Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1997, Blaðsíða 55
Lausn til munnskolunar; (A 01 A B 03)
1 ml inniheldur: Chlorhexidini gluconati solutio 20%,
samsvarandi Chlorhexidinum INN, glúkónat, 2 mg, Aethanolum
52,8 mg, Sorbitolum 70% 150 mg, Xylitolum 35 mg, bragðefni og
hjálparefni q.s., Aqua purificata ad 1 ml.
Eiginleikar: Klórhexidin er sýkladrepandi efni, virkt bæði gegn
Gram-jákvæðum og Gram-neikvæðum bakteríum. Einnig virkt
gegn ýmsum sveppum, t.d. candida. Verkun kemur fljótt og varir
í nokkrar klukkustundir. Við endurtekna notkun aukast áhrif
efnisins. Blóð og gröftur draga úr áhrifum efnisins. Frásog frá
meltingarvegi er mjög litið, minna en 1% finnst í þvagi og þéttni i
blóði finnst ekki.
Ábendingar Sýkladrepandi lyf, notað við tannholdsbólgu, til að
hamla gegn tannsteinsmyndun og til að koma í veg fyrir sýkingar
við aðgerðir í munni. Ennfremur notað til munnhreinsunar þegar
erfitt er um tannburstun, t.d. við sjúkdóma eða vegna slysa, mikla
tannsteinsmyndun, blæðandi tannhold og tannlos.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir klórhexidíni eða öðrum
innihaldsefnum lyfsins.
Aukaverkanir: Algengar (>1%): Getur valdið brúnum blettum á
tönnum og tungu, sem hverfa af tungunni, þegar notkun er hætt,
en tannblettina getur þurft að hreinsa burt hjá tannlækni.
Breytingar á bragðskyni og sviði á tungu geta komið fyrir í byrjun
meðferðar en hverfa oftast við áframhaldandi notkun. Sjaldgæfar
(0,1-1%): Ofnæmi, húðerting, tannholdsbólgur. Áhrif á bakteriu-
flóru í munni og koki eftir langtima notkun lyfsins eru ekki
fullkomlega Ijós og er því ekki mælt með iangvarandi notkun þess.
Milliverkanir Anjónísk hreinsiefni (detergents) draga úr áhrifum
klórhexidíns.
Skammtastærðir handa fullorðnum og börnum: Munnskolun
tvisvar sinnum á dag með 10 ml af lausn, eina mínútu í senn eftir
tannburstun með venjulegu tannkremi. Við aðgerðir í munni:
Munnskolun i 5 daga fyrir og 5 daga eftir aðgerð með 10 ml af
lausn í eina mínútu í senn tvisvar sinnum á dag eftir tannburstun
með venjulegu tannkremi. Við tannholdsbolgu og sykingar í
tannholdi: Munnskolun tvisvar sinnum á dag með 10 ml af lausn,
eina mínútu í senn í u.þ.b. mánuð.
Athugið: Varist að lyfið berist í augu og eyru. Lyfið má ekki
komast í snertingu við heila, heilahimnur eða innra eyra, Ld. við
skurðaðgerðir í þessum líffærum.
Pakkningar og verð (1.10.1995): 300 ml kr. 272.-
###
Hexadent
Flúorlausn • • •
Við tölum fyrir munn allra
Gott bragð
Hexadent munnskolið
inniheldur klórhexidín sem er
sýkla- og sveppadrepandi lyf.
Bragðgóð og áhrifarík lausn.
Flúorlausn til munnskolunar; (A 01 A A 01)
1 ml inniheldur: Natrii fluoridum 0,5 mg, samsvarandi 0,23 mg flúor.
Eiginleikar Flúoríð getur varnað tannskemmdum. Verkunin er
talin byggjast á þvi að flúoríð styrki glerung tannanna. Einnig er
talið hugsanlegt að verkunin byggist á sýkladrepandi verkun
lyfsins.
Ábendingar: Til varnar tannskemmdum (caries),
einkum i tengslum við tannréttingar.
Fróbendingar Lyfið má ekki nota á svæðum þar sem drykkjarvatn
inniheldur meira en 0,75 mg/l af flúoríði. Skert nýrnastarfsemi.
Moðganga og brjóstagjöf: Lyfið skal ekki nota fyrstu þrjá mánuði
meðgöngu. Lyfið skilst í litlu magni út í móðurmjólk.
Aukaverkanir Dökkir blettir á glerungi (ofskömmtun).
Milliverkanir: Ekki þekktar.
Eiturverkanir: Banvænn skammtur er talinn vera 4-5 g fyrir full-
orðna, en 50 mg/kg líkamsþunga fyrir börn. 2 mg/kg geta gefið
veruleg eitrunareinkenni. Aukið munnvatnsrennsli, ógleði, uppköst,
magaverkir, niðurgangur. Krampakippir af völdum hýpókalsaemiu.
Meðferð: Magatæming og magaskolun. Kalk til inntöku.
Skammtastærðir: 10 ml til munnskolunar eftir síðustu tannburstun
dagsins. Munnurinn er skolaður í 2-3 minútur og lausninni síðan
spýtt. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára vegna hættu á að
þau kyngi lyfinu.
Pakkningar og verð (1.10.1995): 500 ml kr. 588.-
Endurbætt Flúorlausn í nýjum
umbúðum með mæliglasi.
Inniheldur nú xylitol sætuefni.
tryggir
betri árangur