Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 37

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.04.1991, Blaðsíða 37
Smitgát og sýkingavarnir Varúðar þörf í með- ferð afskorinna blóma ýmsir miðtaugakerfissjúkdómar, svo sem lömun og flogaveiki. Einn- ig er um að ræða kransæðasjúk- dóma, hjartabilun, lungnasjúk- dóma, gigtarsjúkdóma o.fl. Þá get- ur einnig verið um afleiðingar slysa að ræða. Hvernig er hægt að fá hnapp? Hjá Tryggingastofnun ríkisins og Securitas hf. liggja frammi um- sóknareyðublöð sem fylla þarf út. Þá þarf læknir hnappþegans að votta sjúkdómsástand hans. Hann sér síðan um að senda umsóknina áfram til Tryggingastofnunar. Þar er tjallað um umsóknina og ef hún er samþykkt er hún send til Securi- tas sem setur hnappinn upp innan nokkurra daga. Kostnaður Neyðarhnappur kostar 93.879 krónur á Akureyri og á Reykjavík- ursvæðinu en 79.797 krónur úti á landsbyggðinni. Ef Trygginga- stofnun tekur þátt í kostnaði hnappþegagreiðirhún90% afhon- um. Jafnframt greiðir hún 80% af mánaðarlegum þjónustugjöldum sem eru 5.962 krónur á Akureyri og á Reykjavíkursvæðinu. Innifalið í mánaðarlegum þjónustugjöldum er sólarhringsvakt, öll útköll óháð fjölda, kennsla á búnaðinn, tvær til þrjár heimsóknir á ári og viðhald á búnaðinum, svo sem endurnýjun rafhlaðna í hnapp og tæki. Hnapp- þegar greiða 1.192 krónur á mánuði af mánaðarlega þjónustugjaldinu. Höfundur er framkvœmdastjóri Securitas hf Sigrún Stefánsdóttir hjúkrun- arstjóri sýkingavarna á Borgar- spítalanum svarar spurningunni hvers vegna afskorin blóm séu ekki leyfð á gjörgæsludeildum. Svar: Af afskornum blómum, sem standa í vatni, er tvenns konar sýkingarhætta. Annars vegar geta sumar bakteríur þrifist ágætlega í „hreinu“ vatni sem stendur í stofu- hita. Þar má nefna bakteríur eins og Pseudomonas aeroginosa og P. cepacia sem geta lifað í allt að 106/ ml þéttni í vatni í langan tíma (1). Aðrar tegundir eru t.d. Acinet- obacter calcoaceticus. Allir þessir sýklar eru þekktir í spítalasýking- um í sárum, þvagi, blóði og víðar. Hins vegar er niðurbrot lífræns efnis (rotnun), sem á sér stað í af- skornum blómum, gróðrarstía fyrir sveppavöxt(2). A gjörgæsludeildum eru sjúkl- ingar með skertar varnir og fjölda inngönguleiða fyrir sýkla, t.d. um skurðsár, æðaleggi og þvagleggi, svo fátt eitt sé nefnt. Smitleiðir eru stuttar og fjölbreytt sýklaflóra í um- hverfinu. Þó svo að engar heimildir séu fyrir því að spítalasýkingar á gjör- gæsludeildum megi rekja beint til mengunar í vatni afskorinna blóma (2) er sjálfsagt að útiloka allar upp- sprettur sýklagróðurs ef hægt er. Þar af leiðandi er ekki mælt með afskornum blómum á gjörgæslu- deildum eða annars staðar þar sem sjúklingum með skertar varnir er sinnt. Einnig þurfa afskorin blóm á al- mennum sjúkradeildum góða um- hirðu. Hér fylgja nokkrar leiðbein- ingar sem minnka hættu á sýkla- gróðri í blómavösum: 1) Skiptið um vatn á blómunum daglega á blómaskoli, ekki inni á sjúkrastofunni. 2) Skipið um vasa daglega sé þess nokkur kostur og þvoið þá óhreina vasann í þvottavél eða upp úr vel heitu sápuvatni. 3) Þvoið blómavasa í þvottavél eða með vel heitu sápuvatni þegar blómunum er hent. 4) Geymið hreina blómavasa þurra. 5) Vandlegur handþvottur er nauðsynlegur eftir alla snertingu við blóm og umhirðu á þeim. Heimildir: 1) Soule B.M., 1983. The APIC curriculum for Infection Control Practice, bls. 367. 2) Bennet, J.V. et al. 1986, Hospital In- fections, bls. 233. VINSAMLEG TILMÆLI Ég veit - er ég dey - svo að verði ég grátinn, þar verðurðu eflaust til taks. En ætlirðu blómsveig að leggj’á mig látinn -þá láttu migfá hann strax. Og mig, eins og aðra, sem afbragðsmenn deyja, í annála skrásetur þú; og hrós um mig ætlarðu sjálfsagt að segja en - segðu það heldur nú. Og vilji menn þökk mínum verðleikum sýna, þá verður það eflaust þú, sem sjóð lœtur stofna í minningu mína, en - rnér kœrni hann betur nú. Og mannúðarduluna þekki ég þína, sem þenurðu dánum í hag. En œtlirð’ að breiða yfir brestina mína, þá breidd’ yfir þá í dag. Eftir Heiðrek Guðmundsson frá Sandi. HJÚKRUN ‘/„-67. árgangur 37

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.