SÍBS fréttir - 01.12.1999, Blaðsíða 25

SÍBS fréttir - 01.12.1999, Blaðsíða 25
Eftinninnilegir vinningar Já, þetta er Roger Moore og bíllinn er Volvo 1800S sportbíll, kallaður dýrlingsbíllinn. Dýrlingurinn, leikinn af Roger Moore, var aðalpersóna í samnefndum sjónvarpsþáttum þessa tíma. Ók hann um á slíkum Volvo og lenti í æsilegum æfintýrum. Bíllinn var aukavinningur hjá happdrætti SÍBS árið 1969. Því miður fylgdi hinn mikli "sjarmör" ekki með en einhver æfintýri hljóta að hafa fylgt því bíllinn býður hreinlega upp á slíkt svo forvitnilegur er hann enn þann dag í dag. Þessi fallegi Jaguar XJ de Lux fór norður til Akureyrar og standa vinningshafarnir, afar glæsileg hjón, við bílinn. Greinilegt er að þetta er áður en larfaklæðnaður komst í tísku. SÍBS-fréttir • 25

x

SÍBS fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS fréttir
https://timarit.is/publication/1221

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.