Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Blaðsíða 170
173
FRÉTTIR
króki. Að messu lokinni var afhjúpuð stytta Gunnfríðar
Jónsdóttur af Guðmundi góða Hólabiskupi.
Norður-Þingeyingar héldu hátíð í Ásbyrgi 6. og 7. júlí.
Síðari daginn hófst dagskráin á guðsþjónustu kl. 13:30. Séra
Marinó Kristinsson, prófastur Sauðanesi, predikaði. Bland-
aður kór Kirkjukórasambands Norður-Þingeyjarsýslu söng.
Síðar á dagskránni söng kórinn aftur ýmist allur eða hver
kirkjukór fyrir sig. Stjórnendur voru séra Marinó Kristins-
son, Björg Björnsdóttir, Ragnar Helgason og Hólmfríður
Árnadóttir.
Húnvetningar komu saman til hátíðar að Kirkjuhvammi
við Hvammstanga 6. júlí og stóð hátíðin í tvo daga. Við
guðsþjónustu predikaði séra Gísli Kolbeins, Melstað, séra
Pétur Ingjaldsson, prófastur Skagaströnd, las guðspjall.
Samkór 8 kirkjukóra úr báðum sýslunum, um 90 manns,
sungu undir stjórn frú Sigxíðar Schiöth, en Ragnar Björns-
sonð dómorganisti lék undir. Hátíðarræðuna hélt séra Guð-
mundur Þorsteinsson, Reykjavík. Gestur á hátíðina var séra
Valdimar J. Eylands, Norður-Dakota, en hann flutti einnig
ræðu. Hlutur kirkjukóra húnvetninga var mjög stór í há-
tíðarhöldum sýslnanna. Fyrir utan það að syngja við guðs-
þjónustuna og vera með sérstakt atriði annað á dagskrá,
sungu 3 kirkjukórar við afhjúpun minnisvarða Ásdísar á
Bjargi undir stjórn Helga Ólafssonar, Hvammstanga. Fyrr
um sumarið höfðu tveir kórar sungið á kvöldvöku, sem gerð
var í tilefni ársins og flutt var í útvarpið. Þar flutti og séra
Pétur Ingjaldsson erindi. Samkórinn fór síðan suður til
Reykjavíkur og söng á kvöldvöku, sem haldin var í Laugar-
dalshöllinni í tengslum við sýninguna Þróunin og Þjóðin.
Eyfirðingar héldu hátíð sína dagana 19. og 21. júlí. Há-
tíðarmessa var í Akureyrarkirkju kl. 11:00 á sunnudegin-
um. Þar predikaði séra Stefán V. Snævarr, prófastur, Dalvík.
Kirkjukórar Akureyrar- og Lögmannshlíðarsóknar sungu
undir stjórn Jakobs Tryggvasonar, organista við Akureyrar-
kirkju. Hátíðarhöldin fóru að öðru leyti fram í Kjarnaskógi,