Fréttablaðið - 20.12.2017, Blaðsíða 28
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@365.is
Fáar gjafir eru jafnskemmti-legar og þær sem eru heima-gerðar og ekki er verra ef hægt
er að borða þær eða drekka. Hægt
er útbúa slíkar gjafir með litlum
fyrirvara og gefa í jólagjöf, eða við
önnur tækifæri, enda eiga þær
alltaf vel við.
Skemmtileg vinagjöf
Kakó í krúttlegri krukku er sniðug
gjöf sem tekur stuttan tíma að
útbúa. Hér er að ferðinni tilvalin
vinagjöf fyrir börn og unglinga
því flestum á þeim aldri finnst
heitt kakó gott. Allt sem þarf er
falleg krukka, kakóduft, t.d. Swiss
Miss, og loks sykurpúðar í þeirri
stærð sem hver og einn kýs. Hrein
krukka er fyllt að hálfu með kakó-
dufti og síðan fyllt upp í hana með
sykurpúðum í þeirri stærð sem
hver og einn heldur mest upp á.
Gaman er að skreyta krukkuna
með flottum borða og jólabrjóst-
sykursstaf.
Lofnarblómsedik
Lofnarblóm, eða lavender, hefur
um aldir verið notað á margvís-
legan hátt en það gefur frískandi
ilm og á að hafa róandi áhrif. Það
má t.d. setja þurrkuð lofnarblóm
í litla taupoka og stinga inn í skáp
Góðar gjafir úr eldhúsinu
Heimatilbúnar gjafir standa alltaf fyrir sínu og þær hafa þann góða kost að safna hvorki ryki né
taka pláss til lengri tíma. Slíkar gjafir má töfra fram á örstuttum tíma án mikillar fyrirhafnar.
Kakó í krukku er vinaleg gjöf.
Heimagerðar karamellur eru bragð-
góðar og sniðugar til gjafa.
Lofnarblóm má nota á margvíslegan hátt til að fá góða lykt í húsið.
Rauður drykkur með tvisti.
til að fá ferskan ilm í föt, hand-
klæði eða sængurföt. Slíkur poki
gæti verið sæt aukagjöf. Hægt er að
bæta þurrkuðum lofnarblómum út
í líkamsskrúbbinn, baðolíuna eða
hárnæringuna til að fá góðan og
róandi ilm og það má jafnvel setja
þau út í kökudeig. Svo má setja
lofnarblóm út í edik, t.d. hvítvíns-
edik, og setja á fallega flösku og
gefa í jólagjöf. Slíka blöndu er hægt
að nota fyrir alhliða þrif og fá góða
lykt í leiðinni. Best er að nota einn
hluta af þurrkuðum lofnarblómum
á móti fjórum hlutum af hvítvíns-
ediki, svo sem ¼ bolla af lofnar-
blómum á móti einum bolla af
borðediki. Gott er að blanda þessu
saman í könnu og hella síðan yfir í
fallega flösku, sem búið er að sótt-
hreinsa og skreyta síðan að smekk.
Ómótstæðilegar
karamellur
Flestum finnst gaman að búa til
karamellur og ekki er verra að fá
heimagerðar og gómsætar kara-
mellur í jólagjöf. Þær má skera
niður og pakka í fallegt sellófan
eða bökunarpappír, setja í öskju og
gleðja einhvern á jólunum.
275 g púðursykur
325 g sykur
225 g smjör
350 g síróp
300 ml rjómi
175 ml mjólk
2 msk. vanilludropar
Setjið allt hráefni í pott og hitið við
lágan hita. Hrærið vel í á meðan
blandan er að hitna. Látið hana ná
120-130°C hita og látið svo kólna
lítillega. Hellið í mót sem er 20x20
cm að stærð (eða notið einfaldlega
það mót sem er til, en þó ekki of
stórt svo karamellurnar verði ekki
þunnar). Látið kólna vel. Skerið í
hæfilega stóra bita, pakkið inn í
sellófan og lokið fyrir með skraut-
legu bandi. Setjið í öskju eða dós
og færið þeim sem þið viljið gleðja
á jólunum.
Hindberjadrykkur
með smá
tvisti
700 ml gin eða
vodka
400 g frosin
hindber
250 g sykur
kanilstöng
Setjið gin, hindber, sykur
og kanil í hreina krukku.
Lokið vandlega og setjið í
kæli. Hristið daglega næstu
tvær vikurnar en svo viku-
lega næstu þrjá mánuðina. Með
tímanum á blandan að verða
fagurrauð. Eftir þrjá mánuði ætti
blandan að vera tilbúin og má þá
hella henni á flöskur til gjafa.
Einnig má nota vodka í staðinn
fyrir gin. Ef ætlunin er að gefa
hindberjagin í jólagjöf er hægt
að setja fersk hindber í hreina
og flotta flösku og hella gini eða
vodka yfir en þá eru berin meira
til skrauts en að gefa gott bragð.
Hægt er að prófa sig áfram með
eitt og annað, t.d. má setja nokkra
bita af chili-ávextinum í flösku og
hella vodka yfir og fá þannig sterkt
bragð af drykknum.
Kryddsalt
Kryddsalt er eitthvað sem allir
geta notað. Nota má margs konar
krydd, svo sem rósmarín, chili eða
timían til að bragðbæta saltið.
340 g saltflögur, t.d. Maldon salt
2 msk. timían eða 1 msk. rósmarín
Setjið 110 g af salti og 1 msk. af
kryddinu í matvinnsluvél
og malið fínt.
Blandið því sem
eftir er saman
við og látið
saltblönduna
þorna vel
á grunnum
diski í 2-3
klst. Hell-
ið krydd-
saltinu í
smekklega
glerkrukku og
skreytið að
vild.
Tilvalið í veisluna eða á hlaðborðið.
Fást í öllum helstu matvöruverslunum
og í fiskborði stórmarkaðanna.
Árstíðabundnar vörur sem hafa slegið í gegn
BestuUppáhalds
Gleðigjöf!
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . d e S e M B e R 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
2
0
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
E
-0
F
9
0
1
E
8
E
-0
E
5
4
1
E
8
E
-0
D
1
8
1
E
8
E
-0
B
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K