Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Qupperneq 113

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Qupperneq 113
Á d r e p u r TMM 2013 · 4 113 sem ég hafði talið ásættanlega hellti ég mér í þetta. Ramminn var klár, hver klausa átti að vera eitthvað 15–20 línur (lýsingin á Agli hér að ofan er í það lengsta). Mér fannst ljóst að helstu hetjur sagnanna hefðu á okkar dögum verið frægt fólk og áberandi, rétt eins og það var á sinni tíð; ég hugsaði um lyndis einkunnir þeirra og hæfileika og hvert slíkt hefði skilað þeim. Sumt lá beint við; Njáll Þorgeirsson frá Berg- þórshvoli að sjálfsögðu lögspekingur og ráðgjafi ríkisstjórna – ég bætti því svo við að hann hefði eitt sinn gefið kost á sér í forsetaframboð en óvænt tapað, og telji margir að það hafi verið því að kenna að kona hans þætti ekki nógu „Bessastaðaleg“ og að synir þeirra hafi á sér orð fyrir að vera rustar. Þorgeir Hávarsson var að sjálfsögðu foringi glæpasamtakanna „Fóstbræður“ – víð- frægur ofbeldismaður og handrukkari, talinn hættulegasti fangi landsins. Guð- rún Ósvífursdóttir fékk að verða fyrsti kvenbiskupinn, með sína herfilegu sorgar reynslu af ástmönnum og eigin- mönnum á ferilskránni. Og svo fram- vegis. II Samskiptin við auglýsingastofuna gengu mjög þægilega. Ég sendi mína tíu stuttu texta til þeirra með tölvupósti á tilsett- um tíma, fólkið þar tók við þeim og lét í ljós ánægju, það var einmitt þetta sem þau höfðu beðið um. Svo var málið komið á borð einhvers næsta manns í ferlinu, sá eða sú hélt að ég hefði verið settur af meiri nákvæmni inn í smá- atriði; ég fékk póst um að ég fengi að vita um næstu skref þegar sæist „hvað Halldór og Óttar væru að gera“. Ég vissi ekkert við hverja væri átt og hafði reyndar ekki stórar áhyggjur, en síðar átti eftir að skýrast að Halldór Baldurs- son teiknari hafði verið fenginn til þess að draga upp myndir af nefndum forn- köppum, bæði eins og þeir voru á sinni tíð og líka nú á tímum. Leist mér afar vel á það, enda mikill aðdáandi teiknar- ans. Jafnframt skýrðist að „Óttar“ væri Óttar Guðmundsson læknir og rithöf- undur en hann hafði einnig verið feng- inn til þess að gera það sama og ég. Hann lagði að sjálfsögðu í það metnað sinn, hæfileika og kunnáttu, en ég heyrði samt að það reyndist aðeins flóknara að eiga við hans texta vegna þess að í fyrstu tilraun voru þeir yfirleitt nokkuð of langir, pössuðu ekki inn í það format sem auglýsingafólkið hafði hugs- að sér. Að auki valdi hann kannski óvænta aðferð; í stað þess að einbeita sér að því hvar hetjurnar væru í nútíman- um neytti hann sérþekkingar sinnar sem geðlæknis; tók Gunnar, Njál og Hallgerði og það fólk á dívaninn til sín, greindi geðkvilla þeirra og karakter- bresti. Ég þóttist vita að þetta yrði leyst, og brátt var mér sagt að allt væri á beinu brautinni, komnar flottar myndir frá Halldóri og textar frá Óttari, og hugur í öllum með að gera kynninguna sem glæsilegasta; það var talað um hugsan- lega sýningarveggi, birtingar í blöðum eða tímaritum, kannski heilsíðuauglýs- ingar og veggspjöld, og jafnframt var mér sagt að það væru hugmyndir í gangi um að gera verkefnið sem sýnilegast á sjálfri bókamessunni. Og bar allvel í veiði því að í tengslum við hana kom út heildarútgáfa á Íslendingasögum í nýjum þýskum þýðingum, svo að sögu- hetjur okkar voru í sviðsljósinu þar. Semsagt gott. Ég hafði eins og gengur sent textana á nokkra úr nánasta umgangskreðs, til að fá álit og ábendingar um hugsanlega fingurbrjóta. Þegar ég nefndi verkefnið fyrst hafði einhver misskilið, og haldið að ég ætti að geta mér til um hver af samtímamönnum þessi eða hinn forn-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.