Breiðfirðingur - 01.04.1945, Blaðsíða 87
BREIÐFIRÐINGUR
85
Fáeinar athugasemdir
Frá Þorvaldi Kolbeins, prentara í Félagsprentsmiðjunni, hafa
ritinu borizt eftirfarandi athugasemdir við grein Péturs Jóns-
sonar frá Stökkum um Bjarna á Reykhólum.
Bjarni á Reykhólum var oftast talinn fæddur 23. apríl 1837, en
samkvæmt prestsþjónustubók var hann fæddur 20. apríl 1838, og
voru foreldrar hans Þórður Steinþórsson, þá bóndi í Belgsholti, og
kona hans Halldóra Böðvarsdóttir bónda á Hofsstöðum og Skán-
ey Sigurðssonar. Bróðir Halldóru var fyrrnefndur Sigurður á
Fiskilæk, faðir Jóns hreppsstjóra í Ivalastaðakoti (f. 1852, d.
1936). — Það er ekki rétt að Bjarni hafi flutzt að Lambastöðum.
Þar álti hann aldrei heima. Þegar þau hjón komu til Reykja-
víkur frá Bíldudal 1909, settust þau að á Laugaveg 17, fluttu það-
an fám árurn síðar að Spítalastíg 9 (nú, Bergst.slr. 14) og þaðan
um 1917 i Vonarstræti 12. Þar dó; Bjarni 25. 5. 1918, og bjó Þórey,
ekkja hans, þar um mörg ár eftir það. Hún fluttist að Lambastöð-
um til Þórðar sonar sins um 1930 og dó þar 2G. 1. 1934. — Um
fjölda heimilisfólks á Reykhólum hefir orðvar, kunnugur maður
sagt mér, að eftir 1880 hafi þar sjaldnast verið færra en 36, en
flest 52.
Greinarhöfundur nafngreinir tvær dætur Bjarna af fyrra hjóna-
bandi, þær, er upp komust, en ekki hin yngri börn hans. Finnst
mér rétt, að þeirra sé hér einnig getið. Arndís og Kristín voru
báðar tvígiftar. Arndís giftist fyrr Guðmundi Guðmundssyni, sjó-
manni, er drukknaði ungur frá Flatey, en síðar IJákoni Magnús-
syni bónda á Reylchólum og síðar á Skálmarnesmúla. Kristín
giftist fyrr Hansi Bjarnasyni skipstjóra í Flatey, en siðar bróð-
ur hans Jóliannesi Bjarnasyni fyrr skipstjóra, síðar sjómanna-
félaginu fjárhagslega, hefir veriö stofnað hlutafélag,
Breiðfirðingaheimilið li.f. Allir, sem styðja vilja þetta
liagsmunamál Breiðfirðinga, geta gerzt hluthafar. Þá
geta þeir, sem é)ska að styðja félag'ið heint með fjár-
framlögum, lagt sinn skerf í heimilissjóð Breiðfirð-
inga. En það er sjóður innan félagsins, er eingöngu á
að stj'rkja þessi mál. Þess er að vænta, að þetta hags-
munamál félagsins fái góðan endi, og að ])ví skapist
þannig bætt og aukin skilyrði til starfsemi sinnar.