Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Page 127

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2012, Page 127
D ó m a r u m b æ k u r TMM 2012 · 1 127 honum plötu). Mikið er ég þér þakklátur fyrir að hafa ekki skrifað um mig í blöð- in við það tækifæri. Engir aðrir en hégómagjarnir borgarar sækjast eftir þessháttar. En ég skal viðurkenna að ég hefði þegið að þú hefðir tileinkað mér Paradísarheimt. – En með bók sinni Saman lagt spott og speki, merkasta riti sem út hefur komið hér í heimi síðan árið 1781 þegar Kant gaf út Kritik der reinen Vernunft – hefur Elías Mar bætt mér það upp.“ Leikurinn og ólíkindalætin eru á sínum stað – en á bak allt það sér í von um að aðdáunin á stórskáldinu sé endur goldin (gagnkvæm) og nokkur vonbrigði með að Halldór skyldi ekki spand era tileinkun á Þórð á Paradísar- heimt, sem nýkomin er út. Hann vill láta muna eftir sér, hann vill í rauninni fá um sig afmælisgrein, hann vill þrengja sér inn í hug annarra og bækur þeirra eins og fyrr segir. Hann vill skipa stærri sess í sögu Nóbelsskáldsins en vera lítt þekkt fyrirmynd að Organist- anum, en eins og margir vita breyttist Organistinn mjög áður en Halldór lauk við Atómstöðina og varð þá mun líkari Erlendi en Þórði.11 Í bréfinu sem nú var vitnað til var Halldóri undir lokin ögrað með stór- brotnu oflofi um Elías Mar fyrir að skrifa sögu um Þórð. Þar með er komið að öðrum leik með lof og last sem er sýnu alvarlegri en sá sem nú var nefnd- ur. Af hverju fór sem fór? Þórðargleði heitir bókin sem Þorsteinn Antonsson hefur „ritað og saman tekið“ – og þó er bókin um persónu og feril Elíasar Mar. Nú er því að heilsa að þetta er önnur bókin sem skrifuð er um Elías á stuttum tíma. Fyrir fjórum árum gaf Hjálmar Sveinsson út ágæta bók um skáldið sem nefnist Nýr penni í nýju lýðveldi og byggir bæði á samtölum við Elías síð- ustu ár ævi hans og svo athugunum Hjálmars á skáldsögum hans, sem góður fengur er að. Í þeirri bók kvarta bæði Hjálmar og Elías sjálfur yfir því, að hann sé fallinn í gleymsku. Þeir byrjuðu á að snúa því dæmi við og nú heldur Þorsteinn Antonsson áfram – ekki aðeins með Þórðargleði heldur og all- miklu safnriti sem kom einnig út fyrir jól og heitir Elíasarbók. Hún geymir sögur og annan prósa eftir Elías sem ekki hafa áður komið á prent en einnig ljóð áður óbirt. Verður mörgum vafa- laust mest forvitni á að lesa langan bálk og tregafullan sem segir frá sælu vin- fengi og erfiðum vinslitum skáldbræðr- anna Guðbergs Bergssonar og Elíasar Mar.12 Bækur Þorsteins og Hjálmars eru um margt ólíkar. Hjálmar byggir mikið á samtölum við Elías sjálfan. Þorsteinn hefur einnig setið á tali við okkar mann en byggir mest á minnisbókum, dag- bókum og bréfum sem Elías lét eftir sig – en hann var einn þeirra manna sem fáu henti og hafði góða reglu á öllum pappírum. Báðir skoða þeir persónuna Elías, en Þorsteinn gerist mun nærgöng- ulli við hann eins og senn verður vikið að – árekstrar allir og harmar verða mildari í Hjálmarsbók af þeirri einföldu ástæðu að Elías dæmir þar sjálfur úr fjarlægð ellinnar menn og athafnir og hann er maður umtalsfrómur. Hjálmar leggur áherslu á stöðu Elíasar í bók- menntaheimi, á þau tíðindi sem verk hans sættu. Þorsteinn hefur hugann meir við sögu Elíasar sjálfs – sem og við það að finna svör við því hvers vegna Elías hætti að mestu að skrifa hálffer- tugur, eins og fyrr var vikið að. Í fyrri hluta Þórðargleði segir frá bernsku og uppvaxtarárum Elíasar, móðurleysingja og lausaleiksbarns sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.