Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2016, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.2016, Blaðsíða 38
30 Fólk Vikublað 12.–14. apríl 2016 Klif ehf • Grandagarði 13, Reykjavík Sími 552-3300 • www.klif.is Gróðurhús í úrvali Þau hafa bjargað lífi n Sum lögðu líf sitt í hættu til að bjarga öðrum n Kate Winslet hljóp inn í brennandi hús S tjörnurnar þurfa stundum að leika hetjur í vinnunni, en margar hafa gert það í alvör- unni. Hér er sagt frá frægu fólki sem hefur unnið mikil þrekvirki og sýnt af sér mikinn náungakær- leika þegar eitthvað bját- ar á. n  Matthew McConaughey Leikarinn Matthew McConaughey var á sýningu myndar á Toronto kvikmynda- hátíðinni þegar hann sá konu í flogakasti. Enginn nærri henni virtist vita hvernig væri hægt að aðstoða hana en leikarinn lét til skara skríða og hóf endurlífg- un þegar konan missti meðvitund.  Arnold Schwarzenegger Leikarinn og stjórnmálamaðurinn Arnold Schwarzenegger var í fríi á Maui þegar hann sá mann í sjónum sem virtist vera í vandræðum. Maðurinn hékk á litlu brimbretti og var í hættu. Schwarzenegger áttaði sig á því að maðurinn var í mikilli hættu, hann var einn í sjónum og enginn nálægt honum. Hann synti því á eftir honum og dró hann að landi.  Jennifer Lawrence Leikkonan Jennifer Lawrence var í göngutúr með hundinn sinn í Santa Monica í Los Angeles þegar hún sá meðvitundar- lausa konu á jörðinni. Lawrence hóf endurlífgun og sinnti konunni þar til sjúkraflutningamenn bar að garði.  Mark Harmon Sjónvarps- stjarnan Mark Harmon bjargaði lífi ung drengs sem lent hafði í bílsslysi fyrir utan heimili Harmon. Drengurinn var fastur inni í bíl sem var um það bil að verða alelda. Harmon hljóp af stað og bjargaði drengnum með því að brjóta glugga á bílnum og draga drenginn út á ögur stundu.  Kate Winslet Leikkonan Kate Winslet var gestur á eyju athafnamannsins Richard Branson þegar eldur braust út á heimili hans. Eldingu laust í húsið sem varð fljótlega alelda. Móðir Branson svaf inni í húsinu. Winslet var ekki lengi að hugsa sig um og hljóp inn í húsið og bjargaði konunni sem var komin á tíræðisaldur. Winslet bar hana út úr húsinu.  Gerard Butler Áður en Gerald Butler öðlaðist frægð á hvíta tjaldinu bjargaði hann lífi ungs drengs. Butler hafði verið ásamt móður sinni í göngutúr við strönd þegar hann sá ungan dreng vera í vandræðum í sjónum. Butler hljóp á eftir drengnum, kom honum á þurrt land og veitti honum fyrstu hjálp.  T.I. Á tónlistarferli sínum hefur það tvisvar gerst að rapparinn T.I. var réttur maður á réttum tíma. Í bæði skiptin voru það einstaklingar sem ætluðu að stytta sér aldur með því að stökkva af þaki háhýsa. Í annað skiptið talaði hann örvinglaðan mann niður af syllu, en í hitt skiptið bjargaði hann söngvaranum Scott Stapp, árið 2012, þegar Stapp hafði reynt að fremja sjálfsmorð. T.I. kom að honum og veitti honum aðhlynningu þar til sjúkrabíll kom á vettvang.  Harrison Ford Leikarinn Harrison Ford hefur oft verið beðinn um að aðstoða við björgunaraðgerðir þar sem hann er þyrluflugmaður og með öll tilskilin leyfi til þess. Eitt frægasta dæmið var þegar konur í fjallgöngu festust á fjallstindi í Idaho í Bandaríkjun- um. Það var engin leið til að komast að konunum fótgangandi og því þurfti að sækja þær flugleiðis. Harrison Ford kom þeim auðvitað til bjargar með því að ræsa þyrl- una og æða af stað.  Heidi Klum Fyrirsætan Heidi Klum var ásamt fjölskyldu sinni í fríi árið 2013 á strandstað þegar að barnfóstra hennar og sonur Klum lentu í vandræðum í sjónum. Klum var fljót að bregðast við og synti með þau í land.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.