Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.08.2017, Qupperneq 20

Víkurfréttir - 30.08.2017, Qupperneq 20
20 miðvikudagur 30. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN Í SÍMA 898 2222 „Þetta var ótrúlega venjulegur sunnu- dagur og ekkert sem benti til þess að ég væri að fara að eiga. Ég var bara í göngutúr og heimsóknum. Klukkan rúmlega sex finn ég svo að belgurinn springur og um 40 mínútum síðar en hann fæddur,“ segir Berglind. Fæddist hjá foreldrun- um í baðkarinu heima Þorvaldur H. Bragason og Berglind Skúla- dóttir ásamt syninum Skúla Þorvaldssyni. ●● Lítill●drengur●var●að●flýta● sér●í●heiminn.●Foreldrarnir● Berglind●Skúladóttir●og● Þorvaldur●H.●Bragason● segja●þægilegt●að●vera●í● bæjarfélagi●þar●sem●maður● þekkir●alla ■Valdi rétt náði að komast inn á bað til að vera viðstaddur fæðinguna. Hann var bara inni í eldhúsi að elda súpu,“ segir Berglind Skúladóttir, en sonur þeirra Skúli Þorvaldsson, fæddist tveimur vikum fyrir tímann í baðkarinu heima þann 16. júlí síðastliðinn. Foreldrarnir höfðu ákveðið að fæða hann heima, en vegna þess hversu hratt sá litli vildi komast í heiminn komst ljósmóðirin ekki í tæka tíð til að vera við- stödd fæðinguna. Það leið ekki nema um það bil korter, frá því að Berglind áttaði sig á því að Skúli væri að fara að fæðast og þangað til hann var kominn í heiminn. Að sögn Þorvaldar tók fæðingin sjálf ein- ungis um mínútu. „Það var svo gaman að vera bara tvö. Þetta var mjög sér- stakt. En það var líka rosa gott að vera búin að undirbúa það að fæða hann heima,“ segir hann, en að hraði fæð- ingarinnar hafi hins vegar ekki verið í kortunum. „Súpan sauð bara upp.“ Þetta var fjórða fæðing Berglindar, en sú fyrsta sem átti sér stað heima fyrir. „Það heillaði mig að fá að fæða í mínu umhverfi. Við vorum búin að undir- búa allt á heimilinu. Við leigðum fæðingarlaug og ég var búin að sjá fyrir mér að ég yrði bara í henni í tvo, þrjá tíma að slaka á í stofunni. Þor- valdur ætlaði að taka myndir, kveikja á tónlistinni og svona,“ segir hún, en enginn tími hafi þó gefist til þess og Skúli litli fæðst á „núll einni“. „Ef ég heyrði þessa sögu einhvers staðar þá myndi ég halda að fólk væri að ljúga,“ bætir hún við. Hjónin ákváðu að hringja á sjúkrabíl eftir að Skúli fæddist til vonar og vara. „Svo hringdum við í aðra ljósmóður sem býr rétt hjá og bæði sjúkrabíllinn og hún voru komin eftir nokkrar mín- útur. Þá var klippt á naflastrenginn. Það er mjög þægilegt að vera í bæjar- félagi þar sem maður þekkir alla,“ segir Berglind. Hún segist algjörlega mæla með heimafæðingum og að hún myndi kjósa þá leið aftur. „Það er aðeins farið að aukast að konur fæði heima. Ég var aldrei hrædd við það að fæða heima, en ég veit ekki hvort ég hefði þorað því í fyrstu fæðingunni. En við vorum alveg ákveðin og róleg yfir þessu allan tímann. Ég er líka hjúkrunarfræð- ingur og Þorvaldur tannlæknir svo við erum nú bæði svona heilbrigðis- vön.“ Skúli Þorvaldsson hefur dafnað vel og er duglegur að drekka og hvíla sig. „Hann er eiginlega bara eftir bókinni. Það eru allir alveg í skýjunum.“ „Við vorum búin að undirbúa allt á heimilinu. Við leigðum fæðingarlaug og ég var búin að sjá fyrir mér að ég yrði bara í henni í tvo, þrjá tíma að slaka á í stofunni.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.