Feykir


Feykir - 21.04.2011, Blaðsíða 5

Feykir - 21.04.2011, Blaðsíða 5
 16/2011 Feykir 5 Íþróttafréttir Feykis ( MITT LIÐ ) Nafn: Kristinn T. Björgvinsson. Heimili: Laugatún 5. Starf: Húsasmíðameistari. Hvert er uppáhaldsliðið þitt í enska boltanum og af hverju? Liverpool, maður þakkar það góðu uppeldi. Hvernig spáðir þú gengi liðsins á tímabilinu? Bikar- og Evrópumeistarar og svo tökum við deildina eins og vanalega... Ertu sáttur við stöðu liðsins í dag? Mikið hefði verið gott að fá þessa spurningu 2005, en nei, get ekki sagt að þetta sé ásættanleg staða í dag... Hefur þú einhvern tímann lent í deilum vegna aðdáunar þinnar á umræddu liði? Já, já, það hefur ekki allstaðar gengið vel uppeldið í boltanum!!!! Hver er uppáhaldsleikmaðurinn fyrr og síðar? Það mundi vera kóngurinn sjálfur Robbie Fowler (værum ekki í þessu basli í dag með hann á toppnum). Hefur þú farið á leik með liðinu þínu? Já fór með góðum vinum á Liverpool vs Sunderland korteri fyrir hrun 2008. Áttu einhvern hlut sem tengist liðinu? Já, á einhverja búninga, trefla, könnur og allskonar smáhluti. Hvernig gengur að ala aðra fjölskyldumeðlimi upp í stuðningi við liðið? Hefur ekki reynt á það ennþá svo ég viti til... Hefur þú einhvern tímann skipt um uppáhalds félag? Halló það má ekkert... Uppáhalds málsháttur? Frestaðu því ekki til morguns sem þú getur frestað lengur... Hvað gerðir þú við peningana sem frúin í Hamborg gaf þér? Keypti mér gjaldeyri sem margfaldaðist í hruninu, eða nei það var bara “hagstæða“ erlenda lánið mitt sem fór þá leið. Einhver góð saga úr boltanum? Það var þegar ég spilaði með Stólunum og við vorum að spila á móti Víði í Garði. Við vorum búnir að liggja á þeim og fá nokkur horn, ég fór fram í þessum hornspyrnum og var búinn að ná flestum sköllunum og allir „hárfínt“ yfir, þá kallaði Siggi Donna á mig og las mér pistilinn eins honum einum er lagið „andskotinn er þetta drengur geturðu ekki skallað boltann niður?“ Jú ég hélt það nú, og ekki leið á löngu þangað til við fengum annað horn og ég skunda fram minnugur fyrirmæla þjálfarans „að skalla niður“ og árangurinn lét ekki á sér standa þar sem ég stekk upp á markteig hæst allra og skalla boltann af öllu afli “niður“. Fjandans tuðran fór beint niður í jörðina og hátt yfir markið!!! Þegar ég leit til baka á Sigga hélt hann um höfuðið og var á svipinn eins og hann hefði einn átt að borga ICESAVE... ákvað að ræða þessi afrek mín ekkert frekar við hann. Einhver góður hrekkur sem þú hefur framkvæmt eða orðið fyrir? Var farið frekar illa með mig um daginn. Lét panta fyrir mig vörur úr Ameríkuhreppi sem gekk ekki mjög vel, alltaf tafir og svo kom ekki nema helmingurinn af dótinu í byrjun. Ég var orðinn frekar pirraður þegar félagi minn sem pantaði þetta fyrir mig hringir í mig og segir mér að ég eigi að borga skatt, vörugjöld og toll af öllu draslinu upp á einhverja svimandi upphæð. Þar með var mælirinn fullur hjá mér, skellti á félagann og hringdi umsvifalaust í tollinn og ætlaði heldur að segja þeim til syndanna... sem betur fer var búið að loka í tollinum og ég náði ekki sambandi. Félaginn hringdi svo stuttu seinna og nánast dó úr hlátri í símann þar sem hann hafði verið að ljúga þessu!!! Kiddi Túrbó. Hvaðan kemur Túrbó- nafnið? Það hafa ansi margir spurt að þessu en upphaflega kemur þetta úr fótboltanum, mönnum þótti ég oft á tíðum full “actívur“ við mótherjann... Spurning frá Elfu Sigurjóns. - Ef þú mættir velja einn leikmann úr Arsenal til að ganga til liðs við Liverpool, hver myndi það vera? Svar: Hlýtur að vera ykkar besti maður, Lehmann... eða sennilega Fabregas. Hvern myndir þú vilja sjá svara þessum spurningum? Friðrik Ólafsson. Hvaða spurningu viltu lauma að viðkomandi? Ertu ekki sammála því að þið hafið fengið Torres á brunaútsölu í janúarglugganum? Ekki að ég sé að kvarta... maður er alltaf feginn að fá eitthvað fyrir svona útbrunnar stjörnur. Sauðárkrókur Tindastóll og N1 gera með sér samkomulag N1 og aðalstjórn Tindastóls hafa gert með sér samkomu- lag um að N1 verður einn af aðalstyrktaraðilum Tinda- stóls. N1 mun greiða mánaðar- lega til Tindastóls auk þess sem félagið fær 1 krónu af hverjum keyptum lítra hjá viðskiptavinum með kort frá N1 og í hóp 414 sem er hópur Tindastóls. Að auki fær fólk 5 krónu afslátt sem skiptist í 3 krónu afslátt á dæluverði og 2 krónur í formi punkta auk ýmiskonar afsláttarkjara á bíla- og rekstarvörum. Gunnar Þór Gestsson formaður Tindastóls sagði í spjalli við Feyki: „Við munum ganga í öll hús á Sauðárkróki og bjóða viðskiptakortið. Þeir sem fyrir eru geta sent póst á n1@n1.is og skráð sig í hóp 414.“ Körfubolti Dugnaðar- forkur Þórs Héraðsþing USVH Mikill hugur í fólki Það kom fram á þinginu að stærsta verkefni héraðs- sambandsins er framkvæmd á Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið verður á Hvammstanga dagana 24.-26. júní í sumar. Eins og áður verður stefnt að því að góður hópur ungmenna sæki unglingalandsmótið á Egilsstöðum um verslunar- mannahelgina. Á þinginu var samþykkt ný reglugerð fyrir styrktarsjóð USVH og Húnaþings vestra vegna afreksfólks og afreks- efna. Eins voru samþykktar nýjar reglur um úthlutun styrkja til barna- og unglingastarfs. Að sögn Guðmunds Hauks Sigurðssonar, for- manns USVH, verður upphæð styrkja með svipuðu sniði en þeir voru hækkaðir nokkuð í fyrra. Guðmundur Haukur sagði fjárhaginn í góðu horfi. „Héraðssambandið veður 80 ára á þessu ári og aðalafmælisveislan verður þetta Landsmót UMFÍ 50+. Það er annars hugur í fólki og það verður nóg að gera næstu tvo mánuðina í tengslum við Landsmót UMFÍ 50+,“ sagði Guðmundur Haukur. Á héraðsþinginu í gær var kosið um tvo stjórnarmenn, varaformanninn Pétur Þröst Baldursson og Reimar Mar- teinsson, meðstjórnanda, og voru þeir báðir endur- kjörnir. Myndir og texti: umfi.is Króksarinn og fyrrum leikmaður Tindastóls í yngri flokkum félagsins, Rakel Rós Ágústsdóttir, þótti Dugnaðarforkur ársins hjá Körfuknatt- leiksdeild Þórs. Rakel hefur spilað með meistaraflokk Þórs í vetur. Þá þótti Rakel Rós einnig hafa sýnt mestar framfarir. Feykir óskar Rakel inni- lega til hamingju með verð- skuldaðan árangur. Geturðu ekki skallað boltann niður??? Héraðsþing USVH var haldið í félagsheimilinu Víðihlíð í síðustu viku. Þingstörf gengu vel fyrir sig og mikill hugur í fólki fyrir starfinu. Sæmundur Runólfsson, framkvæmda- stjóri UMFÍ, og Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi UMFÍ, sátu þingið. Sæmundur veitti Pétri Þresti Baldurssyni, varaformanni USVH, starfsmerki UMFÍ. Sæmundur Runólfsson (t.h.), framkvæmdastjóri UMFÍ, veitir Pétri Þresti starfsmerki UMFÍ.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.