Feykir


Feykir - 21.04.2011, Qupperneq 4

Feykir - 21.04.2011, Qupperneq 4
4 Feykir 16/2011 Feykir.is Smá í Feyki :: Síminn er 455 7171 smáAUGLÝSINGAR Óskum eftir jörð til leigu Ung fjölskylda óskar eftir jörð til leigu á Norðurlandi vestra til að reka á tamingastöð. Áhugasamir vinsamlega hafið samband með tölvupósti á netfangið jardarleiga@hotmail.com Niðurstaðan vonbrigði -Ásmundur Einar hefur notið víðtæks trausts og verið einn ötulasti tals- maður sjónarmiða VG á Alþingi. Því er þessi niðurstaða mikil vonbrigði. Þrátt fyrir að maður sé ósammála þessari ákvörðun Ásmundar, ekki síst í ljósi þeirra stóru mála sem nú eru undir, er ekki annað en hægt að virða hana í ljósi þess sem hefur gengið á og þeirrar óbil- gjörnu framgöngu sem Samfylkingin hefur komist upp með í stjórnarsamstarf- inu, segir Bjarni Jónsson oddviti Vinstri grænna í Skagafirði aðspurður um afstöðu hans til úrsagnar Ásmundar úr þingflokki VG. Um viðbrögð sín vegna útkomu kosninganna um vantraust á ríkisstjórnina segir Bjarni að hann sjái ekki að staða ríkisstjórnarinnar eða landsbyggðarinnar myndi batna við að bæta við tveimur einsmáls framsóknarkrötum sem nú falbjóða sig fyrir lítið. -Nær er að leita sátta og þjappa aftur saman því fólki sem kosið hefur verið til trúnaðarstarfa fyrir VG og veita Samfylk- ingunni meira aðhald í stjórn- arsamstarfinu. Styrkur vinstri ríkisstjórnarinnar felst ekki í mannfjölda stjórnarliðsins heldur sátt meðal þess um grunngildi vinstrimanna og sameiginlegar hugsjónir þeirra sem að baki ríkisstjórninni standa. Er stjórnin starfhæf að þínu mati með þennan tæpa meiri- hluta þingmanna? -Það mun koma í ljós á næstu vikum og Norðurland vestra Kátir krakkar á Sauðárkróki Mikil gleði í kaffiboði í Árvistinni Fimmtudaginn í síðustu viku buðu börnin sem eftir skóla dvelja í Árvist, foreldrum sínum og systkinum að koma og þiggja kaffi og smákökur. Mikil eftirvænting er alltaf hjá smáfólkinu þegar svona kaffiboð eru á dagskrá enda er vel mætt hjá þeim sem boðið er. Blaðamaður mætti og tók tvær ungar stúlkur tali sem dunduðu sér við að teikna á meðan þær biðu eftir foreldr- um sínum og lagði fyrir þær nokkrar spurningar. Þetta voru þær Rannveig og Hildur sem eru 9 ára og þær voru mjög samtaka í svörum svo ekki þarf að aðgreina svörin mikið. Er gaman í Árvistinni? -Rosalega gaman. Hvað eruð þið að gera? –Við erum að teikna. Hvað gerið þið oftast í Árvist á daginn? –Teikna. Hvað eruð þið að teikna? –Sprengju, sem springur úr svona lítilli flösku. (Blaðamanni sýndist flaskan vera um hálft prósent af þeirri teikningu sem sýndi sprengjuáhrifin). Eruð þið búnar að fá heim- sókn í dag? Nei, en Hildur er búin að fá pabba sinn. –Mamma kemur svo á eftir með littlu systir, segir Hildur. –Pabbi minn kemur klukkan hálf fjögur, segir Rannveig og eftirvæntingin leynir sér ekki í glaðlegu andlitinu. –Kemur þetta örugglega ekki í Feyki, spyr Rannveig og blaðamaður segir „jú, kannski“ og þá heyrist: HÚRRA! Margir gestir komu í heimsókn þennan dag.. Elísabet Gunnarsdóttir heimsótti Ólöfu dóttur sína og fékk kaffi og kökur. Það var greinilegt að páskarnir voru að koma því minnst milljón páskaungar sem krakkarnir höfðu búið til héngu í loftinu. Hildur og Rannveig voru í góðu skapi þegar blaðamaður ræddi við þær. Leiðrétting Í síðasta Feyki slæddist meinleg villa í kynningu á matgæð- ingunum Steingrími Ingvarssyni og Halldóru Gestsdóttur, en þau voru sögð frá Litlu-Ásgeirsá. Rétt er að þau búa á Litlu-Giljá í Austur-Húnavatnssýslu. Eru þau beðin afsökunar á þessum mistökum. mánuðum hvort að okkur Vinstri grænum tekst að skilja ágreiningsmál að baki og fylkja okkur saman að nýju um þau grunngildi sem flokkurinn var stofnaður á. Þar reynir á marga að leita lausna þegar þörf er á og veita þá forystu sem allir geta fylgt sér um. Að sama skapi þurfa aðrir þeir sem kosnir hafa verið til trúnaðar- starfa fyrir VG að leggja sig betur fram um að leita mála- miðlana í ágreiningsmálum og þjappa aftur saman fólkinu á bak við sig sem treystir engum betur en VG til að leiða endurreisnarstarfið eftir þau ragnarök sem hrunflokkarnir þrír; Framsókn, Sjálfstæðis- flokkur og Samfylking leiddu yfir okkur,segir Bjarni. -Þó leiðir hafi skilið í bili hjá þingmönnum VG vegna ágreiningsmála bendi ég á að þremenningarnir sem hafa yfirgefið þingflokk VG eru enn í Vinstri hreyfingunni grænt framboð. Ég legg áherslu á að enn er lag að leiða aftur saman þá vösku sveit VG þingmanna sem þjóðin kaus í síðustu alþingiskosningum til að leiða stjórn landsins.

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.