Breiðfirðingur - 01.04.1970, Blaðsíða 82
80
BREIÐFIRÐINGUR
verið kunnur að hagmælsku sem faðir hans og eru margir
pakkar með tilvitnun í ljóð hans í Landsskjalasafninu.
Eitt 13 barna séra Bjarna á Mælifelli var Brynjólfur
er vígður var sem kapelán, til séra Björns mágs síns í Hít-
arnesi 1811, en fékk Miklaholt 1823 og hélt í 20 ár.
Með Guðríði konu sinni átti hann Sigurlaugu, er giftist
fyrrn. frænda sínurn Birni Konráðssyni, sem oftast var víst
nefndur Björn Konráðs. Þau voru því systkinabörn.
Fyrsta barn þeirra var Brynjólfur, en lifði skammt, en
næsta ár 1845, fæddist þeim aftur drengur og þrátt fyrir
ótrú manna almennt á að skíra sama nafni aftur og aftur,
var sá einnig látinn heita Brynjólfur og naut hann lengra
lífs.
Séra Brynjólfur hafði verið rumur að vexti og rammur
að afli og glíminn vel á yngri árum og munu vera ti) þar
um skráðar sagnir og önnur aflraunaafrek. Þar líkist Brynj-
ólfur afa og nafna sínum, að hann var mikill á velli og
sjálfsagt velfær hefði hann nýtt það jafnfast og framburð-
arhæfni sína, en hann var einn fastmæltasti maður er ég
hef þekkt.
Brynjólfur var fæddur 21. marz 1845 (Líklega að Kljá).
Foreldrar hans, Sigurlaug og Björn, munu síðast hafa
búið á bæjartorfu Fáskrúðarbakka, koti er Bakki hét. Það
sanna og vísur þeirra hjóna.
Það hafði verið eitt sinn er Björn kom heim og undi víst
þá sem oftar illa litlum hlut sínum og fátækt, enda víst
meira hneigður fyrir skáldskap og ýmis fræði en brauð-
stritið, og líklega nokkuð veikur fyrir víni.: