Helgarpósturinn - 27.10.1983, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 27.10.1983, Blaðsíða 9
9 J~lelgai---- posturinn Fimmtudagur 20. október 1983 Ragnheiður í Grjótinu Ragnheiður Jónsdóttir grafíker opnar sýningu í Gallerí Grjót við Skóla- vörðustíg á laugardag kl. 14. Ragnheiður sýnir 5 stórar myndir „á palli“ sem er innri hluti gallerísins, en fyrir framan sýna aðrir þeir sem standa að Grjótinu sin verk. Sýningin verður opin til 3. nóvember. Bókaforlag Arnar og Örlygs Fróðleikur r i fyrirrúmi Enn um bókaflóðið. Örn og Ör- lygur gefa út fjölda bóka á þessu hausti. Mest ber á ýmiss konar frá- sögnum og fróðleik. Þar má nefna bók um laxveiði eftir Guðmund Guðjónsson, sögu fyrstu bílanna á íslandi eftir Kristin Snæland, bók um heimsstyrjaldarárin síðari eftir Tomas Tómasson sagnfræðinema, þýdda bók um köfun, þýdda bók um heilsufæði, og æviminningar Guðlaugs Gíslasonar fyrrv. alþing- ismanns frá Vestmannaeyjum. Þá má nefna bækur úr ritröðum sem bókaforlagið hefur verið að gefa út svo sem Landið þitt 4. bindi, annað bindi æviminninga Steindórs Stein- dórssonar frá Hlöðum. Loks er svo að geta togarasögu Magnúsar Run- ólfssonar — sögu gömlu síðutogar- anna. Bókaklúbbur Arnar og Örlygs er sér á báti, nýjar bækur á vegum klúbbsins eru íslenskir annálar teknir saman af Anders Hansen, Ljúffengir lambakjötsréttir eftir Kristínu Gestsdóttur og loks sú bók sem telst til hvað mestra tiðinda hjá bókaforlagi Arnar og Örlygs á þessu hausti: ný skáldsaga eftir Jónas Kristjánsson, forstöðumann Stofnunar Árna Magnússonar.. Sagan heitir Eldmessan og er sögu- leg skáldsaga. Hjarta steinsins Richard Wagner dreymdi um það, sem hann kallaði Gesamt- kunstwerk og átti þá við sam- hæfingu orða, sviðsbúnaðar og tónlistar til að koma óperuhugsun sinni til skila. Það var kannski eitthvað í áttina við þessa sam- þættingu, sem boðið var í Norræna húsinu á sunnudaginn var, myndir, Ijóð og tónar, nema hvað hér voru a.m. k. þrír andar að verki fyrir utan hinn mikla ei- lífa. Hér var orðið ekki í upphafi, heldur grjótið. Ágúst Jónsson á Akureyri sagaði „góðsteinaþ holufyllingar, í örþunnar sneiðar, og komu þá furðulegar og litríkar myndir í ljós. Þeir sem séð hafa Brennisteinsöldu og Jökulgil við Landmannalaugar vita hvað átt er við með litríki. Af þessum sneið- um tók Ágúst síðan litskyggnur. Nú kom til skjalanna Kristján frá Djúpalæk. Hann skoðaði kynjamyndirnar, þóttist við það skynja lífið í steininum og orti af þeirri tilkomu lofsöng í þrjátíu erindum til skapara allra hluta. Þetta sá Atli Heimir Sveinsson - og samdi síðan jafnmargar tón- myndir við hinar afbrigðilegu laufabrauðskökur með Ijóð Krist- jáns til hliðasjónar. Eftir minni máltilfinningu er nær að kalla þessa músík tónmyndir en smá- lög. í Norræna húsinu sáum við fyrst stuttljóð Kristjáns á tjaldi, síðan sneiðmyndina. Svo las - Sigrún Björnsdóttir ljóðið, en - Jónas Ingimundarson lék mynd- brot Atla á flygilinn, ýmist á und- an, með, en þó einkum á eftir lestrinum, en myndin sjálf var alla stund fyrir augum. Svona gekk þetta hvert á fætur öðru. Þetta var harla merkileg klukkustund og áleitin, því að allt var næstum því jafntært, næstum því heilög þrenning. Kannski var eitt og eitt orð örlítið úr samræmi, en það tekur varla að nefna. Tón- myndirnar samsvöruðu enn betur hinum óvæntu innyflum steinsins og minntu reyndar ögn á Myndir á sýningu Mússorgskís, þótt allt væri smágervara. Trúarlegur tónn gægðist öðru hverju fram í takt við textann. Flytjendur ljóðs og lags, Sigrún og Jónas, fóru með þetta eins og manni fannst í svip- inn að ætti að gera. En vissulega vantar enn allan samanburð. Náttúran býr yfir miklum undr- um, ekki síst í hinu smæsta eða því sem í fyrstu virðist hvað óað- gengilegast. Hið harða getur geymt í sér viðkvæma kviku. Ef Hallgrímur Pétursson hefði verið viðstaddur þessa stund, er ekki al- veg víst, að hann hefði eftir það notað hina hefðbundnu sam- líkingu við steininn í 46. passíu- sálmi: Steini harðara er hjartað það, sem heyrir um Jesú pínu, gefur sig þó þar ekki að, ann meir gjálífi sínu. son (okkar Gulli) með nokkur góð númer 23.10 Danslög. „Svo dansa þau hjón- in...“ 01.10 Á næturvaktinni. Óli Þóröar eins og skip í nóttinni. 21.15 Á sveitalínunni. Hilda Torfa upp- tekin. 22.00 Kisa litla. Anna G. Bjamason les smásögu eftir sig. 23.05 Danslög......svo listavel". 24.00 Listapopp. Endurtekiö. 22.35 Kotra. Rúvak. Signý Pálsdóttir. , Makalaus þáttur. '23.00 Jazz. Jón Múii og Haarlem-strák- arnir. Laugardagur 22. október 9.30 Óskalög sjúklinga. Nú er Hamra- borg í Kópavogi. 11.20 Hrimgrund. Vetrarútvarp barn- anna. 14 00 Listalff. Sigmar. 15.10 Listapopp. Erlendir listamenn syngja og leika. 16.20 islenskt mál. Það er málið. 16.30 Nýjustu fréttir af Njálu. „Von er a fréttatilkynningu frá RLR um morö- in siöar í dag..." Einar Karl Haralds- son talar beint frá Bergþórshvoli. 18.00 Þankará hverfisknæpunni. Stefán Jón Hafstein og irski barþjónninn kætast i Philly. 19.00 Enn á tali. Bíöa? For the salesman to come around? 20.40 Fyrir minnihlutann. Árni Björns- son sér um þátt kúgaðra. Sunnudagur 23. október 10.25 Út og suður. Hlustendur fá reisu-, passan. 13.30 Vikan sem var. Makalaust skemmtilegur þáttur. 14.15 Byron lávarður. Grieg on Byron Kristján Árnason þýddi og sér um þáttinn. Lesarar meö honum. 15.151 dægurlandi. Svavar Gests er Boogie Woogie Bugle Boy. 16.20 Saga kennaramenntunar á ís- landl, ágrip. Hverjir kenndu kenn- urunum? Lýöur Björnsson. 18.00 Út um hvippinn og hvappinn. Þrá- inn á móti prestinum. 19.35 Samtal á sunnudegi. Hver er hræddur viö Áslaugu Ragnars? 20.00 Útvarp unga fólksins. Lög þess og regla. Ilíóill If* ★ ★ ★ framúrskarandf ★ ★ ★ ág»t ★ ★ góð ★ þolanleg Q lóleg Austurbæjarbíó: * Lífsháski (Deathtrap) Sjá umsögn í Listapósti. Bíóhöllin: • • • í Heljargreipum (Split I mage) Leikar- ar: Míchael O’Keefe, Karen Allen, Pet- er Fonda, James Woods, Brian Dennehy. Leikstjóri: Ted Kotcheff (First Blood) Sjá umsögn i Lista- pósti. Flóttinn (Pursuit): Fyrrverandi hermaður í úrvalssveit Bandaríkja- hers i Víetnam rænir flugvél af mikilli útsjónarsemi. Mynd full spennu og jafnframt kímni. Leikarar: Robert Duvall, Treat Williams (HAIR) og Kathryn Harold. Dvergarnir (GNOME-MOBILE): Walt Disney-mynd meö krökkunum sem léku i Mary Poppins. Glaumur og gleði í Las Vegas (One from ther heart). Heimsfræg mynd Francis Ford Coppola. Mynd sem öll er tekin I stúdiói. Aðalhlutverk: Fred- eric Forrest, Teri Garr, Nastassia Kinski, Raul Julia. Leikstjóri: Francis Ford Coppola. *** Upp með fjörið. (Sneakers) Ný spreng- hlægileg grínmynd. Leikendur: Carl Marotte, Charlaine Woodward, Michael Donaghue. Leikstjóri: Daryl Duke. Mynd i anda Porkys. Alla stráka dreymir um aö fara á kvennafar en þaö gengur hinsvegar ekki slysalaust fyrir sig. Bíóhöllin: Get Crazy (Vertu klikk). Bandarísk kvikmynd, árgerð 1983. Leikendur: Malcolm McDowell, Anna Björns- dóttir, Allen Goorwitz. Leikstjóri: Allan Arkush. * Söguþráöurinn og útfærslan á hon- um er kvikmyndalegt rugl. Ágúst Guömundsson og Stuömenn gætu kennt aðstandendum Get Crazy ým- islegt um- það hvernig kvikmynda á rokk og gleði. — GA Utangarðsdrengir. (The Outsiders). Bandarísk. Árgerð 1983. Handrit: Kathleen Knutsen Rowell eftir bók S.E. Hinton. Kvikmyndataka: Stephen H. Burum. Tónlist: Carm- en Coppola (faðir leikstjórans). Leikendur: C. Thomas Howell, Ralph Macchio, Matt Dillon o.fl. Leikstjóri: Francis Ford Coppola. Þetta er spennandi strákasaga meö slagsmáium, sorg, hetjudáðum og dauöa. Og svo auðvitað stelpum, þeim miklu örlagavöldum. *** — LÝÓ. Regnboginn: Gullæði Chaplins. Höföar til allra. Frábær gamanmynd.*"* Hundalif: Meiri Chaplin. • • • Leikur dauðans (Bruce Lee's Game Of Death). Síöasta karatemynd Bruce Lee’s. Meöal leikara má telja Bruce Lee og Gig Young. Flakkararnir: Fjörug mynd um ferða- lag manns og hunds. Aöalhlutverk I höndum Tim Conwoy og Wil Geer. Svefninn langi: • • Mynd um Marlow einkaspæjara. Aöalhlutverk: Robert Mitchum, Sarah Miles og James Stewart. Tess.Mynd Romans Polanski meö leikurunum Nastassia Kinski og Pet- er Firth.*** Stjörnubíó: • Á örlagastundu — The Killing Hour. Bandarísk. Árgerð 1982. Leikstjóri: Armand Mastroianni. Aðalhlutverk: Elizabeth Kemp, Perry King, Nor- man Parker. Frambærilegur miölungsþriller, stundum fáránlegur, stundum snotur- lega • samansettur, um stúlku meö „ósjálfráöa teiknihæfileika” og leit að óöum morðingja meö stjörnukom- plexa. Mastroianni leikstjóri hefur gert fleiri svona barnapíuhrollvekjur og þessi er líklega sú skásta. — ÁÞ. Gandhi. Bresk-indversk kvikmynd. Árgerð 1983. Handrit: John Briley. Leikendur: Ben Kingsley, Candice Bergen, Edward Fox, John Gielgud, Trevor Howard, John Milis, Martin Sheen. Leikstjóri: Richard Atten- borough. *** „Prýöiskvikmynd sem er löng, en ekki leiðinleg. Merkilegur hluti sam- tímasögunnar, sem er fegrun, ekki lygi. Óvægin sjálfsgagnrýni Breta, sem gerir þeim mögulegt aö líða bet- Ur á eftir, eins og katólikka, sem er ný- búinn að skrifta.” — LÝÓ. Laugarásbíó: The Antagonist: Ný mynd um 1000 Gyöinga sem ætla sér aö berjast gegn 5000 rómversk- um hermönnum í fjallavirkinu Masada. Leikstjóri: Boris Sagal. Leikarar: Peter O’Toole , Peter Strauss, David Warner og Anthony Quayle. Hafnarfjarðarbíó: Svörtu tígrisdýrin (Good guys wear black): Amerisk spennumynd meö leikurum eins og Chuck Norris. Háskólabíó: * „Þegar vonin ein er eftir”: Sjá umsögn I Listapósti. Nýja bíó Nýtt líf • • • íslensk. Árgerð 1983. Handrit og leikstjórn: Þráinn Bertelsson. Aðal- leikarar: Eggert Þorleifsson og Karl Ágúst Úlfsson. „Nýtt líf getur á engan hátt talist tímamótaverk í íslenskri kvikmynda- gerö og ekki hægt aö koma auga á faglegar framfarir i henni. Þaö er hins vegar sjálfgefiö aö þegar uppskeran er jafn ágæt skemmtun og Nýtt lif er, þá er varla mikið aö útsæðinu. Þó er ekki nokkur vafi á aö Eggert Þorleifs- son og Karl Ágúst Úlfsson halda Nýju lifi algjörlega uppi. innan um góöu; brandarana eru nefnilega ansi margir gamlir og þreyttir, sem þeir tveir bjarga meö frábærri tímasetningu og markvissu látbragöi.” —GA. Bíóbær: Bermúdaþríhyrningurinn. Dulræn fyrirbrigði. Ástareldur. Þetta segir meira en nóg. Tónabíó: ** Svarti folinn (The Black Stallion). Bandarísk, árgerð 1980. Leikendur: Kelly Reno, Teri Carr, Mickey Rooney. Leikstjóri: Caroll Ballard. Þetta er nokkuö skemmtileg mynd. Strákurinn er góður, sömuleiðis hest- urinn og Mickey Rooney. Helst mætti finnaaöeinhvers konartaugaveiklun, sem gætir I klippingunni. — LÝÓ Hvell-Geiri (Flash Gordon); * • Ævintýramynd þar sem The Queen sjá um alla tónlist. Endursýnd. Aðalhlutverk: Max Von Sydow. tónlist Gamla bíó: Óperan sýnir óperuna „La Traviata” um þessar mundir. 2. sýning er á laugardag 22. okt. kl. 20.00 og 3. sýn- ing er á þriðjudag 25. okt. kl. 20.00. Háskólabíó: Sinfóníuhljómsveit íslands heldur áskriftartónleika I kvöld, 20. okt. kl. 20.30. Einleikari er Pascal Rogé, píanó. Hljómsveitarstj. er Jean-Pierre Jacquillat. Tónleikaferð: „Hálft í hvoru” eru enn á ferö um landiö aö kynna nýju plötuna sina. Fimmtud. 20. okt.: Reyöarfirði. Föstud. 21. okt.: Egilsstööum. Laug- ard. 22. okt.: Borgarfiröi eystra. Sunnud. 23. okt.: Kirkjubæjar- klaustri. Gerðuberg: Hvers vegna og hvað getum við gert? Áhugahópur um stöðu og kjör kvenna á vinnumarkaönum gengst fyrir ráöstefnu um þau mál í Gerðu- bergi, laugardaginn 22. október n.k. Ráöstefnan hefst kl. 9.30 og er gert ráö fyrir aö henni Ijúki kl. 18.00. Ráö- stefnan er öllum opin. Sýningarsalir: Ljósmyndaskálinn: Ljósmyndaskálinn heitir nýr sýningar- staöur I Reykjavík, aö Týsgötu 8 viö Óðinstorg. Nú stendur þar yfir sýning er fjallar um „fæöingu” Reykjavíkur- hafnar á árunum upp úr aldamótun- um siöustu. Opið er milli kl. 14 og 18 virka daga, en frá kl. 10—14 á laugar- dögum. Leikfélag Akureyrar: Frumsýnir „My fair Lady” föstudag kl. 20.30. Leikstjóri: Þórhildur Þor- leifsdóttir. Hljóöstjórn: Roar Kvam. Leikmynd: Jón Þóriss. Búningar: Una Collis. Leikendur: Arnar JÓnsson, Ragnheiöur Steinþórsdóttir, og Þrá- inn Karlsson. Hótel Esja: Fundur til skemmtunar veröur hald- inn I F.i.R. aö Hótel Esju, Skálafelli, 9. hæö, sunnud. 23. okt. kl. 14.00. Eftir- taldir höfundar lesa úr verkum sinum: Ágúst Vigfússon, Ármann Kr. Einars- son, Eðvarö Ingólfsson, Hugrún, Ævar R. Kvaran, Jón frá Pálmholti, Kjartan Ólafsson, Ragnar Þorsteins- son, Siguröur Gunnarsson. Félagar fjölmenniö, takiö meö ykkur gesti og mætið stundvíslega. Fundur: Þróunarsamvinnustofnun íslands (Þ.S.S.i.) efnir I samvinnu við Blaða- mannafélag islands til námsstefnu um Cabo Verde-eyjar og þróunar- samstarf islendinga, laugardaginn 22. okt. n.k. I Bprgartúni 6. Þátttaka tilkynnist Þ.S.S.Í., Rauðarárstíg 25, sími 25133 við allra fyrstu hentugleika — og i slðasta lagi fimmtudaginn 20. þ.m.

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.