Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Side 114

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2013, Side 114
Á d r e p u r 114 TMM 2013 · 4 kappinn væri nú; stundum heyrir maður sagt eitthvað á borð við: „Þessi væri Davíð Oddsson ef hann væri uppi í dag.“ Þá leið hafði ég ekki farið, því að hver einstaklingur er ólíkur öllum öðrum. Hinsvegar gat ekki farið hjá því að ímynduð örlög fólks og frami hlaut stundum að minna á það sem þekkist hjá okkar samferðafólki, og þannig hafði fleiri en einn sem las þetta yfir sagt sig hafa kannast við frægt fólk úr okkar samtíma; einhver hafði séð eitt- hvað frá t.d. Hemma Gunn, Vigdísi Finnbogadóttur, Bubba Morthens og gott ef ekki Sigurði Líndal og fleirum, ef ég man rétt. Enda verður ekki hjá slíku komist, og ekkert áhyggjuefni að því er ég hélt. En svo var ég staddur í verslun í Bamberg í Frankenhreppi þegar farsím- inn hringdi. Á hinum endanum var maður á Íslandi og honum allmikið niðri fyrir. Þetta var sá lykilmaður á auglýsingastofunni sem sá um málefni Actavis og hafði hringt í mig fyrst; skemmtilegur maður og gaman að kjafta við. En nú var honum ekki hlátur í hug. Fullbúið verkefnið, og áætlun um hvernig því yrði haldið á lofti, hafði semsé verið kynnt fyrir yfirmönnum Actavis. Þarna var þeim sýnt hvað bæði Óttar og ég höfðum sett á blað um Hallgerði, Njál, Gretti, Þormóð Kolbrúnarskáld, Guðrúnu Ósvífurs og Egil Skalla og þau hin, og svo teikningar Halldórs af sama fólki – allt var það í fínu lagi. Svo var presenterað það sem ég skrifaði um Gunnar á Hlíðarenda, en þá varð allt vitlaust. Það blasir auðvitað við að Gunnar er afburða íþróttamaður svo ég sendi hann á unga aldri á skólastyrk í bandarískan háskóla þar sem hann verður hámennt- aður í bissnessklækjum, og græðist jafn- framt mikið fé sem íþróttahetja í fremstu röð. Heim snýr hann ríkur, dáður og öfundaður. Akkillesarhæll Gunnars, eins og honum er lýst í Njálu, er að þrátt fyrir sitt mikla atgervi hættir honum til ofdirfsku og tilheyrandi dóm- greindarleysis. Allt er það í samræmi við ímyndina af útrásarvíkingunum. Svo ég hafði skrifað, um Gunnar heimkominn: Það var á allra vitorði að hann væri orðinn sterkefnaður og þótti mikilvægt að hann fjárfesti hér heima, og þegar ríkisbankarnir voru einkavæddir fékk hann að kaupa einn bankann (þótt seinna sé deilt um hvort hann hafi þurft að borga krónu) og í framhaldinu gerðist hann umsvifamesti viðskiptajöfur lands- ins; eignaðist fjöldann allan af stórum og frægum fyrirtækjum bæði heima og erlendis. Hann barst mikið á og var nokkrum sinnum útnefndur „eftirsóttasti piparsveinn landsins“ – það var svo Hall- gerður sem klófesti hann með tilheyrandi „brúðkaupi aldarinnar“ og hnattferð í endalausum lúxus. Þegar á leið fóru menn að efast um að veldi hans stæði nógu styrkum fótum, og með efnahagshruninu í október 2008 fór eins og allir vita. Veldið hrundi með miklu braki og óhemju tapi fyrir íslenskt samfélag og almenning og reyndar banka og fyrirtæki um allan heim; nú er fullyrt að allt hafi hann gert með svikum og blekkingum. Hann missti allt, en hangir þó enn á sumarhúsi sínu í Fljótshlíðinni; er sagður dveljast þar einn og talinn þurfa að óttast um sig vegna reiði sem hann hefur kallað yfir sig. Maðurinn í símanum sagði mér að Actavismenn væru æfir. Þeir álitu þetta persónulega árás á Björgúlf Thor. Þeir hefðu í hótunum um að slíta án frekari málalenginga öllu samstarfi við auglýs- ingastofuna. „Ég mun missa vinnuna ef þú breytir þessu ekki,“ sagði maðurinn; „you have to save my ass!“ Við áttum eftir að ræðast við tvisvar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.