Ráðunautafundur - 15.02.1999, Blaðsíða 200
192
RfiÐUNRUTRFUNDUR 1999
Hálíngresi og vallarfoxgras handa mjólkurkúm
Gunnar Ríldiarðsson
°g
Sigríður Bjamadóttir
Rannsóknastofnun landbúnaðarins
INNGANGUR
Á síðustu árum hafa verið gerðar tilraunir bæði á Stóra Ármóti og Möðruvöllum til að kanna
fóðrunarvirði heys fyrir mjólkurkýr og hafa þær m.a. beinst að áhrifum sláttutíma og gras-
tegunda. Niðurstöður þeirra hafa verið kymitar á ráðunautafundum og sú tilraun sem hér er
lýst er liður í fyrrnefndri tilraunaröð.
Með breyttri heyskapartækni heíur tvísláttur aukist mjög seinni árin og því er mjög mikil-
vægt að fá betri upplýsingar um fóðrunarvirði háar í samanburði við fýrri slátt. Fóðrunarvirði
língresis hefur eklci verið kannað í tilraunum áður en skv. athugunum Guðna Þorvaldssonar(1)
finnst hngresi í um 56% túna og er hlutdeild þess metin 5-21%, mest á Suðurlandi en minnst
á Norðurlandi.
Marlcmið þeirrar tilraunar sem hér er lýst var að bera saman hálíngresi, vallarfoxgras af
fyrra slætti og há af vallarfoxgrasi fyrir mjólkurkýr. Tilraunin var styrkt af Framleiðnisjóði
landbúnaðarins.
EFNI OG AÐFERÐIR
Kýr
í tilraunina voru notaðar 18 kýr þar af voru 6 á fyrsta mjaltaskeiði. Tilraunin var sett upp sem
latneskur femingur með þremur heygerðum og þremur tímabilum og var hvert tímabil þrjár
vikur. I slíku fyrirkomulagi prófar hver kýr hverja heygerð í þijár vikur og allar kýmar prófa
allar heytegundir. Tilraunin var framkvæmd á Stóra Ármóti í febrúar'98 - apríl'98. í hvem
ferning, en þeir voru alls sex, voru valdar þrjár kýr sem voru sem líkastar m.t.t. aldurs,
burðartíma og nytar. Kýr innan hvers fernings fengu svo heytegundimar í mismunandi röð, en
þannig er reynt að koma í veg fyrir að áhrifm af því að nyt lækkar þegar líður á mjaltaskeiðið
blandist inn í áhrifin af meðferðinni, þ.e. af heygerðinni í þessu tilviki.
1. tafla. Þungi, vikur frá buröi, dagsnyt og kjamfóðurgjöf hjá kúm viö upphaf tilraunarinnar.
Ferningur Mjalta- skeið Fjöldi kúa Þungi kg Vikur frá burði Nyt kg/dag Kjamfóður kg/dag
1 I 3 370 17,3 17,0 6,3
2 1 3 335 13,1 14,0 6,0
3 2 3 460 11,1 25,0 5,7
4 3 3 460 9,8 31,0 6,7
5 3 3 390 9,5 22,0 6,0
6 3+ 3 400 7,8 26,0 6,0
Alls/Meðaltal 18 400 11,4 22,5 6,1