Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1984, Page 132
136
afhent við guðsþjónustu, sem drengirnir frá Ástjörn tóku
ríkulegan þátt í.
Nú er í undirbúningi að stækka kirkjugarðinn og slétta
gamla garðinn. Kirkjan er í góðu ástandi.
GuðnýJ. Tryggvadóttir,
ritari sóknarnefndar.
Fréttabréf frá Svalbarðskirkju
í Þistilfirði
Frá safnaðarlífi hér i Þistilfirði er fátt að frétta, en þar sem
alllangt er um liðið síðan héðan hafa verið birt nokkur tíðindi
ætla ég að tína til það helsta og fer nokkuð aftur í tímann.
Árið 1901 kom að Svalbarði merkispresturinn sr. Páll
Hjaltalín Jónsson og sat hann staðinn til ársins 1928, er hann
fluttist til Raufarhafnar, en þjónaði Svalbarði til dauðadags
1942.
Eftir lát sr. Páls færði ekkja hans, Ingveldur Einarsdóttir,
kirkjunni að gjöf ljósprentaða Guðbrandsbiblíu. Og sóknar-
börnin gáfu kirkjunni kertastjaka skorinn í eik til minningar
um sr. Pál. Þetta er mjög fagur gripur og áberandi, enda
listaverk, skorinn af Karli Guðmundssyni myndskera.
Margar fleiri gjafir hafa kirkjunni borist. Skírnarfont út-
lendan gáfu börn Hjartar hreppstjóra Þorkelssonar og Ing-
unnar Einarsdóttur á Ytra-Álandi. Þau voru foreldrar sr.
Hermanns á Skútustöðum. Fagra ljósakrónu og vandaða
stjaka gaf Hjálmar Kristjánsson frá Sundi í Höfðahverfi fyrir
nokkrum árum.
Ljósakross var gefinn á kirkjuna af Lionskl. Fonti. Út-
saumaðar myndir og innrammaðar, 30 sálmabækur, ljós-
kastari og fleiri gjafir hafa kirkjunni borist.