Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 2015, Síða 8

Náttúrufræðingurinn - 2015, Síða 8
Náttúrufræðingurinn 8 Krabbadýr Grjótkrabbi, Cancer irroratus Say, 1817 Grjótkrabbi (Cancer irroratus) (7. mynd) fannst fyrst hér við land árið 2006, í Hvalfirði.41 Þetta var jafnframt fyrsti fundur tegundar- innar utan náttúrulegs útbreiðslu- svæðis síns meðfram austurströnd Norður-Ameríku.42 Þessi tiltölulega stóra krabbategund, með skjaldar- breidd allt að 15 cm, er talin hafa borist hingað með kjölfestuvatni.41 Hærri sjávarhiti við Ísland á undan- förnum áratugum43 hefur hugs- anlega auðveldað landnámið. Frá landnámi hefur grjótkrabbinn breiðst hratt út með vesturströnd landsins og norður fyrir land og hefur nú numið um 50% af strand- lengju Íslands. Í hinu nýja búsvæði grjótkrabbans keppa fáar krabba- tegundir við hann um fæðu, aðal- lega bogkrabbi (Carcinus maenas) og trjónukrabbi (Hyas araneus). Þrátt fyrir að stutt sé liðið frá landnámi virðist grjótkrabbinn vera orðinn ráðandi tegund við suðvesturströnd landsins, hvort sem litið er til full- orðinna krabba eða lirfa í uppsjó, og hefur því tekið sér bólfestu hér við land.41 Áætlaður þéttleiki grjót- krabba hefur verið metinn um 0,12 krabbar/m2 á mjúkum botni,44 sem er sambærilegur þéttleiki og í upp- runalegum heimkynnum krabbans í Norður-Ameríku.45 Rannsóknir sem gerðar hafa verið á grjótkrabba sýna að erfða- breytileikinn er mikill við Ísland, svipaður og hann er í stofnum í Ameríku.46,47 Enn er lítið vitað um áhrif grjótkrabba á botndýrafánu við Ísland. Sé tekið mið af stærð grjót- krabbans og ósérhæfðu fæðuvali er ljóst að hann er fær um að hafa marktæk áhrif á fjölda botndýra- tegunda með afráni, samkeppni um búsvæði eða í gegnum óbeina fæðu- þrepsmögnun (e. trophic cascade). Stærð og þéttleiki fullorðinna grjótkrabba, fundur kvendýra með egg og allra lirfustiga í svifi, mikill erfðabreytileiki og hröð útbreiðsla tegundarinnar með ströndum landsins benda til þess að hinn nýi stofn grjótkrabba sé heilbrigður og þrífist vel við Ísland. Miðað við núverandi vitneskju bendir margt til að grjótkrabbinn hafi burði til að verða að ágengri tegund hér við land. Engar beinar rannsóknir hafa þó enn farið fram á áhrifum krabbans á vistkerfi botnsins. Sandrækja, Crangon crangon (Linnaeus, 1758) Sandrækja (Crangon crangon) (8. mynd) fannst fyrst við Ísland árið 2003 á Álftanesi.48 Í ljósi fundar tegundarinnar á norðurheim- skautssvæðum og tilfallandi fundar tegundarinnar við Ísland á seinni hluta 19. aldar49,50 er áhugavert að landnáms skuli ekki hafa orðið vart fyrr. Náttúruleg heimkynni sand- rækju eru við vesturströnd Evrópu, í Miðjarðarhafi og Svartahafi50 og er hún oft í miklum þéttleika.51 Frá landnámi hefur sandrækjan breiðst hratt með suður- og vesturströnd landsins og hefur að auki fundist við landið suðaustanvert.48,52 Þar sem lirfustig sandrækju varir mjög stutt er ólíklegt að hún hafi borist yfir hafið með straumum. Í ljósi þess og útbreiðslusögu tegundar- innar hér við land er líklegast að hún hafi borist hingað með kjöl- festuvatni.48 Vistfræðileg áhrif sand- rækju hér við land hafa ekki verið metin en þéttleiki hennar hefur verið mældur allt að 67 einstaklingar/m2 48 og hefur tegundin náð hér fótfestu. Sandrækjan er rándýr, virkust á nótt- unni, og ræðst fæðuval af þéttleika aðgengilegrar fæðu.53 Sandrækja er talin áhrifamikill afræningi skarkola- 8. mynd. Sandrækja (Crangon crangon). Ljósm./Photo: Hans Hillewaert. 7. mynd. Grjótkrabbi (Cancer irroratus). Ljósm./Photo: Óskar Sindri Gíslason.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.