Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Side 51
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HÖLASTIFTIS
55
Ólafur giftist norskri konu, Herborgu Eldevik, sem var
kennari að mennt og eignuðust þau 5 börn. Synir þeirra tveir,
Jóhannes og Haraldur, hafa báðir verið kristniboðar í Eþí-
ópíu, Jóhannes læknir, en Haraldur kennari og biblíuþýð-
andi. Haraldur er enn að störfum þar.
Starfstími Ólafs og Herborgar í Kína var að mörgu leyti
erfiður. Hungursneyðir geisuðu og óeirðir miklar. Hefur
Ólafur sagt frá því í bók sinni, „Fjórtán ár í Kína.“ Fjöl-
skyldan kom alkomin heim til Islands 1938 og upp úr því og
til dauðadags ferðaðist Ólafur um landið þvert og endilangt,
sagði frá starfinu í Kína og prédikaði Guðs orð. Ólafur dó árið
1976. Eftirlifandi kona hans, Herborg, býr í Reykjavík og
börnin þeirra 5 eru öll á lífi.
Annar kristmboðinn.
Bjarni Eyjólfsson skrifar áfram:
„I fundargerð fyrsta fundar bráðabirgðastjórnar þeirrar
sem kosin var við stofnun Kristniboðssambandsins, er skráð
nafn ungs manns, Jóhanns Hannessonar. Var svo skýrt frá, að
hann ætti kost á aðgangi að kristniboðsskóla í Stavangri í
Noregi á komandi hausti. Er þess getið í fundargerðinni, að
stjórnarmeðlimir allir hafi fagnað því og þótt sjálfsagt, að
kristniboðsfélögin hér heima greiddu götu hans, í orði og
verki. Þetta var hið formlega upphaf af samstarfi Jóhanns
Hannessonar, kristniboða, — seinna prófessors í guðfræði við
Háskóla Islands, — og íslenzks kristniboðs. SlK styrkti siðan
Jóhann til náms, bæði í Noregi og við guðfræðideild Háskóla
Islands.
Jóhann var vígður prestsvígslu í Dómkirkjunni í Reykjavik
af biskupi landsins, dr. theol. Jóni Helgasyni. Var það ein-
stæður atburður í kirkjusögunni, er fyrsti kristniboðsprestur
landsins var vígður.
Jóhann fór síðan utan og stundaði framhaldsnám í guð-
fræði, m.a. í Sviss. Árið 1938 fóru þau hjónin til Kína og
störfuðu þar öll styrjaldarárin. Jóhann giftist norskri konu,