Ólavsökan


Ólavsökan - 01.07.1943, Blaðsíða 14

Ólavsökan - 01.07.1943, Blaðsíða 14
Sigurður Thorlacius, skólastjóri: Minningarorð um Aðalstein Sigmundsson. Aðalsteinn Sigmundsson er fæddur í Árbót í Aðialdal 10. júlí 1897, dáinn 16. apríl 1943. Hann er kominn af traustu og velgefnu bænda- fólki. Hálfbróðir hans, Steingrímur í Nesi Bald- vinsson, er gáfaður, sjálfmenntaður bóndi og skáld gott. Guðmundur Magnússon (Jón Trausti), rithöfundurinn þjóðkunni, var ná- frændi Aðalsteins. Ungur lærði Aðalsteinn prentiðn og gerðist prentari. Kennarapróf tók hann við Kennnara- slíóla íslands 1919. Sama ár varð hann skóla- stjóri á Eyrarbakka, þorpi á Suðurlandi. Kenn- ari við Austurbæj arskólann í Reykjavík frá 1930. Hann var kunnur skátaforingi og í- þróttafrömuðfur. Um langt skeið var hann for- maður Ungmennasambands Islands og ritstjóri Skinfaxa, tímarits ungmennafélaganna. Hann átti um mörg ár sæti í stjórn Sambands ís- lenzkra barnakennara, og var formaður þess, er hann dó. Síðastliðið haust var hann skipaður námstjóri fyrir Vesturland. Þá var Aðalstenn kunnur fyrir ritstörf, frumsamdi og þýddi marg- ar bækur. Meðal þýðinga hans eru „Far ver- öld þinn veg“, eftir Jörgen Franz Jacobsen, og „Feðgar á ferð“, eftir Hedin Brú. Og í hand- riti „Nóatún“, eftir Vilhelm Heinesen, og „Færeyjar, land og þjóð“, Jörgen Franz Jacob- sen. — Svo sem sjá má af yfirliti þessu, sem þó er ekki tæmandi,gegndi Aðalsteinn Sig- mundsson margvíslegum störfum og naut mik- ils trausts. Hitt var þó miklu meira um vert, hversu heilsteyptur, fórnfús og áhrifamikill hann var í starfi sínu. I umsvifamiklum og margbreytilegum starfsferli Aðalsteins Sigmundssonar, var aug. Ijóst innra samhengi. Hann var í öllu sínu starfi, allri sinni sjálfboðavinnu, fulltrúi æsk- unnar, fulltrúi framfara og þroska, vormaður- inn, sem fagnar gróandi lífi og ber meiri um- hyggju og virðingu fyrir nýgræðingnum, sem milli vonar og ótta skýtur grænum kollinum upp úr grassverðinum en fauskinum, sem með steigurlæti lítur niður á maðkana í móður- moJd sinni og varpar skugga á ungsprotana, er leita Ijóssins fyrir neðan hann. Margur er skáld, þótt hann yrki ekki, segir íslenzkt máltæki. Aðalsteinn orti lítt í bundnu máli og gat þó vel brugðið því fyrir sig. En hann var kennari, æskulýðsleiðtogi og skáld alt í senn og óaðskiljanlega. Það er alkunnugt á íslandi og í Færeyjum, hversu gagnmerkur kennari Aðalsteinn var. Ilann var brautryðjandi í barnakennslu. Fóru saman miklir hæfileikar, þekking og tækni. Kom allt þetta glögglega fram í skólasýning- um hans, sem fjöldi fólks dáðist að, enda var hahn fenginn til þess að halda námskeið fyrir kennara, meðal annars einu sinni í Færeyjum. I þessu sambandi er vert að nefna skólaferð Aðalsteins til Færeyja sumarið 1933, er hann fór með drengjabekk sinn, 8. A, úr Austurbæj- arskólanum. Allir drengir bekkjarins, 23 að tölu, og fimm drengir aðrir voru með í förinni. Þessi ferð er eitt dæmi af mörgum um viðhorf Aðalsteins ti'l Færeyja, og hún sýnir líka á- þreifanlega, hversu vinamargur hann var með- al Færeyinga, því án frábærrar fyrirgreiðslu þeirra og gestrisni, hefði ferðin ekki orðið það, sem hún varð. En Færeyjaför 8. A er merk fyrir annarra hluta sakir. Hún er eflaust ein merkasta kennslufræðileg tilraun, sem gerð hefir verið á Islandi, og markar, í vissum skiln- ingi, tímamót í íslenzkri skólasögu. Til þess að skilja þetta verður að vita um undirbúning far- arinnar, starfið eftir á og áhrifin á drengina, t. d. félagslíf þeirra og samhéldni. Þessu máli hefur ekki enn verið sá gaumur gefinn, sem vert er og síðar mun verða. Einn ríkasti þátturinn í fari Aðalsteins Sig- mundssonar, sem glögglega birtist í ritverkum 14 ÖLAVS0KAN

x

Ólavsökan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ólavsökan
https://timarit.is/publication/1879

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.