SÍBS fréttir - 01.12.1999, Blaðsíða 24
Sigga og Timo ásamt somtm sínum.
ÞAU SKÓPU ENGLANA
Nú ættu margir stuðningsmanna happdrœttis
SIBS að vera komnir með lítinn verndarengil
í barminn. Gripina hönnuðu Sigga og Timo
gullsmiðir í Hafnarfirði. Margir hafa hringt á
skrifstofu SIBS og spurt um hönnuðina.
Timo Salsola er fæddur í Finnlandi árið
1965. Hann stundaði nám í Design Institute
ofLahti, gullsmíðadeild 1987-1991, og staif-
aði sem gullsmiður í Rauma, Finnlandi, Thun
í Sviss og í Massachusetts í Bandaríkjunum.
Síðan 1992 Itefur hann staifað á Islandi og
1993 opnaði hann eigið verkstœði í Hafnar-
firði ásamt eiginkonu sinni Sigríði Önnu
Sigurðardóttur.
Sigríður Anna erfœdd árið 1967. Hún lauk
sveinsprófi frá lðnskólanum í Reykjavík
1989 og stundaði framhaldsnám í Design
Institute of Lathi, gullsmíðadeild 1989-1991.
Hún staifaði sem gullsmiður í Nantucket í
Massachusetts 1991-1992 en kom þá heim til
Islands til staifa.
Sigga og Timo hafa bœði haldið sýningar
og tekið þátt í samsýningum hér heima og
erlendis og verið falin vandasöm verkefni til
úrlausnar. Þegar farið var að huga að vinn-
ingaskrá ársins 1999 hjá happdrætti SIBS
gekk framkvœmdastjóri happdrættisins áfund
þeirra lijóna og bað þau að smíða litla vernd-
arengla annars vegar úr silfri og hins vegar
úr gulli. Sigga vann síðan silfurengilinn en
Timo gullengilinn.
Það er spennandi að koma í verslun
þeirra við Strandgötu í Hafnatfirði. Þar er
margt fallegt að sjá og freistingarnar tniklar.
A vinningaskrá okkar árið 1997 varfalleg-
itr gullhringur skreyttur demöntum og rúbín.
Þennan hring fékk happdrættið að gjöf frá
Siggit og Timo.
Finnar hafa gert sjónvarpsþátt um þessi
finnsk-íslensku hjón og var myndin sýnd í Finn-
landi og nýverið í ríkissjónvarpinu íslenska.
H.F.
24 • SlBS-fréttir