Helgarpósturinn - 04.03.1983, Blaðsíða 2

Helgarpósturinn - 04.03.1983, Blaðsíða 2
Föstudagur 4. mars 1983 Irjnn X K Skrifstofustjóri Skrifstofustjóri óskast til Þormóös Ramma hf. Siglu- firði. Þarf aö geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir sem greini frá aldri, menntun og fyrri störf- um ásamt meðmælum sendist fyrir 20. mars til stjórn- arformanns Hinriks Aöalsteinssonar Lindargötu 9 Siglufirði sími 96-71363 sem jafnframt gefur allar nánari upplýsingar ásamt framkvæmdastjóra í síma 96-71200. Þormóður Rammi Siglufirði. Rithöfundar á Norðurlandi hafa myndað með sér félag sem þeir kalla Félag rithöf- unda á Norðurlandi (F.R.Á.N). Stofnfundurinn var haldinn fyrir tveim vikum og sóttu hann tólf manns. Félag þetta er nokkurskon- ar angi út frá Menningarsamtökum Norðlendinga, sem hafa hvatt til myndunar sérhópa innan samtak- anna. Markmið hins nýja félags er að auka samstöðu og kynningu á milli rithöfunda á Norðurlandi. Þá mun félagið efla upplýsingamiðlun á milli rithöfunda og fyrir þá, og má þar nefna upplýsingar um út- gáfur, styrki o.fl. Einnig mun það vera stefna félagsins að efna til bók- menntakynninga i skólum og víðar. Stjórn félagsins er skipuð þeim Er- lingi Davíðssyni, Óiafi H. Torfasyni og Heiðdísi Norðfjörð. Af öðrum stofnfélögum má nefna Guðmund Frímann, Guðmund F. Halldórs- son, Guðmund L. Friðfinnsson, Braga Sigurjónsson, Signýju Páls- dóttur og Jónu Axfjörð... C j í framhaldi af þessu var hald- f'/, inn undirbúningsfundur fyrir stofnun Félags leikfélaga á Norðurlandi, og fór hann fram um síðustu helgi. Þar mun m.a. hafa verið ákveðið að reyna að efna til listahátíða norðanlands og verður sú fyrsta kannski strax í vor... En listamenn eru ekki þeir einu á Norðurlandi, sem eitthvað eru að brugga. Svokallaður græningjahópur hefur FLOT KRAFTUR I Nýí flotteínnínn frá Hampíðjunní heítír KRAFTFLOT. Fléttuð er kápa úr kraftþræðí utan um flotköggla, bæðí kúlur og sfvalninga. Um tvær gerðír Kraftflots er því að velja. Teínninn er lipur í notkun, hann hríngast vel vegna lögunar flotanna og þolír allt að 250 faðma dýpí. Uppdríf hans er 5-6 kg og slítstyrkur 3 tonn* *Við hvetjum menn þó eindregið tíl að hlffa teininum við svo miklum átökum, því annars geta flotin aflagast og misst við það nokkuð af flothæfi sínu. HAMPIÐJAN komið saman vikulega á Akureyri síðan um áramót. Þetta er 10—15 manna hópur, sem hefur látið hug- ann reika um lífið og tilveruna og hafa maðurinn og vistkerfið verið lögð til grundvallar. Hópurinn er að vinna að stefnuskrá sinni um þessar mundir og talsmenn hans útiloka ekki framboð eins og gerst hefur í Þýskalandi, þótt ekki verði það í næstu kosningum... ^'1 Haukur Már Haraldsson, / i blaðafulltrúi ASÍ, sem sagði -^lupp störfum i framhaldi af hvellnum sem varð vegna málefna kanadísku verkamannanna á vest- fjörðum, hættir væntanlega um næstu mánaðamót, og snýr sér að „free-lance” mennsku allskonar, í blaðamennsku- og útgáfuheimin- um. Ekki hefur enn verið ákveðið með eftirmann hans... Vl Þegar um Morthensa er að f~ J ræða virðist tónlistargáfa i. y vera í genunum. Haukur Morthens er fyrir löngu orðinn eins klassískur og dægurlagasöngvarar geta orðið og Bubbi Morthens á ekki langt í sama land. Nú heyrum við að bróðir Bubba, Þorlákur Kristinsson (Morthens), kallaður Tolli, sé að taka upp plötu með frumsömdu efni. Þorlákur hefur einbeitt sér að myndlist undanfarið og mun platan tekin upp í hljóðrit- unaraðstöðu Myndlista- og hand- íðaskólans... Önnur plata og óvenjuleg 'f' J mun í vinnslu og standa að y henni tveir gamlir samstarfs- menn úr Spilverki þjóðanna og Stuðmönnum Valgeir Guðjónsson og Sigurður Bjóla... Það hefur ekki farið fram hjá neinum að SÁÁ samtök < áhugafólks um áfengis- vandamálið, hafa hrint af stað landssöfnun til að geta byggt sjúkrastöð í nágrenni Reykjavíkur. Er ætlunin að safna 25 milljónum króna og hefur fyrirtækið Frjálst , framtak hf. fengið fimmtung af þeirri upphæð til að reka söfnun- ina. En kapp er best með forsjá, það vita forráðamenn SÁÁ núna þegar í ljós hefur komið, að því er sagan segir, að þeir gleymdu að sækja um leyfi dómsmálaráðuneytisins fyrir söfnuninni eins og lög gera ráð fyr- ir. Væntanlega verður leyfið gefið út og látið virka aftur í tímann, enda erfitt að banna söfnun sem forsetinn, biskupinn og forsætis- ráðherrann hafa blessað með því að vera efst á lista... ...og söfnun SÁÁ hefur / i víðar vakið taugatitring og -^' ergelsi — ekki síst í Útvegs- bankanum, sem öðrum bönkum betur hefur stutt við starfsemi SÁÁ og m.a. komið á fót sparisjóðnum Átaki. Söfnunarféð á nefnilega að fara inn á reikning í Búnaðarbank- anum, þar sem Frjálst framtak h.f. hefur viðskipti sín...

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.