Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 95
PRESTAFÉLAGS HINS FORNA HOLASTIFTIS
99
kirkjunni frá einstaklingum og félögum. Hið unga bæjarfélag
lagði einnig fram drjúgan skerf. Var kirkjusmiður ráðinn
Þorsteinn Sigurðsson og gekk smíðin vel undir hans stjórn, en
fjöldi manns lagði fram vinnu við verkið. Kirkjan er vönduð
og vegleg bygging. Hún rúmaði í fyrstunni allan söfnuðinn í
sæti. Nú hefur hann hins vegar stækkað svo, að hún rúmar
aðeins tæpan tíunda hlut sóknarmanna.
Það var eftir 1960 að kirkjan eignaðist safnaðarheimili. Þá
var gamla sjúkrahúsið keypt, en það stendur við hliðina á
kirkjunni og hentar söfnuðinum einkar vel. Þar eru fundar- og
samkomusalir, eldhús og skrifstofa sóknarprests á neðri hæð-
inni en á efri hæð er nú hin myndarlegasta aðstaða til æsku-
lýðsstarfsemi.
Sauðárkrókssöfnuður hefur ætíð hlúð vel að kirkju sinni og
yrði of langt mál að telja upp það sem gert hefur verið henni
til góða. Þó skal á það minnst, að byggt var við kirkjuna,
lítillega, þar sem nú er skrúðhús og stigagangur en salerni í
kjallara. Myndflutningskerfi hefur verið gefið kirkjunni
þannig að hægt er að fylgjast með messum og samkomum á
sjónvarpsskermi í aðalsal Safnaðarheimilis.
Það er vel við hæfi að ljúka þessu greinarkorni með tilvitn-
un í ritsmíð sr. Árna Björnssonar er hann minntist bygging-
arára kirkjunnar í Kirkjublaðinu. Þar segir hann svo: „Sauð-
árkrókssöfnuður er langt frá því að geta kallast ríkur, en með
allri framkvæmd sinni í kirkjubyggingarmálinu hefur hann
greinilega sýnt, hversu einhuga samheldni og bræðralag á
furðulega hægt með að framleiða þúsundirnar. Það er ekki
ávallt fátæktin einber, sem stendur gagnlegum og góðum
fyrirtækjum fyrir þrifum.“
Sr. Hjálmar Jónsson.