Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Page 4
4 Fréttir Helgarblað 6.–9. nóvember 2015 Láttu þér líða vel Opnunartími Virka daga frá kl. 7.00 - 20.00 Laugardaga frá kl. 9.00 - 18.00 Sunnudaga frá kl. 10.00 - 14.00 meccaspa.is Hótel Saga, Hagatorgi • 107 Reykjavík • Sími: 511 2111 og 862 0822 (utan opnunartíma) Gildir f yrir alla r tegund ir af nu ddi við afhend ingu þe ssa miða. 20% afsláttu r Barnið fæddist á baðherberginu Tveir sjúkraflutningamenn á höf­ uðborgarsvæðinu þurftu að hafa sig alla við aðfaranótt fimmtu­ dags þegar útkall barst vegna konu með hríðir í austurborginni sem þurfti að komast á sjúkrahús. Þegar sjúkraflutningamennirn­ ir mættu á heimili konunnar var hins vegar enginn tími til að flytja hana eitt né neitt og tóku þeir á móti barninu inni á baðherbergi. Mbl.is greindi frá. Guðmund­ ur Guðjónsson, annar sjúkra­ flutningamannanna sem fóru í útkallið, segir að skammt hafi verið orðið á milli hríða og að konan hafi verið inni á baðher­ bergi þegar hann og samstarfs­ maður hans mættu á vettvang auk ljósmóður sem var á bakvakt. „Og eftir litla stund og skoðun var orðið ljóst að barnið myndi fæðast á staðnum,“ segir Guð­ mundur. Atburðarásinni er lýst þannig að konan, sem er á þrítugsaldri, vaknaði skyndilega og var með hríðir. Hún gerði sig þá klára til að fara á sjúkrahús en þótti ör­ uggast að hringja á sjúkrabíl. Að sögn Guðmundar gekk allt mjög hratt fyrir sig en um fimm mínútum eftir að sjúkrabíll­ inn kom á staðinn var lítil stúlka fædd. „Ég mátti hafa mig allan við að grípa hana,“ segir hann, en allt gekk að óskum og heilsast móður og barni vel. Átta mánaða þögn RÚV Kæra DV til ÚU vegna starfslokasamninga RÚV Þ ann 10. nóvember eru liðnir átta mánuðir frá því að frestur RÚV til svara Úrskurðarnefnd um upplýsingamál (ÚU) rann út. RÚV hefur ekki svarað erindi nefndarinnar, þrátt fyrir lögboðna skyldu þar um. Kærandi í málinu er DV og var kæran móttekin af ÚU 25. febrúar á þessu ári. Málavextir eru þeir að DV fjallaði um mikla aukningu á kostnaði við yfir stjórn félagsins á tímabilinu sept­ ember 2013 til ágústloka 2014. Í frétt DV 30. janúar á þessu ári sagði: „RÚV greiddi 60,2 milljónir króna í starfs­ lokagreiðslur vegna þeirra breytinga sem urðu á yfirstjórn félagsins á síð­ asta rekstrarári. Félagið greiddi sam­ tals 22,4 milljónir króna vegna starfs­ loka Páls Magnússonar, fyrrverandi útvarpsstjóra, en RÚV telur sér ekki heimilt að veita upplýsingar um frek­ ari sundurliðun á greiðslum til annarra fyrrverandi starfsmanna félagsins.“ DV sætti sig ekki við þessi svör og kærði málið til ÚU. Krefst DV þess að fá afhenta og sundurliðaða þá starfs­ lokasamninga sem RÚV gerði við stjórnendur félagsins. Í fyrradag barst svo DV bréf frá nefndinni þar sem sagði að RÚV hefði í engu sinnt til­ mælum nefndarinnar um að skila gögnum og að allar líkur væru á að nefndin tækið málið til efnislegrar meðferðar á næsta fundi sínum. n Svara engu RÚV svarar ekki nefndinni þrátt fyrir lögboðna skyldu. 27. janúar 2015 Telur störf meðeigenda ekki hafa áhrif á hæfi N ei, ég tel störf annarra lög­ manna ekki hafa áhrif á hæfi mitt innan ráðsins til að fjalla almennt um gjald­ eyrismál og gjaldeyris­ eftirlit innan bankans,“ segir Ingvi Hrafn Óskarsson, lögmaður og vara­ maður í bankaráði Seðlabanka Ís­ lands, aðspurður hvort hann telji ekki óheppilegt að hann hafi lagt fram tillögu í ráðinu um að hafin yrði rannsókn á framkvæmd gjald­ eyrisreglna bankans í ljósi þess að tveir samstarfsmenn hans og með­ eigendur hafa sinnt lögmennsku í nokkrum af stærstu dómsmálum síðustu ára sem rekja má til reglna bankans. Samherji tilefnið DV greindi á þriðjudag frá því að Ingvi hefði ásamt Ragnari Árnasyni og Jóni Helga Egilssyni, hagfræðing­ um og bankaráðsmönnum Seðla­ bankans, lagt fram tillögu í ráðinu í september síðastliðnum um að rannsókn á framkvæmd gjaldeyris­ reglna bankans yrði hafin. Ingvi sat á þeim tíma fundi bankaráðsins í fjarveru Þórunnar Guðmunds­ dóttur, formanns ráðsins, en hún hafði þá vikið sæti vegna umfjöllun­ ar þess um ákvörðun embættis sér­ staks saksóknara að fella niður mál á hendur sjávarútvegsfyrirtækinu Samherja vegna meintra brota þess á lögum um gjaldeyrismál. Ástæðan var sú að Samherji er viðskiptavinur Lex lögmannsstofu þar sem Þórunn vinnur. Ingvi tók þá sæti í ráðinu og segir í skriflegu svari til DV að um­ fjöllun ráðsins um málefni Samherja hafi verið tilefni þess að hann studdi tillöguna sem síðar leiddi til þess farið var fram á rannsókn á fram­ kvæmd gjaldeyrisreglnanna. „Ég lagði tillöguna fram í samráði við nefnda bankaráðsmenn [ Ragnar Árnason og Jón Helga Egilsson, innsk. blm.]. Samherjamálið var til­ efni tillögunnar og tillagan tengdist umfjöllun um það mál,“ segir í svari Ingva sem hann sendi DV eftir að blaðið óskaði eftir viðtali við hann vegna málsins. „Eðlilegur þáttur“ Ingvi Hrafn er einn eigenda lög­ mannsstofunnar Lögmenn Lækjar­ götu. Þar starfar hann með lög­ mönnunum Reimari og Birgi Tjörva Péturssonum sem eru einnig hlut­ hafar í stofunni. Reimar var lögmað­ ur íslenska eignaumsýslufélagsins ALMC, gamla Straums, í dómsmáli sem má rekja til ágreinings stjórn­ enda þess við Seðlabankann vegna heimildar félagsins til að inna af hendi greiðslur í erlendri mynt til hluthafa sinna. Seðlabankinn neit­ aði félaginu um að greiða hluthöf­ unum en Héraðsdómur Reykjavík­ ur féllst í vor á kröfu ALMC um að sú ákvörðun yrði felld úr gildi. Reimar er einnig lögmaður Gísla Reynissonar sem er einn ákærðu í Aserta­málinu svokallaða sem sér­ stakur saksóknari áfrýjaði í byrjun árs til Hæstaréttar í kjölfar sýknu­ dóms í héraði. Í því máli var Gísla og þremur öðrum gefið að sök að hafa brotið gegn fjármagnshöftum með ólögmætum gjaldeyrisviðskipt­ um. Birgir Tjörvi er lögmaður Ursus ehf., fjárfestingafélags Heiðars Guð­ jónssonar, sem hefur stefnt bank­ anum og Eignasafni Seðlabanka Ís­ lands (ESÍ) vegna meints tjóns sem fjárfestirinn telur sig og félagið hafa orðið fyrir vegna söluferlis Sjóvár árið 2010. Seðlabankinn kom í veg fyrir að Heiðar fengi, ásamt öðrum fjárfestum, að kaupa tryggingafé­ lagið vegna rannsóknar gjaldeyris­ eftirlits bankans á skuldabréfaútgáfu Ursus sem bankinn taldi fara í bága við reglur hans um gjaldeyrismál. Sérstakur saksóknari tók ákvörðun um að hætta rannsókn málsins í febrúar 2012. „En þau mál sem þú vísar til voru ekki til sérstakrar meðferðar á fund­ um sem ég hef setið. Aukinheldur er erfitt að sjá hvað getur verið athuga­ vert við tillögu um óháða úttekt, sem er eðlilegur þáttur í eftirlitshlutverki bankaráðsins,“ segir Ingvi Hrafn. n Ingvi Hrafn vildi rannsókn á gjaldeyrisreglum þrátt fyrir tengsl við mál sem má rekja til þeirra „Samherjamálið var tilefni tillögunnar og tillagan tengdist um- fjöllun um það mál. Kom að tillögunni Ingvi Hrafn Óskarsson er varamaður í bankaráði Seðlabankans og sat fundi þess í septem- ber í fjarveru Þórunnar Guð- mundsdóttur, formanns ráðsins. Mynd SIgtryggur ArI Haraldur guðmundsson Hörður Ægisson haraldur@dv.is / hordur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.