Skírnir - 01.01.1959, Page 125
Skírnir
Tvær bænarskrár um Alþingi
121
því verður vel hagað. Vér höfum því ekki vílað fyrir oss, í
fullu trausti konúngligrar náðar, að bera fram með djúpustu
lotníngu álit vort og ástæður um þetta mál fyrir Hans Kon-
úngliga Hátign; þóttumst vér því heldur knúðir til þess, sem
landar vorir eru í fjarska og geta ekki borið fram óskir sínar
í tíma, en vér þekkjum óskir þeirra og ena sterku von, sem
þeir bera til Hans Konúngligrar Hátignar, að hann muni
bæta úr öllu vandkvæði þeirra og ekki linna fyrr enn alþíng
er komið í það horf sem samsvarar vilja hans og þörf þjóð-
arinnar.
Dönsk útlegging atriða þeirra sem vér höfum beðizt að lag-
færð verði áður enn hið fyrsta þíng verður sett, eru rituð
á meðfylgjandi bænarskrá vorri til yðar konúngliga Föður.
Nú fyrir því vér vitum að Yðar konúnglig Tign þekkir
hversu til hagar á Islandi og óskir og þarfir landsmanna, og
þekkjum mildi Yðar og ljúfmennsku oss til handa, þá dirf-
umst vér með djúpustu lotníngu að bera upp við Yður þess-
ar sömu meiníngar og ástæður sem vér höfum þegnsamliga
borið fram fyrir Hans Hátign konúnginn, og vér erum þess
fullvissir, eins og vér biðjum þess hérmeð auðmjúkliga og
inniliga, að Yðar konúnglig Tign muni verða máli voru öfl-
ugur talsmaður, og styðja að því að alþíng komizt í það horf
sem landinu er heillavænligast og mest samsvarar bendíngum
Hans Hátignar konúngsins.
Kaupm.höfn
(Kjöbenh. d. 25 Febr. 1843)
(I dybeste Underdanighed)
Með djúpustu lotníngu
(Nöfnin, sömu sem undir bréfi til konúngsins.)
Konungur lagði bænarskrámar fyrir kansellíið með bréfi
dagsettu 1. marz 1843, sem er svohljóðandi:M) „Over ved-
lagte Andragande, hvori 41 herværende Islændere allerunder-
danigst anholde om forskjellige Forandringer i den paatænkte
Anordning angaaende Indretningen af det islandske Althing,
ville Yi allemaadigst, at Vort Cancellie afgiver allerunder-
danigst Betækning der bliver at referere i Vort geheime Stats-