún er enn sjaldgæf. Hafkyrja getur því ekki talist ágeng nú um stundir, hvað sem verður í framtíðinni. 6. mynd. Hafkyrja (Codium fragile). Ljósm./Photo: Svanhildur Egilsdóttir. 5. mynd. Rauðflóki (Bonnemaisonia ha- mifera). Ljósm./Photo: Svanhildur Egilsdóttir.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.