Breiðfirðingur


Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 79

Breiðfirðingur - 01.04.1956, Page 79
BREIÐFIRÐINGUR 77 Þrír félagar hafa látizt, svo að ég viti: Jón Guðjónsson frá Litlu-Brekku, Þórdís Jónsdóttir frá Hundadal og Frímann Ólafsson frá Hrísakoti. Vottum við þeim virðingu og ástvinum þeirra hluttekningu með því að rísa úr sætum. Félagsfundir voru alls tíu á árinu. Flestir með sama sniði, þ. e. a. s. félagsvist og dans, og þá rædd um stund þau málefni, sem nauðsyn bar til hverju sinni. Þarna teljast með sumarfagnaður síðasta vetrardag og fullveldisfagnað- ur 1. desember. En auk þessara skemmtikvölda má telja Þorrablót, Breið- firðingakvöld og jólatréssamkomu, sem revnt var að vanda sem bezt til, með skemmtiþáttum, söng, gamanvísum og smáleikjum. Ekki hafa þessar samkomur verið svo vel sóttar, sem óskir og vonir hafa staðið til, og verður naumast sagt, hvað veldur, og væri ástæða til að fólk segði hér, hvers það óskar um samkomuhald félagsins, svo að stjórnin geti betur áttað sig á, hvað gera skal. Undirbúningurinn er mikið og erfitt starf, einkum að Þorrablóti og Fullveldisfagnaði. Og engar kvartanir liafa komið fram. En samtök eru nauðsynleg til blómlegs félags- lífs. Fullveldisfagnaðurinn var einkum ætlaður ungu fólki, en það kom mjög fátt. Nú eru þó öll helztu skemmtikvöld- um helgar og mega því teljast á heppilegum tíma. Tel ég það hiklaust hið merkasta, sem gerzt hefur á þessu ári, að hagkvæmari samningar fengust viðvíkjandi húsnæði og tíma til samkomuhalds. En auðvitað þyrfti að stefna að því, að félagið annaðist sem mest rekstur heimilis síns, eða eignaðist heppilegra húsnæði, helzt á sama stað, ef til vill

x

Breiðfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Breiðfirðingur
https://timarit.is/publication/1303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.