Breiðfirðingur - 01.04.1987, Blaðsíða 166
164
BREIÐFIRÐINGUR
er Ragnheiður átti með Jóni Ormssyni í Króksfjarðarnesi.
En áður skal getið Jakobs Björnssonar, sem var yngstur
systkinanna frá Dagverðarnesi, er lögðu leið sína hingað í
sveit. Hann var nokkur ár viðloðandi á Kambi, í manntölum
nefndur söðlasmiður. Þá iðn hefur hann efalaust numið hjá
Stefáni bróður sínum. Pá var á Kambi ung stúlka, Þórdís frá
Heydalsá, systir Sigurðar bónda á Kambi. Þau Jakob og
Þórdís felldu hugi saman, ekki munu þau þó hafa gifst. Einn
son áttu þau saman, Bergsvein að nafni. Hann varð síðar
bóndi á Bálkastöðum í Miðfirði. Jakob fór frá Kambi að
Gillastöðum. Þar eru þau Þórdís í húsmennsku árið 1860.
Síðan mun leið þeirra hafa legið norður að Steingrímsfirði.
Þar í sveitum dó Jakob 30. apríl 1878, rétt kominn yfir
fimmtugt. Ekki veit ég hvað Þórdísi barnsmóður hans varð
langra lífdaga auðið. Ég hefi enga vitneskju um æviferil
hennar eftir að hún var á Gillastöðum 1860.
Þá er röðin komin að þeim Stefáni og Rögnvaldi, sonum
Jóns Ormssonar og Ragnheiðar Björnsdóttur. Stefán ólst
upp í Nesi og á Kleifum eins og áður segir. Hann var ungur
maður er hann gekk að eiga Guðrúnu Andrésdóttur, Guð-
mundssonar og Sigþrúðar Ólafsdóttur. Andrés var Stranda-
maður að ætt og uppruna en Sigþrúður var frá Gautsdal. Þau
bjuggu í Bæ og Gautsdal.
Þau Stefán og Guðrún byrjuðu búskap í Berufirði 1876 og
þar bjuggu þau saman þar til Guðrún dó um síðustu alda-
mót. Þau áttu 4 börn, einn son og þrjár dætur. Þau hétu Eið-
ur, Sigþrúður, Guðbjörg og Sesselja. Tvö þeirra, Eiður og
Sigþrúður, hvorki giftust né áttu börn. Guðbjörg var gift
Guðmundi Guðmundssyni frá Skáldsstöðum. Hann var
síðar kenndur við Borg eða Kinnarstaði. Ekki áttu þau nein
börn. Sesselja giftsti Jóni H. Brandssyni frá Hólum. Þau
bjuggu lengst af á Kambi og áttu saman mörg börn. Jón
Brandsson var mikill framkvæmdamaður, húsaði hann jörð
sína og bætti á margan hátt. Hann varð fyrstur manna til að
leiða vatn í pípum í bæ og skepnuhús og þóttu það mikil
undur á sinni tíð. Hann var snyrtimenni mikið og sinnti vel