Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Qupperneq 25
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HÓLASTIFTIS
29
svæði, allfjarri byggðum bólum. Fyrir minn smekk er þetta
óviðfeldið og mér finnst það hljóti að taka langan tíma að
þvílíkt guðshús í útlegð öðlist það líf og þá helgi sem maður á
að réttu lagi að skynja í kristinni kirkju. Oft er talað um að
það sé sál í húsum. Önnur eru sálarlaus. Gömlu íslensku
kirkjurnar hafa sál, meðal annars af því að þær eru heima við
mannabústaði eins og þær eiga að vera og voru reyndar ætíð
fyrr á tímum undantekningarlaust. Strandarkirkja er sér á
parti. Hún stendur á einmanalegum stað, en það er ekki af því
að hún hafi verið hrakin úr mannheimi eins og sumar aðrar
kirkjur og ekki einu sinni út úr kirkjugarðinum sem betur fer,
heldur er það af því að náttúruöflin, uppblásturinn í Selvog-
inum, hefur hrakið mannfólkið burt af staðnum, kirkjan ein
stóðst raunina og þraukaði á sínum fornhelga grunni.
Mörgum hefur blöskrað að fjórar kirkjur skuli vera og séu
reyndar enn í ekki stærra héraði en Svarfaðardalur er. Og satt
er það að skammt er þeirra í milli, svo að óvíða sést annað eins.
Það er því síst að undra þótt sú hugsun hafi skotið upp
kollinum að hér væri réttast að grisja nokkuð. Fyrst bólaði á
þessu þegar séra Jón Bjarnason Thorarensen, sem prestur var
hér á Tjörn 1846-69, kom til brauðs síns. Hann fór fram á það
við hlutaðeigandi yfirvöld að Upsasókn yrði sameinuð
Tjarnarsókn þegar séra Baldvin dæi, Upsakirkja yrði lögð
niður og skyldi hann síðan byggja nýja timburkirkju á Tjörn,
,,en anstændig kirke“, sómasamlega kirkju. Yfirvöldin féllust
á þetta og sjálfur kóngurinn skrifaði upp á það, en söfnuður-
inn í Upsasókn reis öndverður gegn þessu og báðu biskup að
sjá til þess að þeir fengju að halda kirkju sinni eins og verið
hefði um aldir. Buðust þeir til að hjálpa presti til að byggja
nýja kirkju á Upsum og lofuðu að halda henni þokkalega við.
Allir valdamenn studdu Upsamenn í þessu og fengu þeir vilja
sínum framgengt, enda sætti séra Jón sig vel við þessar
málalyktir þegar til kom. Þetta mun hafa flýtt fyrir því að
gamla torfkirkjan á Upsum var rifin og timburkirkjan byggð
á Upsum á árunum 1853-54.