Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 116
120
TlÐINDI
Bægisárkirkju á liðnum árum og gat um stórgjafir sem borist
höfðu í tilefni afmælisins. Má þar nefna kr. 500.000 (Gkr.) frá
Steindóri Pálmasyni frá Garðshorni og kr. 50.000 (Gkr.) frá
Kvenfélagi Hörgdæla, en það félag hafði nokkru áður gefið
kr. 20.000. Sóknarprestur þakkaði þær viðgerðir og endur-
bætur sem fram höfðu farið á kirkjunni á síðari árum og alla
umhyggju heimafólks og sóknarnefndar sem til fyrirmyndar
væri. Sóknarnefnd hefur einnig til umsjár kirkjugarðinn á
Myrká í Hörgárdal en hann er enn í notkun og hafði nýlega
hlotið góða aðhlynningu, þótt kirkja á Myrká væri aflögð
1910 og sóknin lögð til Bægisársóknar. Nokkrir góðir gripir úr
Myrkárkirkju eru enn varðveittir í Bægisárkirkju, og hafði
sóknarnefnd t.d. látið lagfæra gömlu altaristöfluna og hengja
upp á hliðarvegg í Bægisárkirkju. Var það gert um svipað
leyti og kirkjan var máluð innan, rafhituð og þakið lagfært
eða 1969. Nokkrum árum síðar voru bekkir kirkjunnar
klæddir rauðu plusáklæði. Að loknum fundi í kirkjunni voru
góðgerðir þegnar á heimili staðarhaldara, Árna S. Her-
mannssyni og konu hans, Róslínar Jóhannesdóttur.
Kirkjan að Ytri-Bægisá er standklædd timburkirkja, turn-
laus, en forkirkja, jafngömul kirkjunni, er með klikkulaga
þaki sem er nokkru lægra en stafn kirkjunnar. Að innan vekur
athygli hinn óvenju rúmgóði kór og að kirkjan skyldi byggð
„tvílyft“ þ.e.a.s. söfnuðinum ekki aðeins ætlað að sitja í
kirkjuskipinu heldur einnig á kirkjulofti sem nær yfir allt
skipið að þverbita við prédikunarstól. Mun svo hafa haldist
lengi fyrr á árum.
Séra Arngrímur Halldórsson er sat Bægisá 1843-1863 hafði
yeS °S vanda af kirkjusmíðinni. Hann réði Benoní Jónsson,
Akureyri, sem yfirsmið en kirkjuna teiknaði Sigurður Sig-
urðsson, timburmeistari á Akureyri. Skv. byggingarreikningi
séra Arngríms, dags. 16.11. 1858 var heildarkostnaður við
kirkjusmíðina 1279 ríkisdalir, 2 spesíur og 6 skildingar, sem
þótti nokkuð hátt verð á þeim tíma. Það var þó bót í máli að
upp var risið hið veglegasta guðshús. 1 vísitasíugjörð prófasts,