Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 50

Náttúrufræðingurinn - 2015, Page 50
Náttúrufræðingurinn 50 ágætis fyrirstaða og virkar oft svipað og veggur sem skýlir Íslandi og nágrenni þess fyrir svellköldu og þurru heimskautalofti frá víð- áttum Norður-Kanada. Það dugði þó ekki til í þetta skiptið. Á aust- urströnd Grænlands varð vart við piteraq, sem er skyndilegur hvass og kaldur vindur frá jöklinum og út firðina, bæði í Tasiilaq og Kulusuk, en vindstyrkur var nokkuð lægri en í kröftugum piteraq.10 Háloftaröstin knúði kalda loftið yfir Grænland og á slíkri hraðferð hefur jökullinn ekki verið mikil fyr- irstaða. Aðfaranótt 10. janúar sýndu veðurkort greinilega að kalda loftið var farið að berast yfir jökulinn (5. mynd). Á veðurtunglamyndum teknum snemma morguns má sjá háský við austurströnd Grænlands (1. mynd). Slík stök háský við fjall- garða, eða aðrar fyrirstöður, gefa til kynna að á svæðinu sé þvinguð lóðrétt hreyfing, þ.e. að ómettað loft úr neðri loftlögum sé lyft það hátt upp að loftrakinn þéttist, en við það myndast há ísský. Ennfremur má á myndinni sjá skýjaslæður yfir jökl- inum samsíða vestanáttinni. Þar sem jökulinn þrýtur streymdi þetta kalda og þar af leiðandi þunga loft niður í átt að sjávarmáli. Við það hlýn- aði það þurrinnrænt (1°/100 metra lækkun), þornaði og ský gufuðu upp. Afturábak-útreikningar, þ.e. þegar ferli loftagnar er fylgt aftur á bak í tíma, sýna að loftið yfir Vesturlandi síðdegis var að mestu leyti í 800–1500 m hæð yfir Labradorhafi eða Græn- landsjökli 24 tímum fyrr. Það loft sem þá var nærri yfirborði skammt austan jökulsins var því í allt að 4 km hæð yfir sjávarmáli þegar það streymdi yfir jökulinn (6. mynd). Á 7. mynd má sjá mældan vind- hraða á Grænlandshafi um hádeg- isbil. Þá var töluverður vindur á öllu Grænlandshafi, víðast yfir 15 m/s (30 kt) en sjálf lágröstin var samt nokkuð afmörkuð. Þar var vindstyrkur yfir 20 m/s (40 kt) og í miðju rastarinnar yfir 25 m/s (50 kt). Sjávarhiti á þessu svæði var nokkuð hár, eða yfir 6°C, en lofthiti 7. mynd. Fjarmæling á vindi í 10 m h.y.s. á Grænlandshafi, 10. janúar 2012 kl. u.þ.b. 11.50–13.30. Mælt með ASCAT-mælitækinu um borð í veðurtunglinu METOP-A. Vindhraði er í hnútum, fjólublár litur táknar 40 hnúta (~20 m/s) vindhraða. Gögn frá NOAA , bandarísku lofts- og hafrannsóknastofnuninni (National Oceanic and Atmospheric Administration). – Winds over the ocean at 10 m a.s.l. 10 January 2012 at about 11:50–13:30 UTC measured by the Adcanced Scatterometer (ASCAT METOP-A). The wind speed is in knots, purple colour represents 40 kt (~20 m/s). Data from NOAA (National Oceanic and Atmospheric Administration). 8. mynd. Yfirborðshiti sjávar og geislunarhiti lands (°C), 6 tíma spá frá Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa, gildistími 10. janúar 2012 kl. 06. – The sea surface temperature and radi- ation temperature of land (°C), a 6 hour forecast from the European Centre of Medium Range- Weather Forecasts valid 10 January 2012 06 UTC.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.