Skírnir - 01.01.1959, Blaðsíða 20
16
Alexander Jóhannesson
Skírnir
ráð fyrir að reisa gosbrunn á miðjum kringlóttum bletti í
skálinni og að reisa höggmyndir af sex merkustu Islending-
um í sögu þjóðarinnar, sömuleiðis niðri í skálinni.
Þegar litið er yfir allar þær framkvæmdir, er skýrt hefir
verið frá, sést, að þær hafa allar orðið á síðustu 25 árum.
Sumrnn virtist í byrjun, að háskólabyggingin myndi verða
alltof stór og nægja í nokkur himdruð ár. En sannleikurinn
er, að hún er nú þegar orðin of lítil, eftir 18 ára notkim.
Húsmæðrakennaraskóli Islands var þar til húsa í norður-
kjallara, en hefir nú orðið að flytja í burt. f tíð núverandi
rektors (próf. Þorkels Jóhannessonar) hefir verið hafinn und-
irbúningur undir að reisa Kvikmyndahús háskólans og munu
akademisk hátiðahöld fara þar fram. Ennfremur verður hús
þetta, sem mun hafa um 1000 sæti, hljómleikahöll Reykja-
víkur, og hljómburður hússins verður miðaður við það.
Þar eð ekki hefir í mörg ár fengizt fjárfestingarleyfi til þess
að reisa Náttúrugripasafn ríkisins, en háskólinn hefir á sín-
um tíma skuldbundið sig til að reisa þá bygging, varð það að
ráði, að háskólinn keypti heila hæð, um 650 fermetra stóra,
í stórhýsi við Laugaveg (nr. 105). Verða þar settar upp rann-
sóknarstofur náttúrufræðinga og geymslur fyrir safngripi.
Verða þar unnin öll nauðsynleg störf til undirbúnings, rann-
sókna og skipulagningar fyrirhugaðra deilda safnsins, unz
síðar verður reist hús yfir það.
Þá hafa verið innréttaðar rannsóknarstofur í kjallara
háskólans, fyrir lyfjafræSi lyfsala, rannsóknarstofa í lífeSlis-
frœSi (próf. Davíð Davíðsson), en tilraunastofa í éSlisfræSi
(próf. Þorbjörn Sigurgeirsson), er verið hefir í nokkur ár í
suðurkjallara, mun flytjast í efri hæð íþróttahússins, sem ver-
ið er að reisa, og þangað verða einnig fluttar œfingastofur í
efnafræSi fyrir stúdenta í læknadeild og B.A.-námi, sem hing-
að til hafa verið í byggingu Atviimudeildar háskólans.
Enn er ráðgert að flytja á þessum vetri tannlœknadeild
háskólans, sem verið hefir á efstu hæð háskólans, norðan-
megin og vestan. Mun hún verða flutt í viðbótarbygging
Landsspítalans, sem nú er í smiðum.