Ráðunautafundur - 15.02.1999, Blaðsíða 72
64
kvæmt þessu fellur sýrustig kornsins um 0,16 pH-stig við hvern mánuð sem geymslan varir.
Þannig virðist það taka kornið langan tíma að ná verkunarjafnvægi.
Tækni við gjafir. Tæknibúnaður við gjafír var óvíða margbrotinn: valsari með 1,5-1,75 kW
rafmótor, hjólbörur og fata. Flestir völsuðu kornið um leið og það var gefið. Víðast var um að
ræða handflutning: súrkorninu mokað upp í valsarann sem skilaði því ofan í hjólbörur eða
geymi. Bændur töldu þetta óverulega vinnu umfram hefðbundna kjamfóðurgjöf í tíma talið.
Þeir, sem mikið súrkorn gáfu, töldu þó nauðsynlegt að vélvæða þennan þátt betur til þess að
spara líkamlegt erflði. Dæmi voru um að frost trufluðu gang valsaranna ef þeir voru ekki
þrifnir vel að hverri notkun lokinni. Völsunarstigið var bersýnilega mismunandi en það hefur
áhrif á fóðurnýtingu gripaima.
Nýting súrkornsins. Spurnum var haldið uppi um nýtingu súrkornsins. Reyndist erfitt að fá
nákvæmar tölur um hana. Að sögn bændanna nam hún allt frá nær 100% og niður í um það
bil 80%. Flestir voru bændurnir ánægðir með nýtingu kornsins. Dæmi voru um að plast-
pokarnir (brettahetturnar) höfðu svikið á „saumum“ með þeim árangri að kornið myglaði til
skaða. Mýs ullu einnig skemmdum.
Rannsókn á verkun og geymsluþoli kornsins
Vatnsvirkni korns (water activity). Það er stærð sem lýsir m.a. þurrkunareiginleikum korns
(Loewer o.fl. 1994). Hún var mæld í kominu með aðferð sem áður hefúr verið lýst (Bjarni
Guðmundsson og Thorkil E. Hallas 1995). Komið var Gunilla með nokkurri íblöndun
Filippu. Niðurstöðum mælinga á tengslum rakastigs komsins og vatnsvirkni þess er lýst á
næstu mynd. Mælingarnar voru gerðar við herbergishita (20-21°C):
Rakastig byggsins, %
50,0 -------------------------------------------------------
40,0----------------------------------------------------------3
T
30,0----------------------------------------------------------
20,0-------------------------------------------------------
10,0----------------------------5- *--------------------------
♦♦<* *
o,o ------——------------------------------------------
0,00 0,10 0,20 0,30 0,40 0,50 0,60 0,70 0,80 0,90 1,00
Vatnsvirkni aw
2. mynd. Jafnvægisrakarit fyrir bygg. Samband rakastigs byggs (100-
þurrefni) og vatnsvirkni þess.
Reiknað aðhvarf með áðurnefndri aðferð sýndi að línuleg fylgni rakastigs og vatnsvirkni
var r'=0,96 (P=0,0001). Grunnlíkingin er líking Hendersons (sjá Bjarna Guðmundsson og Th.
E. Hallas 1985). Form hennar fyrir byggið reyndist vera:
1 0,038 m1’41
--------= e
1 -aw
þar sem m er rakastig kornsins (%) og aw vatnsvirkni þess. Aðhvarfslína íslenska byggsins var
ögn undir viðmiðunarlínu Loewers o.fl. (1994), sem gæti bent til þess að íslenska byggið væri
auðþurrkanlegra en viðmiðunarbyggið.
Súrsun korns. Gerð var rannsóknastofutilraun með verkun korns á ýmsum þurrkstigum.
Kornið var Gunilla með íblöndun Filippu. Kornið var verkað í glerkrukkum, 1,0 1 að rúmmáli.
4
4
♦
3* ❖4 «♦* - 1