Helgarpósturinn - 04.03.1983, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 04.03.1983, Blaðsíða 8
8 sÝniiiysirsnlir Norræna húsið: Jóhanna Bogadóttir opnar á laugar- dag sýningu á grafík, málverkum o.fl. Brian Pilkington heldur áfram að sýna Gilitruttmyndir sfnar í anddyri. Ásmundarsalur: Erla B. Axelsdóttir opnar pastel- myndasýningu á laugardag. Sýn- Ingin er opin kl. 16—22 virka daga og 14—22 um helgar, og lýkur henni 13. mars. Rauða húsið, Akureyri: Kristján Steingrímur Jónsson opnar sýningu á laugardag. Nýtt málverk eins og þaö gerist best. Opið kl. 16—20 virka daga og 14—22 um helgar. Gallerí Langbrók: Sigrid Valtingojer opnar sýningu á grafík og teikningum á laugardag. Sýningin er opin 12—18 virka daga og 14—18 um helgar. Listmunahúsið: Margrét Guðmundsdóttir sýnir eró- tiskar myndir með meiru. Opiö kl. 10—18virkadagaog 14—18um helg- ar. Lokað á mánudögum. Kjarvalsstaðir: Blaðaljósmyndarar sýna afrek sín í Vestursal. Emile Zola Ijósmyndir í Kjarvalssal. Helgi Gisla sýnir högg- myndir á göngum og sýning á tillög- um arkitekta um verkfræöingahús. Bókasafn Kópavogs: Teboö leynifélagsins. Félagar i Med- Osu sýna súrrealisma. Opiö á venju- legum opnunartima safnsins. . Gallerí Lækjartorg: Erla Ólafsdóttir opnar Ijósmyndasýn- ingu á laugardag. Allar myndirnar eru í lit og af margvíslegum viðfangsefn- um. Opið kl. 14—18 nema fimmtu- daga og sunnudaga, þá 14—22. Nýlistasafnið: Franski listmálarinn Felix Rozen opn- ar sýningu í kvöld, föstudag, kl. 20. leiklnís Gránufjelagið: Fröken Júlía eftir Strindberg. Sýning í Hafnarbíói á sunnudag kl. 14.30. Menntaskólinn við Sund: Galdra Loftur eftir Jóhann Sigurjóns- son. Sýningar á föstudag og sunnu- dag kl. 20.30. Nemendaleikhúsið: Sjúk æska eftir Ferdinand Bruckner. Sýningar í Lindarbæ á föstudag og sunnudag kl. 20.30. Leikbrúðuland: Þrjár þjóðsögur: Gípa, Umskipting- urinn og Púkablístran sýndar í sið- asta sinn að Frikirkjuvegi 11 á sunnu- dag kl. 15. Miðapantanir í síma 15937. Leikbrúðuland fer svo til Noregs 11. mars og tekur þar þátt í leikbrúðuhá- tíð. Revíuleikhúsið: Karlinn f kassanum eftir Arnold og Bach. 40. sýning á þessum sívinsæla ærslaleik á sunnudag kl. 21. Næsta sýning á fimmtudag kl. 20.30. Saga Jónsdóttir er leikstjóri. Leikfélag Akureyrar: Ðréfberinn frá Arles eftir Ernest Ðruun-Olsen. Sýningaráföstudagog sunnudag kl. 20.30. Siðasta sýningar- helgi. Myndlistarsýningin Fólk er enn á sinum staö og oþnar einni stundu áður en leiksýning hefst. Leikfélag Grindavíkur: Getraunagróði eftir Philip King. Sýn- ingar i Kvennó í Grindó á föstudag kl. 20.30 og um miöjan dag á laugardag. Þjóðleikhúsið: Föstudagur: Þrumuveður yngsta barnsins. Bandariskur gestaleikur. Laugardagur: Lína langsokkur eftir Lindgren. Kl. 12. Oresteia eftir Æský- los. kl. 20. Sunnudagur: Lfna langsokkur kl. 14 og 18. Litla sviðið: Súkkulaöi handa Silju eftir Nínu Björk Árnadóttur. Sýning á sunnudag, kl. 20.30. Leikfélag Reykjavíkur: Föstudagur: Forsetahelmsóknin eft- ir Régo og Bruneau. Laugardagur: Salka Valka eftir Hall- dór Laxness. Sunnudagur: Jói eftir Kjartan Ragn- arsson. Austurbæjarbíó: Hassið hennar mömmu eftir Dario Fo. Laugardagur kl. 23.30. íslenska óperarv: Litfi sótarinn eftir Benjamin Britten. Sýning á sunnudag kl. 16. Föstudagur 4. mars ^o^tuFiFix Bubbi kóngur hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar — fantasía sem í raun er realismi. Bubbi kóngur — klassík í Firðinum Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir Bubba Kóng Höfundur: Alfred Jarry Þýðandi: Steingrímur Gautur Kristjánsson Leikstjóri: Árni Ibsen Tónlist: Atli Heimir Sveinsson Söngtextar: Þórarinn Eldjárn Ljósameistari: Daníel Helgason Dansar: Helga Magnúsdóttir Hljómsveitarstjóri: Jóhann Mor- awek. Gróskan Alltaf sama gróskan h/f. Þar eftir Siqurð Pálsson sem ekki er verið að stofna leikfé- lög er verið að endurreisa gömlu félögin. Suður í Hafnarfirði er nýbúið að blása lífi í Leikfélag Hafnarfjarðar og þau hafa valið verk af líflegri gerðinni: Ubu Roi eða Bubbi Kóngur eins og Steingrímur Gautur nefnir hann. Bubbi er nú ekki neitt venjulegt grínleikrit og í raun ekki neitt venjulegt leikrit. Þetta verk og önnur eftir Alfred Jarry eru sígild dæmi sem tekin eru þegar menn vilja leita að rótum absúrdista og myndbrjóta þessarar aldar. Hann var sjaldgæflega brilljant sérvitringur hann Jarry. Vitring- ur kannski eða lífsvitringur. Hann fæddist 1873 og dó 1907; náði semsé þetta 34 ára aldri eða svo. Leikritin um Bubba eru hans þekktustu verk, fimm að tölu og stundum klippt saman til sýninga en það eina sem þýtt hefur verið er Bubbi Kóngur, fyrsta verkið um Bubba. Steingrímur virðist mér hafa fundið oftlega nokkuð kraftmiklar lausnir í þýðingunni. Þó er vandasamt að finna góðar lausnir á mörgu, t.d. strax fyrsta orði leiktextans, hinu fræga mer- dre sem Bubbi æpir útí salinn en merde þýðir drulla á frönsku. En hvað þýðir þá merdre með einu auka erri? Það þýðir væntanlega líka drulla, svo langt sem það nær, en Jarry bætti þessum staf við til áhersluauka og lék sér þannig gjarnan með tungumálið. Þegar Bubbi æpti þetta orð útí salinn á frumsýningu 1896 urðu margir óhressir og grisjaðist nokkuð áhorfendaskarinn í saln- um. Undirtitill Bubba er á þessa leið: „lengst hlé eftir frumsýn- ingu“, en þar hitti Jarry naglann því eftir þessa frumsýningu var Bubbi ekki sýndur þartil minnir mig uppúr 1950. Frelsi Upphaflega var Bubbi saminn að stofni til í menntaskóla og var hann skrifaður til háðungar ein- hverjum ofstopafullum kennara sem fór í taugarnar á Jarry. Þann- ig varð ákveðið áhyggjuleysi æsk- uára þessa prýðispilts til þess að skapa eitt þekktasta anti-leikrit nútímans. I frægri ritgerð „Um ónauðsyn leikhúss í leikhúsi" gerði Jarry altæka atlögu að leikhúsi síns tíma. Ekki stendur eiginlega steinn yfir steini. En meðan Jarry lifði hafði hann minni áhrif en efni stóðu til vegna þess hvað hann var langt frá hinu venjulega; hann fékk í raun frelsi trúðsins, menn sættust á að taka hann ekki nærri sér vegna þess hvað hann var brjálæðislega sér- kennilegur til orðs og æðis. Það eru til mörg þúsund sögur af upp- átækjum Jarrys og tilsvörum. Hann hafði þann háttinn á, að á veitingahúsum pantaði hann fyrst kaffi og koníak, síðan eftirréttinn svo aðalrétt, þá forrétt og bað loks um fordrykk. Máltíðirnar tengdi hann svo saman með rauðvínsdrykkju og varð það honum ekki til langlífis. Hann var haldinn ýmsum áráttum, var m.a. byssuóður og skaut í tíma og ótíma á það sem vakti athygli hans; fór sér þó ekki að voða. Hjólreiðafrík var hann algjört. Ekki munaði hann um að finna upp nýja grein vísinda; patafýsik kallaðist hún og var m.a. fólgin í að finna ímyndaðar lausnir á upp- diktuðum vandamálum. Ibsen Bubbi er mikið settur upp og hef ég séð hann oítlega og m.a. í uppsetningu Peter Brooks. Jean- Louis Barrault og margir helstu leikstjórar hafa líka sett upp samantekt úr Bubbunum. Hann var settur upp í M.R. í fyrsta sinn á íslandi fyrir uþb. 14 árum og lék Davíð Oddsson þá titilhlutverk- ið, leikstjóri var Sveinn Einars- son, en tónlist og textar Atla Heimis og Þórarins voru þá samdir og notaðir nú aftur í sýn- ingu Árna Ibsens í Hafnarfirði. Tónlistin er satt best að segja al- veg geysigóð; íturbubbísk og spræk, grípur vel inní og kommenterar og drífur bubbism- ann áfram. Raunar hefur Árna tekist prýðisvel að ná góðu drævi l á sýninguna, þó nokkrir leikhlekkir séu veikari en aðrir þar sem þjálfunarskorturinn spillir fyrir. Þó er mest um vert að bæði Jón Sigurðsson og Kristín G. Gestsdóttir hafa styrkleika til þess að koma Bubba og Bubbu til skila. Ég ætla ekki að minnast á aðra, nema Jóhönnu G. Linnet sem söng og lék af miklum krafti. Leikmyndin er prýðisvel virk, samansett úr stafakubbum sem uppraðaðir mynda ýmis orð og barnateikningar í óhaminni lita- dýrð eru á veggjum. Sú tilvísun er alveg rétt: það er í Bubba frum- kraftur sem engu eirir og tekur á sig ýmsar myndir, oftast barns- lega græðgi, en líka grimmd og heimsku alveg voðalega, og jafn- framt mislukkaða slægð og alls- herjar heybrókarhátt og alltaf í algeru hömluleysi. Stundum hef- ur Bubbi verið settur upp í löndum harðstjórna og hafa menn þá skilið fyrr en skellur í tönnum og Bubbi þá verið hápól- itískur. Það var þó mál manna hér fyrir nokkrum árum að Idi Amin hefði farið svo gjörsamlega fram úr Bubba að lengra sé erfitt að komast. En það ber heiminum dapurt vitni að fantasía Jarrys sé í raun realismi. Það er mikið ánægjuefni að Hafnfirðingar láti til skarar skríða og endurreisi leikfélag sitt. Það er dálítið erfitt að halda úti slíkri starfsemi svona nálægt Reykjavík, en ég hygg að valið sé gott hjá þeim og uppsetning samviskusamlega unnin hjá Árna. Bubbi er klassík. S.P. götunni og meðal alþýðu manna í New York og einnig höfðu þau verkstæði með börnum. Þetta var í kringum 1965 eða svo. Andófið gegn stríðsrekstrinum í Viet Nam var í fullum gangi. í tengslum við það gerðu BPT mjög kyrrlátar og ljóðrænar sýningar svo sem Fire og Ungi maðurinn sem kveður móður sína. Oft voru þau mætt til leiks í mótmælagöngur með ris- astóru brúðurnar sínar, en það sem þau færðu fram var alltaf miklu víðtækara en tilefnið í það og það skiptið og þótti mörgum dogmatískum ákafabaráttum- anninum þetta alltof óljóst hjá þeim. Þau voru að tala um stærri hluti en litlu kallarnir þoldu, t.d. dauðann. Gjarnan var líka helgil- eikjablær yfir sýningum þeirra, m.a. var brauði yfirleitt útdeilt í upphafi. Þetta þótti mörgum, man ég var, einum um of trúar- legt eða eitthvað. En málið er, að þau voru og vonandi eru magnað leikhús, sem hefur haft geysileg áhrif og nægir að nefna t.d. brúðuúrvinnslu í sýningum Sól- arleikhússins, leikhús Tadeus Kantor, stöku sýningar Antoine Vitez o.s.frv. Annars er ég pínulítið hræddur að segja ykkur að Bread and Puppet T'heater sé eitthvað merkilegt. Ég lenti einu sinni í því að fara með vini mínum á The Cry og The People for Meat og var búinn að tilkynna honum að þetta væri stórkostlegt. Honum fannst minna en ekki neitt varið í sýninguna. Kannski var hún of langt frá þessu venjulega. Á slík- um stundum grípur mann ein- manaleikinn h/f. S.P. Brauð og brúðuleikhúsið Þetta er ansans ári saman- þjöppuð leiklistarvika. Fröken Júlía á mánudag. Bubbi á þriðju- dag. Oresteia á miðvikudag. Bread and Puppet Theater fimmtudag. Ekki gefst tóm til að skrifa um Oresteiu áður en blaðið fer í prentun og ekki heldur til að sjá fyrri sýningu Bread and Pupp- et (sú síðari er daginn eftir). Þetta er líka í rauninni ansans ári skemmtileg vika. Svona á að hafa þetta: einskær klassík. Því þetta er allt saman klassík. Júlía, Bubbi og Oresteia, þið voruð með það á hreinu. En B&P T? Það er kannski ekki hægt að segja akkúrat klassík, en svo að menn séu ekki að velkjast neitt í vafa með Bread and Puppet þá get ég fullyrt að þetta er með sirka tutt- ugu þekktustu og merkilegustu leikflokkum heims. Heimsókn þeirra er alls staðar viðburðúr. Nú hef ég ekki séð þessa sýningu sem þau eru með hér, þannig að ekkert get ég um það sagt hvernig hún er; þau eiga það til eins og allir sem eitthvað geta að vera stundum mislukkuð. En alltaf á skemmtilegan hátt og seinna sér maður kannski að þetta var auðvitað ekki mislukkað neitt. Ég er ekki með handbærar bækur sem ég á um Bread and Puppet, m.a. eftir Francoise Kouriisky sem kenndi við Leikhúsfræði- deild Sorbonne og var sú sem kom þeim á framfæri í Evrópu (á leiklistarhátíðinni í Nancy fyrir 1970, sem núverandi menning- armálaráðherra Frakklands, Jack Lang stjórnaði; það var þangað sem Inúk var boðið á sín- um tíma) - þannig að ég verð að Bread and Puppet Theater ■ haft geysileg áhrif. treysta á minnið hvað þau snertir. Peter Schumann heitir hann sem byrjaði á þessu öllu í New York, bjó til brúður og flestar risavaxnar og mest var leikið á magnað leikhús sem hefur

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.