Litli Bergþór - 01.12.2015, Side 7

Litli Bergþór - 01.12.2015, Side 7
Litli-Bergþór 7 Um tíma dvöldu foreldrar Sigmars, Sigfús Jónsson (f. 15.06. 1903, d. 20.05. 1981), trésmiður, Henný J. K. Jónsson (fædd Ekanger) (f. 10.10. 1906, d. 15.10. 1969) í Laugarási. Sigfús átti reyndar frumkvæði að því að úr varð að Sigmar og Sigríður fluttu í Laugarás. Hann fékk á leigu, ásamt Henný, það land sem síðar varð Varmagerði og austast í því landi komu þau sér upp aðstöðu í gömlum sumarbústað. Henný starfaði við eldamennsku í Skálholti fyrir menn sem unnu að byggingu dýralæknisbústaðarins í Launrétt meðan þau Sigfús dvöldu hér, en Sigfús vann við þá byggingu, auk þess sem hann aðstoðaði Sigmar og Sigríði við að byggja Sigmarshús. Páll Halldórsson Dungal (f. 27.06. 1937, d. 22.10. 2015) og Hólmfríður Auðbjörg Sigurðardóttir (f. 31.08. 1933) stofnuðu Ásholt 1962, en þau komu frá Sólheimum í Grímsnesi, nýgift. Þau fluttu á staðinn íveruhús í heilu lagi, en aldrei var byggt varanlegt íbúðarhús á landinu. Í Ásholti var nær eingöngu stunduð útirækt á þeim tíma sem Páll var þar. Páll og Hólmfríður skildu eftir 4 ár en hann var áfram í Ásholti til 1985. Þau eignuðust þrjú börn, sem heita: Nanna Sigríður (f. 11.11. 1962), Pálmi Albert (f. 24.02. 1965) og Halldór (f. 23.05. 1967). ÁSHOLT 1962 Hreppsnefnd samþykkti árið 1991 að láta fjarlægja „húsið“ sem Páll hafði dvalið í, á kostnað þáverandi eiganda. 1987 keypti Jakob Havsteen, lögmaður (f. 26.04. 1941, d. 02.09. 2009) Ásholt en hann gerði ekkert með landið eða byggingar. Það var svo árið 1996 sem Jóhann B. Óskarsson (sjá Ásmýri) keypti af Jakob. Hann bjó þar fyrst einn, en frá 1999 ásamt Sólrúnu Héðinsdóttur. Þau byggðu 1100 m² gróðurhús undir plastdúk árið 2000. Stöðina ráku þau síðan til 2004, en byggðu íbúðarhús í Ásmýri sem þau fluttu í 2001. Eigendur og ábúendur frá 2004 eru Ingvar Örn Karlsson (f. 09.06. 1966) og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir (f. 07.12. 1987) og þau eiga soninn Úlfar Frank Skelli (f. 25.07. 2013). Sigmar lést 2001, en Sigríður býr áfram í húsinu. Þau hjón eignuðust tvö börn, en þau eru: Ólavía (f. 11.05. 1956), sem býr á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal og Pétur (f. 16.12. 1979). Hann býr nú í Laugarási 3 (Helgahúsi). Sigmarshús. Páll H. Dungal. Íveruhús Páls og Hólmfríðar. Ásholt.

x

Litli Bergþór

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.