Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2015, Side 37
Helgarblað 6.–9. nóvember 2015 Menning 37 Úr listheiminum Ný bók Arnaldar Indriða­sonar, Þýska húsið, kom út á dögunum og verður vafa­ laust ein sú vin­ sælasta í jóla­ bókaflóðinu í ár. Forlagið kynnir Þýska húsið sem fimm stjörnu bók og vitnar þar í gagn­ rýni danska dagblaðsins Poli­ tiken. Það má þó velta því fyrir sér hvort ekki sé um misvísandi auglýsingu að ræða því ólíkt Ís­ landi þar sem fimm stjörnur eru hæsta einkunn hefur skap­ ast sú hefð í Danmörku að gefa á bilinu núll til sex stjörn­ ur. Fimm stjörnur eru því ekki nema tæpt fullt hús í Danaveldi. Það er útséð með að íslenski skálinn á Feneyjatvíær­ingnum verði opnaður aft­ ur, enda lýkur hátíðinni síðar í mánuðinum. Illugi Gunnars­ son, ráðherra menningarmála, sem hefur ekki viljað beita sér í málinu hingað til, sagði á Al­ þingi í vikunni að lokunin hafi verið ígildi ritskoðunar af hálfu Feneyjaborgar. Hann sagði þó erfitt fyrir menntamálaráð­ herra í einu landi að skipta sér af sveitarstjórnarmálum í öðru. Birgitta Jónsdóttir furðaði sig á því að enginn íslenskur ráða­ maður, hvorki ráðherra menn­ ingarmála né utanríkismála, væri tilbúinn að koma því skýrt á framfæri að Íslendingar væru ekki sáttir við að vegið væri að tjáningarfrelsinu. Og það er meira að frétta frá Feneyjum. Samkvæmt heimildum DV mun Santa Maria della Misericordia, kirkjan sem hýsti Moskuna eftir Christopher Büchel, brátt fá nýtt hlutverk en þar verður opnaður veitinga­ staður á næstunni. Hönnunarmiðstöð Íslands hefur verið dugleg að berjast fyrir því að vinna hönnuða sé metin að verðleik­ um, þeir fái virðingu og laun fyrir vinnu sína. Það vakti því athygli listheimsins þegar aug­ lýst var eftir vefsmiðum til að vinna fyrir miðstöðina í sjálf­ boðavinnu. Fyrir utan reynslu, tengsl og tækifæri eru launin sem eru í boði fyrir vinnuna „gott kaffi og misgott grín.“ Það er varla fréttnæmt leng­ur að íslenskar kvikmyndir vinni til stórra verðlauna á erlendum kvikmyndahátíðum, svo mikil er velgengnin. Um síð­ ustu helgi bættust við nokkrar rósir í hnappagat íslenskra kvik­ mynda þegar kvikmyndin Hrútar hlaut þrenn verðlaun (besta myndin, besti leikstjóri og verð­ laun æskunnar) og kvikmyndin Fúsi ein (besti leikarinn) á Valladolid­hátíðinni á Spáni. T aktsmiðurinn og rapparinn Lord Pusswhip leiðir okkur ljósmyndarann i gegnum vinnustofu listamanns á leið í stúdíóið. Vinnustofan er upp­ full af höggmyndum: koparmann­ eskjum í fullri stærð, höndum, fótum, hausum og öðrum líkamspörtum. Pusswhip er hávaxinn og renglulegur með axlarsítt svart hár, í svörtum bol merktum einhverju dauðarokkbandi – ég skil ekki skriftina. Í bakherberginu er stúdíóið; Apple­fartölvur, hátalar­ ar, hljóðgervlar og nokkrir stólar. Þar situr samstarfsmaður Pusswhip, taktsmiðurinn Vrong brýtur saman geisladiskahulstur og vefur einhvers konar sígarettu. Lord Pusswhip sem heitir Þórður Ingi Jónsson samkvæmt Þjóðskrá er nýbúinn að gefa út sína fyrstu breið­ skífu, Lord Pusswhip is wack hjá bresku útgáfunni Cosmic Seagull Records. Platan inniheldur 16 lög þar sem fjölmargir gestalistamenn – íslenskir, bandarískir og breskir – ljá plötunni rödd sína og rappa eða syngja yfir myrka hugvíkkandi takt­ ana. Charles Manson og hryllingsmyndir Þórður gerði fyrsta hiphop­taktinn sinn með Vrong þegar þeir voru í átt­ unda bekk, en þeir höfðu áður spil­ að saman í pönkhljómsveitinni New Race með tveimur öðrum félögum sínum. „Fyrsti takturinn sem við gerðum var reyndar ekkert langt frá því sem ég er að gera núna. Við tók­ um hryllingsmyndalag, bættum við trommum og Charles Manson að tala. Árið 2007 flutti ég svo til Kaliforníu með fjölskyldunni minni en þar gerði ég lítið annað en að hlusta á nýja tón­ list, mjög „extreme“ og öfgakennda tónlist – eins og til dæmis The Locust,“ segir hann og bendir á bol blaða­ manns sem er merktur þessari banda­ rísku grindcore­sveit. „Þegar ég kom heim var vina­ hópurinn byrjaður að rappa og gera aðra hluti sem hann hefði kannski ekki átt að vera að gera. Á þess­ um tíma vorum við mjög mikið að pæla í „horrorcore“­böndum eins og Gravediggaz, og svo mjög abstrakt hiphopi eins og Antipop Consortium, Company Flow, Cannibal Ox og Def Jux en líka bara öfgakenndri tónlist úr öllum áttum. 2010 eða 2011 byrjaði ég svo að gera takta af einhverju viti og þá kom nafnið.“ Hvað hefur þessi plata verið lengi í smíðum? „Ég tók ákvörðun um að gera þessa plötu þegar ég var í lýðháskóla í Dan­ mörku þar síðasta sumar. Fyrsta lagið á plötunni var fyrsta lagið sem ég ákvað að yrði með. Lagið sem ég gerði með Steinunni DJ Flugvél og Geimskip er alveg tveggja ára, svo það eru nokkur frekar gömul lög þarna. Það tók nefni­ lega frekar mikinn tíma að senda fólki takta og fá loforð um að það myndi rappa yfir þá. Fólk segir alltaf „já já, ég skal gera það í næstu viku,“ en svo tekur það mun lengri tíma. En það var þess virði,“ segir Þórður. Gaman að ögra Hvað vilt þú að fólk upplifi þegar það hlustar á tónlistina þína? „Tónlistarvefurinn The Quiet­ us var að mæla með hljómsveitum á Airwaves og skrifaði um tónlistina að hún segði „fuck you for listening.“ Ég veit eiginlega ekki hvort það sé gott eða slæmt. En ég fíla list sem er „con­ frontational.“ Án þess að vera eitt­ hvað að „satanísera“ geðveikt mikið, þá finnst mér gaman að ögra. Ég byrj­ aði upphaflega í pönki og ég er sáttur ef það skín í gegn. Mér finnst það oft vanta, því þótt það sé óneitanlega mikið í gangi í íslensku tónlistar­ og listasenunni almennt miðað við hvað landið er lítið, verður oft ákveðið and­ leysi hérna sem ég veit ekki alveg hvernig er best að lýsa. Það er stund­ um eins og það sé nóg að gera bara eitthvað og ef það er sett fram í réttu samhengi þá er það hyllt, þó að það sé bara hlutlægt ógeðslega lélegt. Það á jafn mikið við um hiphop­senuna og aðra tónlist,“ segir Þórður. „Ég held að textarnir mínir séu oft eitthvað sem fólk skilur ekki alveg. Þetta er eiginlega algjör andstæða til dæmis við GKR, sem er góður vinur minn. Hann sprakk upp frekar fljótt á dögunum með laginu Morgunmatur. Það er vel gert hjá honum, en það er meðal annars af því að hann er tilfinn­ inganæmur og er með texta sem allir geta tengt við – það fá sér allir morgun­ mat, það geta allir tengt við það. En ef þú tengir við Lord Pusswhip­textana þá er kannski bara eitthvað að.“ Súrt rapp í meginstraumnum Sjónrænt – á kynningarljósmynd­ um og plötuumslögum – birtist Lord Pusswhip einhvern veginn á mörkum dauðarokks og hiphops á hugvíkk­ andi eiturlyfjum. Hann tengist þannig inn í stærri hreyfingu sem hefur átt sér stað í hiphopi á undanförnum árum þar sem sýrt furðurapp og hryllings­ rapp hefur náð æ meiri vinsældum. Vrong orðar það svona: „Fyrst var spurningin hver væri með stærstu demantana og mestu peningana. En núna er það hversu „fríkí“ þú ert, hversu mikið getur þú „fokkað“ mér upp,“ og nefnir hinn eineygða Fetty Wap og Young Thug með sinn kynusla í því samhengi. „Í kringum 2008–2009 hlustaði ég mjög mikið á súrt hiphop, Kool Keith og fleiri, smá brenglað hiphop höfðaði meira til mína en hitt. Fyrst þegar Odd Future kom fram 2010 eða 2011 fannst manni þeir mjög spennandi, maður vissi ekkert hverjir þetta voru, mað­ ur hélt eiginlega að Tyler, The Creator væri fertugur maður af því að hann hljómaði þannig. En svo sprungu þeir geðveikt mikið upp og ég var næstum því vonsvikinn þegar ég uppgötvaði að þetta væri kannski orðinn megin­ straumurinn. Þetta var nákvæmlega það sem ég hafði verið að rappa um þegar ég var í hassi í Vesturbænum. Var ég búinn að missa af ölli? En nei, nei, þarna var bara þessi nýja súper­ internetvædda kynslóð sem fær áhrif úr öllum áttum – sem sést til dæmis í þessu „internet­based“ hiphopi – að­ eins að brjótast inn í meginstraum­ inn,“ segir Þórður. n Lord Pusswhip spilar föstudaginn 6. nóvember á Bar Ananas og sunnu- daginn 8. nóvember á Húrra. Hryllingur og helsúrt hiphop Hiphop-taktsmiðurinn Þórður Ingi Jónsson, eða Lord Pusswhip, gefur út sína fyrstu plötu Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Ef þú tengir við Lord Pusswhip-textana þá er kannski bara eitthvað að Heilaþveginn Þórður Ingi segist hafa verið heilaþveginn af eldri bróður sínum með þungarokki og hryllingsmyndum, en merki þess eru auðheyranleg í tónlist Lord Pusswhip. Mynd SIGtryGGur ArI Sýra Tónlist Lord Pusswhip er meðal annars innblásin af súrri hiphop-tónlist. Sýra Tónlist Lord Pusswhip er meðal annars innblásin af súrri hiphop-tónlist. „Það er stundum eins og það sé nóg að gera bara eitthvað og ef það er sett fram í réttu samhengi þá er það hyllt, þó að það sé bara hlut- lægt ógeðslega lélegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.