Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 17

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 17
* fræðslumál tilhliðranir fyrir hjúkrunarfræðinga innan hefðbundins 4 ára náms til B.S. gráðu og 15% (49 háskólar) voru eingöngu með B.S. nám fyrir hjúkrunarfræðinga. Við samanburð kom í ljós að þar sem eingöngu var sér- skipulagt B.S. nám fyrir hjúkrunarfræðinga var mun meiri áhersla á hjúkrunarnámskeið og mun meiri tími sem ætlaður var í hjúkrun. Hvers vegna fara hjúkrunarfræðingar í B.S. nám? I erindi sem Marga Thome (1989), dósent í hjúkrun- arfræði við Háskóla íslands, hélt á ráðstefnu um há- skólanánt í hjúkrunarfræði — Við byggjum brú — í menntunarmálum hjúkrunarfræðinga, sagði hún m.a. „Með þessu erindi ætlaði ég að vekja athygli á ýmsum kostum háskólanáms í hjúkrunarfræði. Tæmandi svar við upphaflegu spurningunni („Hvers vegna háskóla- nám fyrir útskrifaða hjúkrunarfræðinga?“) mun reynslan ein veita. Hver og einn gæti því spurt sig: Af hverju ekki háskólanám fyrir útskrifaða hjúkrunar- fræðinga". (bls. 8). En livað er það sem knýr svo marga hjúkrunarfræð- inga í meira nám? Athugun Fotos (1987) bendir til þess að áhugi á aukinni þekkingu sé þar einna efstur á lista, þá nefndu hjúkrunarfræðingar einnig það „að fá betri innsýn inn í mannleg tengsl", „að auka gæði þeirrar hjúkrunar sem ég veiti“, „að halda mér við faglega“, „að læra eitthvað nýtt“ og „að ná lengra í starfi“. Hillsmith (1978) sendi spurningalista til 119 hjúkr- unarfræðinga í B.S. námi. Alls svöruðu 76 eða um 64%. Þegar þessir hjúkrunarfræðingar voru spurðir hvers vegna þeir hefðu farið í B.S. nám svöruðu flestir, eða 84%, að það væri vegna persónulegs námsáhuga. Ýmsir nefndu einnig betri atvinnumöguleika, aukna faglega færni og að þá langaði að skipta um starf. Að lokum voru all nokkrir hjúkrunarfræðingar, sem ætl- uðu sér í masters nám. Thurber (1988) hefur meðal annarra lagt áherslu á að fyrir þá sem ætla sér áfram í masters nám sé mikilvægt að hanna sérstaka BS-MS námsleið þar sem nemendur séu markvisst búnir undir masters námið. Þetta hafa nokkrir háskólar þegar gert. Hverjir vilja fara í sérskipulagt B.S. nám? Þegar ég spurði í könnun minni þá sem hefðu hug á að fara í slíkt sérskipulagt B.S. nám um útskriftarár frá HSÍ kom eftirfarandi í Ijós: 1956-’60: 2 hjúkrunarfræðingar 1961-’65: 5 “ 1966-70: 7 “ 1971-75: 17 “ 1976-’80: 19 “ 1981-’86: 22 “ Alls höfðu 18 hjúkrunarfræðingar lokið námi frá Nýja hjúkrunarskólanum; 4 í geðhjúkrun, 1 í gjör- gæsluhjúkrun, 2 í hand- og lyflækningahjúkrun, 4 í heilsugæsluhjúkrun, 1 í skurðhjúkrun, 2 í svæfinga- hjúkrun, 1 í öldrunarhjúkrun og 3 höfðu lokið hjúkrun- arnámi fyrir ljósmæður. Alls höfðu 7 lokið ljósmæðr- anámi frá LMSÍ. Einn hjúkrunarfræðingur hafði lokið hjúkrunarnámi erlendis og 2 höfðu lokið sérnámi er- lendis. Búseta: 41 var úr Reykjavík, 22 á Stór-Reykja- víkursvæðinu en utan Reykjavíkur, 17 voru búsettir úti á landi, sem þýðir oftast auka álag á nemendur, sér- staklega þegar um er að ræða konur með börn. Samantekt og lokaorð Ég hef í þessari grein fjallað um sérskipulagt B.S. nám fyrir hjúkrunarfræðinga. Rakið þróun þeirra mála bæði hérlendis og erlendis og að lokum fjallað um námstilhögun í slíkri námsleið. Eins og fram kemur í greininni á hið sérskipulagða B.S. nám sér langan að- draganda eða allt frá árinu 1973 þegar háskólanám í hjúkrun hófst hér á landi. Allt frá jDeim tíma hefur HFÍ lagt á það áherslu að þessi námsmöguleiki standi hjúkr- unarfræðingum sem þess óska til boða eins og tíðkast erlendis. Þegar litið er á þróun þessara mála erlendis kemur í ljós að í Bandaríkjunum hefur sókn hjúkrunar- fræðinga í B.S. nám stóraukist. Þótt margir þættir hvetji fólk í nám virðist þó einkum um persónulegan námsáhuga að ræða. Það er einlæg von mín að tekist hafi að skipuleggja B.S. nám fyrir hjúkrunarfræðinga sem standi fyllilega undir nafni, sé krefjandi og skemmtilegt og væntanleg- ir nemendur geti verið stoltir af. Ég vil að hjúkrunar- fræðingar fái þar með tækifæri til að bæta við þekkingu sína á hjúkrun og skyldum greinum og geti jafnframt notið þess að vera í námi. Ég held að það sé fátt sem geti sameinað okkur hjúkrunarfræðinga meira en það. Að lokum vil ég gefa hjúkrunarfræðingum, sem ætla sér í þetta nám orðið en þeir voru spurðir hvers vegna þeir veldu sér þennan námsmöguleika: „Vegna mikillar framþróunar í hjúkrun er mikil- vægt að bæta við þekkingu sína og ég tel sérskipu- lagt B.S. nám góða leið til þess.“ „Ég vil gjarnan bæta við þekkingu mína í hjúkrun og hefði gjarnan viljað að ég hefði farið í H.í. á sínum tíma. Nú fæ ég tækifæri til þess.“ „Mér finnst þetta sérskipulagða B.S. nám spenn- andi viðfangsefni.“ „Ég vil víkka sýn mína bæði inná við og útá við gagnvart faginu.“ HJÚKRUN 7,-67. árgangur 17

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.